Carole wrote:
Pourquoi les patrons sont en anglais merci a vous ,je parle le francais seulement
05.03.2024 - 22:48DROPS Design answered:
Bonjour Carole, tous nos modèles sont disponibles en français, cliquez sur le menu déroulant entre la liste des fournitures et les explications écrites pour changer la langue. Bon tricot!
06.03.2024 - 08:26Geke wrote:
Ik ben nu aan het linker voorpand toe. Moet het niet zo zijn dat je eerst de rechter kant breit? Lijkt me logischer, anders gebukt geen begindraad. Ik hoop dat u begrijpt wat ik bedoel
02.02.2024 - 22:07DROPS Design answered:
Dag Geke,
Als de laatste naald, voordat het werk gescheiden werd, aan de verkeerde kant was, kun je verder met de breidraad gaan wanneer je het linker voorpand breit, beginnend aan de goede kant. Met het linker voorpand wordt bedoeld wanneer je het kledingstuk draagt en het pand wat dan voor jezelf aan de linker kant zit.
04.02.2024 - 19:10Geke wrote:
Ik heb nu patroon A1 gebreid, klopt het dat het patroon de pennen op de goede kant aangeeft en dat ik op de verkeerde kant brei zoals de steek voorkomt of heb ik nu het dubbele gebreid? Het heeft nu namelijk al een hoogte van 20 cm. Volgens mij ziet het er op de foto veel kleiner uit.
28.01.2024 - 15:58DROPS Design answered:
Dag Geke,
In de telpatronen worden altijd alle naalden aangegeven, dus zowel de heengaande als de teruggaande naald. De oneven naalden zijn de heengaande naald, dus aan de goede kant en de even naalden zijn de teruggaande naalden, dus aan de verkeerde kant. Bij de symboolverklaring staat ook aangegeven hoe je de betreffende steken aan de goede of de verkeerde kant breit.
28.01.2024 - 18:29Valerie O'Donovan wrote:
Can you confirm if the back in this pattern is 5cms shorter than the front please?
27.08.2023 - 17:00DROPS Design answered:
Hi Valerie, back and front pieces should be the same length. Happy knitting!
27.08.2023 - 18:11Nettan wrote:
Hej undrar om ni inte kan börja visa även baksidan på era mönster!? Ni tar bara bilder från framsidan eller sidan Jag är ingen van stickare så detta hade hjälpt mig mycket. Bra att veta även hur bakstycket kommer att se ut när den är färdig stickad. Tack på förhand
15.08.2023 - 22:40DROPS Design answered:
Hej Nettan, det har vi noteret - tak for input :)
16.08.2023 - 12:04Patricia wrote:
Bonjour, Pouvez me donner plus d’explication au sujet des 13 mailles de chaque côté et des 6 mailles centrales (je les tricote en point de riz ?) et les autres mailles comme avant ? (Je les tricote en jersey?) En vous remerciant par avance Cordialement Patricia Quand l'ouvrage mesure 24-25-26-27-28-29 cm, tricoter 4 rangs point de riz (A.2) au-dessus des 11-11-13-13-15-17 mailles de chaque côté et des 6 mailles centrales (tricoter les autres mailles comme avant).
02.08.2023 - 15:25DROPS Design answered:
Bonjour Patricia, effectivement, vous tricotez 11-11-13-13-15-17 mailles de chaque côté du top + les 6 mailles au milieu du devant (sous la pointe de l'encolure V) au point de riz (= comme dans le diagramme A.2) et vous tricotez les autres mailles comme avant, et tout ça pendant 4 rangs. Bon tricot!
02.08.2023 - 16:36Zuzana wrote:
Ďakujem za pekne do detailu vypracovaný návod. Radosť pliesť.
28.07.2023 - 16:07ROSIER Francoise wrote:
Simplement MERCI
19.07.2023 - 18:14Giovanna wrote:
Buongiorno. Vorrei sapere fino a che punto del lavoro vanno lavorate le due maglie iniziali e finali a legaccio.
12.07.2023 - 10:52DROPS Design answered:
Buongiorno Giovanna, se non diversamente indicato, le maglie a maglia legaccio rimangono per tutto il lavoro: servono per la cucitura. Buon lavoro!
