Saskia Havinga skrifaði:
Hallo, Bij het inbreien van A.1. begin je toch bij het smalste gedeelte (de top van het boompje) ? Ik heb de indruk dat het patroon op zijn kop staat. met vriendelijke groet, Saskia H.
14.06.2024 - 09:58DROPS Design svaraði:
Dag Saskia,
Klopt je breit inderdaad van smal naar breed en je leest de telpatronen altijd van onder naar boven.
16.06.2024 - 19:37
Anna-Karin skrifaði:
Varför ska man sticka bakstycke a och framstyckena var o en för sig när man kommer ner till resåren? Ska de sys ihop sedan, vid monteringen?
28.03.2024 - 23:02DROPS Design svaraði:
Hej Anna-Karin, på vores model er der et lille sprund i siderne, men det bestemmer du jo selv :)
05.04.2024 - 11:01
Melanie skrifaði:
Liebes DROPS-Team, warum sind am Rumpfteil mittig der neu angeschlagenen Maschen unterm Ärmel Maschenmarkierer angebracht? Irritiert ein wenig, weil die Zu-/Abnahmen dazu fehlen, erst am Ärmel werden ja dann M. abgenommen... Da machen die MM Sinn... Danke für Euer Feedback!
08.02.2024 - 22:01DROPS Design svaraði:
Liebe Melanie, beim Rumpfteil braucht man diese Markierungen da die Arbeit später für die Seitenschlitzen geteilt wird. Viel Spaß beim stricken!
09.02.2024 - 07:58
Petra K skrifaði:
Hallo, tolles Muster..... Hier sind 5 Fotos eingestellt, alle von vorne...\r\n Es wäre nützlicher, wenn auch Fotos von hinten und der Seite dabei wären.\r\n Das finde ich wichtig ;-)
02.02.2024 - 06:25
Lígia Rodrigues skrifaði:
Greenery
07.08.2023 - 10:04
Dianne skrifaði:
The Pines
04.08.2023 - 01:00
Gitte skrifaði:
Christmas cardigan
03.08.2023 - 18:53
Ancient Woodlands Cardigan#ancientwoodlandscardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, norrænu mynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-8-8-8½ cm millibili. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 103-107-111-117-121-127 lykkjur með litnum ljós sægrænn úr DROPS Sky yfir hringprjón 3 og hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 4 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar kantur í hálsmáli mælist 6 cm, fitjið upp 5 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir kanta að framan = 113-117-121-127-131-137 lykkjur. Prjónið nú stroff eins og áður (sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur), en nú eru ystu 6 lykkjur í hvorri hlið prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 12 cm, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður JAFNFRAMT því sem 4. hver lykkja í stroffi er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-5-11-15-21-25 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) – lesið ÚTAUKNING = 117-122-132-142-152-162 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki á eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 1-1-2-2-3-4 cm frá prjónamerki, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 21-22-24-26-28-30 sinnum og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.1 (merktri með ör) er aukið út um 6-15-16-26-25-23 lykkjur jafnt yfir = 333-357-388-428-457-485 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 20-20-21-21-22-23 cm frá prjónamerki. Prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós sægrænn og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-27 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 52-56-60-65-70-75 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 68-72-80-90-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 93-101-108-118-129-139 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 68-72-80-90-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 52-56-60-65-70-75 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 213-229-248-268-293-317 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-24 cm frá skiptingu og næsta umferð er frá réttu. Nú skiptist stykkið þannig að það verður klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 56-60-65-70-76-82 lykkjum á prjóni, setjið síðustu 56-60-65-70-76-82 lykkjur á þráð fyrir hægra framstykki, setjið 101-109-118-128-141-153 lykkjur sem eru á milli merkiþráða á þráð fyrir bakstykki. Síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað til loka hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI = 56-60-65-70-76-82 lykkjur. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 10-12-11-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 66-72-76-84-90-98 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 7 cm. Fellið af. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI Setjið til baka 56-60-65-70-76-82 lykkjur af þræði í hinni hliðinni á hringprjón 4. Byrjið frá réttu, prjónið sléttar lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 10-12-11-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 66-72-76-84-90-98 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 7 cm. Fellið af. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI Setjið til baka 101-109-118-128-141-153 lykkjur af þræði á hringprjón 4. Byrjið frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 20-22-23-27-28-32 lykkjur jafnt yfir = 121-131-141-155-169-185 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 7 cm, fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 68-72-80-90-94-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 76-80-90-100-106-112 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-2-2-2-2-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 12-13-16-21-21-24 sinnum = 52-54-58-58-64-64 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-35-35-34-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir = 64-66-70-70-76-76 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 43-42-42-41-41-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op við miðju framan á köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ancientwoodlandscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.