Alessandra skrifaði:
Non ho ricevuto risposta alla mia domanda che vi ripeto , per cortesia potete controllare ? grazie "Per favore vorrei sapere se è corretto che per la taglia L occorrono 5 gomitoli di kid silk; sono solo a 10 cm dopo avere unito davanti e dietro e ne ho già usati 2 (50 g)Grazie"
21.03.2025 - 22:09DROPS Design svaraði:
Buonasera Alessandra, abbiamo inoltrato la sua domanda al settore design. Se ci fossero delle correzioni, il modello verrà corretto direttamente online. Buon lavoro!
22.03.2025 - 16:57
Alessandra skrifaði:
Per favore vorrei sapere se è corretto che per la taglia L occorrono 5 gomitoli di kid silk; sono solo a 10 cm dopo avere unito davanti e dietro e ne ho già usati 2 (50 g)\r\nGrazie
12.03.2025 - 14:16DROPS Design svaraði:
Buonasera Alessandra, abbiamo inoltrato la sua domanda al settore design. Se ci fossero delle correzioni, il modello verrà corretto direttamente online. Buon lavoro!
22.03.2025 - 16:57
Pan skrifaði:
Die Vorderteil ist 13 cm Länge als Rückteil bei Größe XXXL vor Rumpteil nach dem Fertigstellung der Schulter ?\r\nHoffentlich antwortet Jemand mich, vielen Dank
25.02.2024 - 15:22DROPS Design svaraði:
Liebe Pan, ja genau, bei solchen Modellen mit europäischen Schultern wird es so gestrickt, so wird as Armloch ca 24 cm sein (17+30)/2. Schauen Sie mal die Videos für solche Schulter, es sollte Ihnen helfen. Viel Spaß beim Stricken!
26.02.2024 - 10:23
Flocaeymaex skrifaði:
Agapanthe
05.08.2023 - 16:57
Sveta skrifaði:
Duchess
04.08.2023 - 14:58
Dorota skrifaði:
October Breeze is perfekt
04.08.2023 - 11:48
Anna skrifaði:
October Breeze
04.08.2023 - 09:30
Veronique skrifaði:
Marsh Flower
03.08.2023 - 16:35
Isabel skrifaði:
Winter Blossom
03.08.2023 - 16:18
E Veiga skrifaði:
Misty Flower
03.08.2023 - 12:46
Frills of Winter#frillsofwintersweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með skáhallandi öxl / evrópskri öxl og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-22 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efri hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Stykkið skiptist upp fyrir klauf í hliðum og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveg. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 28-28-28-32-34-34 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 24-26-28-30-34-38 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 76-80-84-92-102-110 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir sléttprjón án útaukningar. Setjið 1 prjónamerki í ystu lykkju í hvorri hlið, héðan er nú stykkið mælt! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-15-16-17-17 cm, mælt yst meðfram handvegi frá prjónamerki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 24-26-28-30-34-38 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið er út á eftir 3 lykkjur, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 28-30-32-34-38-42 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 24-26-28-30-34-38 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 3 lykkjur, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 28-30-32-34-38-42 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 28-30-32-34-38-42 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 20-20-20-24-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 28-30-32-34-38-42 lykkjur frá vinstra framstykki = 76-80-84-92-102-110 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 24-25-26-28-29-30 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón yfir 76-80-84-92-102-110 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 76-80-84-92-102-110 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur í lok umferðar = 160-172-184-200-220-240 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að það myndist klauf í hliðum. Setjið 80-86-92-100-110-120 lykkjur frá framstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið síðan einungis yfir lykkjur frá bakstykki. FRAMSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 38-40-42-46-52-54 lykkjur jafnt yfir = 118-126-134-146-162-174 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá efsta punkti á öxl. BAKSTYKKI: Setjið lykkjur á hringprjón 3,5. Prjónið á sama hátt og á framstykki. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 5 og prjónið upp frá réttu 38-40-44-44-46-50 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 22-24-24-26-28-28 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 60-64-68-70-74-78 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjurnar sem prjónaðar voru upp. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að fá betra form og flíkin passi betur. Umferð 1 (ranga): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 2 (rétta): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 3 (ranga): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 4 (rétta): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 5 (rétta): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 6 (rétta): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 7 (ranga): Prjónið að byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 4-5-6-6-6-6 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermakúpu) . Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 6-6-7-7-8-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 8-9-10-10-11-13 sinnum = 44-46-48-50-52-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-41-41-39-37-36 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-8-10-8-12 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 49-49-49-47-45-44 cm frá. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur gagnstætt, þ.e.a.s. prjónið upp 22-24-24-26-28-28 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 38-40-44-44-46-50 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlarlínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 80 til 96 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 3,5. lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og prjónið A.1 yfir allar 2 lykkjur brugðið. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, fellið af (aðeins laust). |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frillsofwintersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.