16.07.2023 - 13:37
Walking on Air Top |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri og sléttprjóni með v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-20 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á framstykki og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju innan við ystu 4 lykkjur frá hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um handveg og v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 LYKKJUR Í PERLUPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 LYKKJUR Í PERLUPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Bönd / hlýri á öxlum eru prjónuð á framstykki og síðan saumuð við bakstykkið. Að lokum eru hliðarsaumar saumaðir. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 101-109-123-135-149-161 lykkjur á prjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan eru prjónaðar 4 umferðir í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á prjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og fækkið jafnframt um 7-9-11-11-13-13 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð, endið með 2 lykkjur í garðaprjóni = 94-100-112-124-136-148 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 11 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 2-3-2-2-3-3 sinnum = 98-106-116-128-142-154 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, prjónið 4 umferðir perluprjón (A.2) yfir ystu 11-11-13-13-15-17 lykkjur í hvorri hlið og yfir miðju 6 lykkjur í umferð (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferðir í perluprjóni (A.2) skiptist stykkið mitt í umferð og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Byrjið á að prjóna fyrri helming séð frá réttu eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 49-53-58-64-71-77 lykkjur. Fellið af fyrstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 3 lykkjur í perluprjóni, 35-39-42-48-53-57 lykkjur sléttprjón, endið með 3 lykkjur í perluprjóni = 41-45-48-54-59-63 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjur í perluprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg og v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. Lestu því kaflann HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. HANDVEGUR: Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir handveg eftir 3 kantlykkjur í perluprjóni – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-12-13-17 sinnum, síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 5-6-7-3-4-2 sinnum. V-HÁLSMÁL: Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli á undan 3 kantlykkjum í perluprjóni við miðju að framan – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 22-23-25-25-28-30 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 10-12-12-14-14-14 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur í perluprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki á prjóninn (merkir öxl). Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 5-5-5-6-6-6 cm frá prjónamerki sem var sett á öxl. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 49-53-58-64-71-77 lykkjur. Byrjið frá röngu, fellið af fyrstu 8-8-10-10-12-14 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 3 lykkjur í perluprjóni, 35-39-42-48-53-57 lykkjur sléttprjón, endið með 3 lykkjur í perluprjóni við miðju að framan = 41-45-48-54-59-63 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjur í perluprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli og handvegi eins og útskýrt er að neðan. Lestu því kaflann HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. HANDVEGUR: Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir handveg eftir 3 kantlykkjur í perluprjóni að hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-12-13-17 sinnum, síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 5-6-7-3-4-2 sinnum. V-HÁLSMÁL: Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli á undan 3 kantlykkjum í perluprjóni við miðju að framan – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 22-23-25-25-28-30 sinnum. Eftir allar úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 10-12-12-14-14-14 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur í perluprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki á prjóninn (merkir öxl). Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 5-5-5-6-6-6 cm frá prjónamerki sem var sett á öxl. Fellið af. BAKSTYKKI: Fitjið upp 101-109-123-135-149-161 lykkjur á prjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan eru prjónaðar 4 umferðir í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á prjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og fækkið jafnframt um 7-9-11-11-13-13 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð, endið með 2 lykkjur í garðaprjóni = 94-100-112-124-136-148 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 11 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 2-3-2-2-3-3 sinnum = 98-106-116-128-142-154 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, prjónið 4 umferðir perluprjón (A.2) yfir ystu 11-11-13-13-15-17 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferðir í perluprjóni (A.2) eru felldar af 8-8-10-10-12-14 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 82-90-96-108-118-126 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur í perluprjóni í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir sléttprjón eftir að lykkjur voru felldar af fyrir handveg, fækkið um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-12-13-17 sinnum í hvorri hlið, síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 5-6-7-3-4-2 sinnum í hvorri hlið = 64-70-74-78-84-88 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur í perluprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 35-37-39-40-42-44 cm. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 4 umferðir perluprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið böndin / hlýra á öxlum við bakstykkið – yst í hvorri hlið. Saumið hliðarsauma kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur – skiljið eftir op ca 8 cm neðst í hvorri hlið fyrir klauf. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Carole Scrosati Longpre wrote:
Merci de votre reponse
06.03.2024 - 13:43