Whisper of Spring |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, köðlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR A.1 / 3 lykkjur: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN A.2 / 3 lykkjur: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR A.2: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN A.1: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efri hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveg. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 34-34-38-40-42-44 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú er prjónað þannig – frá réttu: A.1, 12-12-16-18-20-22 lykkjur sléttprjón, A.2. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út á EFTIR A.1 (séð frá réttu) og Á UNDAN A.2 – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út á EFTIR A.2 og á UNDAN A.1 – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 26-28-28-30-32-36 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 86-90-94-100-106-116 lykkjur í umferð. Prjónið með A.1 og A.2 í hvorri hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftirr eru. Prjónið 6 umferðir svona, síðan er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki. Héðan er nú stykkið mælt! Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18 cm, mælt yst meðfram handvegi frá prjónamerki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 26-28-28-30-32-36 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki, byrjið efst í hnakka og prjónið upp lykkjur niður að prjónamerki sem situr í hlið á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið er út á eftir 3 lykkjur, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 30-32-32-34-36-40 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 26-28-28-30-32-36 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Byrjið við prjónamerki og prjónið upp lykkjur upp við hnakka. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 3 lykkjur, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 30-32-32-34-36-40 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 30-32-32-34-36-40 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 22-22-26-28-30-32 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 30-32-32-34-36-40 lykkjur frá vinstra framstykki = 82-86-90-96-102-112 lykkjur. ATH! Það eru 4 lykkjur fleiri á bakstykki en á framstykki, þar sem kaðlarnir daga stykkið aðeins saman. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 24-25-26-27-29-30 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón yfir 82-86-90-96-102-112 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-6-8-12-16-16 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón og A.1 / A.2 yfir 86-90-94-100-106-116 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-6-8-12-16-16 nýjar lykkjur í lok umferðar = 176-188-200-220-240-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.1 / A.2 hringinn þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-46 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að það myndist klauf í hliðum. Prjónið yfir 86-92-98-108-118-128 lykkjur frá framstykki og setjið þær síðan á þráð eða hjálparprjón og prjónið síðan einungis yfir lykkjur frá bakstykki. BAKSTYKKI: = 90-96-102-112-122-132 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-34-38-44-46-48 lykkjur jafnt yfir, aukið út á milli 13-14-15-17-19-19 ystu lykkjur í hvorri hlið = 124-130-140-156-168-180 lykkjur. Prjónið næstu umferð þannig - frá röngu: A.3 (sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð og byrjið í annarri umferð í mynsturteikningu), * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 15-16-17-19-21-21 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og A.4 (sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð og byrjið í annarri umferð í mynsturteikningu). Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá efsta punkti á öxl. FRAMSTYKKI: = 86-92-98-108-118-128 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 36-38-40-46-48-50 lykkjur jafnt yfir = 122-130-138-154-166-178 lykkjur. Prjónið næstu umferð þannig - frá röngu: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af þegar stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá efsta punkti á öxl. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 5 og 1 þráð DROPS Alpaca og 1 þráð DROPS Kid-Silk, prjónið upp frá réttu 37-39-41-43-46-48 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 27-29-31-31-32-34 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 64-68-72-74-78-82 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-2-2-4-5-5 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónað í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-4-4-5-6-6 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-4-3-3-2½-2 cm millibili alls 6-8-9-9-10-11 sinnum = 52-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-38-38-37-36-34 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-18-16-18-20 lykkjur jafnt yfir = 68-68-72-72-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 48-48-48-47-46-44 cm frá prjónamerki. HÆGRI ERMI: Prjónið alveg eins og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur gagnstætt, þ.e.a.s. prjónið upp 27-29-31-31-32-34 lykkjur frá botni á handvegi og upp að öxl (meðfram bakstykki) og 37-39-41-43-46-48 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn við handveg – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlarlínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 88 til 120 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum í hvora hlið. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Eline wrote:
Cable waterfall
03.08.2023 - 21:15Wilma wrote:
Lime Tree
03.08.2023 - 19:36