Maria skrifaði:
Hei! Kuinka voisin tehdä topin pienemmässä koossa, sillä s-koko oli minulle liian suuri?
08.04.2025 - 20:38DROPS Design svaraði:
Hei, kokeile voisitko neuloa topin puolta tai yhtä numeroa pienemmillä puikoilla. Topista tulee tällöin hieman tiheämpi.
09.04.2025 - 15:51
Louise skrifaði:
Hei! Jeg forstår ikke helt hvordan jeg skal gjøre det når jeg kommer til strikk 13 og 14 pinne i A1. Strikker strl S og har 62 m på pinnen minus 6 masker (3 i hver side med perlestrikk). Da er det igjen 56 m, men mønsteret går over 6 masker som ikke går opp. Får 9 hele rapporter (18 hull), men sitter igjen med kun 2 masker før 3 m perlestrikk på enden av pinnen Hvordan løse dette, eller hva gjør jeg evt feil? Takk
08.04.2025 - 09:55DROPS Design svaraði:
Hej Louise, hvis du vil, så kan du starte med 2 ret inden hulmønsteret, så får du et par glatstrikkede masker på hver side :)
10.04.2025 - 08:36
Jill skrifaði:
Hello! I was wondering is there any reason why this couldn't be knit in the round with the exception of the side vent?
03.04.2025 - 14:46DROPS Design svaraði:
Dear Jill, we try to get different kind of pattern, including with seams for knitters who rather work back and forth than in the round. You can then just adapt the pattern to work it in the round if you rather avoid seams. Happy knitting!
03.04.2025 - 15:58
Alena skrifaði:
Hello! I`m not quite sure if i understand this section correctly: "Work next row as follows from right side: 2 stitches in garter stitch, A.1 until 2 stitches remain on needle and decrease at the same time 7-9-11-11-13-13 stitches evenly on first row" How should I divide odd number to left and right side of the front part? Or do I need to spread all decreases evenly throughout the first-after-rib row?
19.03.2025 - 06:22DROPS Design svaraði:
Dear Alena, you will find a "Increase/Decrease Calculator" tool just below Pattern instructions, remove the 4 edge stitches from the total amount of stitches on needle and add this number under "Number of stitches on the needle". Happy knitting!
19.03.2025 - 07:48
Joannie Bernard skrifaði:
Bonjour! Je ne suis pas certaine de comprendre cette section: Tricoter le rang suivant ainsi sur l'endroit: 2 mailles au point mousse, A.1 jusqu'à ce qu'il reste 2 mailles on aiguille en diminuant en même temps 7-9-11-11-13-13 mailles à intervalles réguliers au premier rang, et terminer par 2 mailles au point mousse = 94-100-112-124-136-148 mailles. Est-ce que j’ai des diminutions à faire en plus de celles qui se trouvent dans le schéma A1? Merci
22.02.2025 - 15:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bernard, au tout premier rang du point fantaisie, vous allez diminuer 7 à 13 mailles pour obtenir le nombre de mailles total correspondant à la taille, puis vous tricotez simplement le diagramme comme indiqué (les seules diminutions du diagramme sont toutes compensées par des jetés pour que le nombre de mailles reste le même). Bon tricot!
24.02.2025 - 08:18
Cinzia skrifaði:
Buongiorno, il bordo a coste va fatto a coste 1/1 in mezzo al ferro con 2 maglie a legaccio ai lati del ferro? E a cosa serve questo bordo a legaccio ai lati? Grazie per la risposta
17.02.2025 - 11:49DROPS Design svaraði:
Buongiorno Cinzia, è corretto, la lavorazione a coste è all'interno del bordo a legaccio. Buon lavoro!
17.02.2025 - 16:21
Giovanna skrifaði:
Salve sto terminando il dietro non capisco cosa significhi \r\nPoi lavorare i ferri 13 e 14 di A.1 \r\nsemplice ferro traforato \r\nGrazie
02.06.2024 - 15:06DROPS Design svaraði:
Buonasera Giovanna, è semplicemente la descrizione del ferro. Buon lavoro!
05.06.2024 - 18:07
Andrea Mattes skrifaði:
Zu meiner Frage: Es hat sich erübrigt. Ich habe die Strickschrift jetzt verstanden. Es ist ein Perlmuster und auch richtig geschrieben. Sorry
28.04.2024 - 23:54
Andrea Mattes skrifaði:
Das Muster A1 ist lt. Anleitung so geschrieben, dass alle Reihen aufgezeigt sind, nicht nur die Hinreihen. Reihe 7 + 8: soll das ein Perlmuster sein? Wenn ich aber die Strickschrift lese, ist das aber ein Rippenmuster. Denn die ausgefüllten Kästchen sind in den Rückreihen lt. Anleitung rechte Maschen. Falls das ein Perlmuster ist, müssten Sie die Strickschrift aber anders schreiben?!?
28.04.2024 - 23:42DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Mattes, 7.+8.Reihe wird wie Perlmuster sein: die schwarze Kästchen stricken Sie links un die weisse Kästchen stricken Sie rechts bei der Hin-Reihe dann bei der Rückreihe stricken Sie links über recht (weisse Kästchen) und rechts über links (schwarze Kästchen). Viel Spaß beim Stricken!
29.04.2024 - 10:10
BARREAU skrifaði:
J’ai détricoté les rangs de côte. Je les ai remplacé par des rangs en point de riz. J’ai ensuite rabattu le dernier rang sur l’envers afin d’avoir une jolie finition bien régulière. Je trouve que cela s’accorde mieux aux motifs des rangs suivant.
07.04.2024 - 21:13
Walking on Air Top#walkingonairtop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-19 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við í hliðum á framstykki og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju innan við ystu 4 lykkjur frá hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 KANTLYKKJUM Í PERLUPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 KANTLYKKJUM Í PERLUPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur í perluprjóni (1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Band á öxl / hlýri er prjónað á framstykki og síðan saumað niður við bakstykkið. Að lokum eru hliðarsaumar saumaðir. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 101-109-123-135-149-161 lykkjur á prjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan eru 4 umferðir prjónaðar í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á prjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og fækkið jafnframt um 7-9-11-11-13-13 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð, endið með 2 lykkjur í garðaprjóni = 94-100-112-124-136-148 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 11 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 2-3-2-2-3-3 sinnum = 98-106-116-128-142-154 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, prjónið 4 umferðir perluprjón (A.2) yfir ystu 11-11-13-13-15-17 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Á eftir 4 umferðum með perluprjóni eru felldar af 8-8-10-10-12-15 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 82-90-96-108-118-124 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur í perluprjóni í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir sléttprjón eftir að lykkjur hafa verið felldar af fyrir handveg, fækkið um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 6-10-8-16-17-19 sinnum í hvorri hlið, síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-3-5-1-2-1 sinnum í hvorri hlið = 62-64-70-74-80-84 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur í perluprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 35-37-39-40-42-44 cm. Prjónið síðan 13. og 14. umferð í A.1 (einföld gataumferð). Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 4 umferðir perluprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Nú er prjónað band / hlýri á öxl frá réttu þannig: 3 lykkjur perluprjón, 4-6-6-8-8-8 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur perluprjón, setjið síðan þessar lykkjur á þráð fyrir band / hlýra á öxl. Fellið af 42-40-46-46-52-56 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 3 lykkjur perluprjón, 4-6-6-8-8-8 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur perluprjón. Haldið svona áfram fram og til baka yfir þessar 10-12-12-14-14-14 lykkjur þar til bandið / hlýri á öxl mælist ca 10-10-10-12-12-12 cm (helmingur af lengdinni tilheyrir bakstykki). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hitt bandið / hlýra á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á framstykki og prjónið alveg eins og á framstykki, nema í stað þess að prjóna bönd / hlýra á öxl eru allar lykkjur felldar af eftir 4 umferð í perluprjóni efst. Stykkið mælist 37-39-41-42-44-46 cm. FRÁGANGUR: Saumið bönd / hlýra á öxl við bakstykki – yst í hvorri hlið. Saumið hliðarsauma kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur – skiljið eftir op ca 8 cm neðst í hvorri hlið fyrir klauf. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #walkingonairtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.