DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Coconut Adventure Top

Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri og I-cord kanti. Stærð S - XXXL.

DROPS 239-33
DROPS Design: Mynstur e-356
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200-200-250-250 g litur 22, ljós brúnn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: Lengd 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju innan við ystu 2 lykkjurnar í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri).
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman, 1 lykkja í garðaprjóni (2 lykkjur færri).
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja í garðaprjóni (1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Bönd á öxlum / hlýrar er prjónað í snúruprjóni og fellt er af með i-cord kanti meðfram hálsmáli á framstykki og á bakstykki. Böndin á öxlum / hlýrar er saumað við bakstykkið. Að lokum eru hliðarsaumar saumaðir.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 109-117-129-143-159-179 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 lykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið þar til stykkið mælist 2 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu).
Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-18-20-22-26 lykkjur jafnt yfir = 93-101-111-123-137-153 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 7-7-8-8-8-8 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 99-107-117-129-143-159 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-8-9-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni).
Eftir 4 umferðir í garðaprjóni eru felldar af 5-7-8-11-13-15 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu tveimur umferðum = 89-93-101-107-117-129 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handvegi – sjá ÚRTAKA. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) þar til lykkjum hefur verið fækkað alls 17-19-21-21-22-24 sinnum í hvorri hlið = 55-55-59-65-73-81 lykkjur.
Geymið lykkjurnar á prjóni. Nú er fellt af með i-cord kanti eins og útskýrt er að neðan.

I-CORD KANTUR:
Fitjið upp 5 lykkjur á 1 sokkaprjón nr 2,5 (prjónið með hinum). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Snúið prjóni, * prjónið 4 fyrstu lykkjur slétt, prjónið síðustu lykkju snúna slétt saman með fyrstu lykkju sem situr á prjóni á bakstykki (frá réttu), lyftið til baka lykkjum sem prjónaðar voru yfir á vinstri prjón *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur á bakstykki hafa verið felldar af og eftir eru 5 lykkjur á hægri prjóni.
Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 109-117-129-143-159-179 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 lykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið þar til stykkið mælist 2 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu).
Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – jafnframt því sem í fyrstu umferð er fækkað um 16-16-18-20-22-26 lykkjur jafnt yfir = 93-101-111-123-137-153 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 27-31-36-42-49-57 lykkjur sléttprjón, A.1, 27-31-36-42-49-57 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 7-7-8-8-8-8 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 99-107-117-129-143-159 lykkjur.

Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-8-9-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður).
Eftir 4 umferðir í garðaprjóni er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 5-7-8-11-13-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 42-44-48-51-56-62 lykkjur eins og áður, setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, prjónið 3 næstu lykkjur slétt saman og setjið þessar 43-45-49-52-57-63 lykkjur á þráð = STYKKI-1.

STYKKI-2:
Prjónið 2 lykkjur af hjálparprjóni snúnar slétt saman, prjónið næstu 41-43-47-50-55-61 lykkjur eins og áður og prjónið síðustu 6-8-9-12-14-16 lykkjur slétt. Snúið stykkinu.
Fellið af 5-7-8-11-13-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni = 43-45-49-52-57-63 lykkjur.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli og handvegi.
Lykkjum er fækkað í hvorri hlið innan við 1 lykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA, en lykkjum er fækkað mismunandi fyrir v-hálsmáli og handvegi. Lestu því kaflann V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Fækkið um 2 lykkjur fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 4-2-2-3-6-8 sinnum, síðan er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 13-17-19-18-16-16 sinnum. ATH: Næst ysta lykkja meðfram v-hálsmáli (lykkjan innan við garðaprjóns lykkju), er alltaf prjónuð í sléttprjóni.

HANDVEGUR:
Fækkið um 1 lykkju fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 17-19-21-21-22-24 sinnum.

Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 5-5-5-7-7-7 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið lykkjur slétt saman 2 og 2 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju slétt. Fellið af.

STYKKI-1:
Setjið til baka 43-45-49-52-57-63 lykkjur frá STYKKI-1 á hringprjón 3,5. Prjónið mynstur fram og til baka eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli.
Fækkið lykkjum alveg eins og á STYKKI-2 = 5-5-5-7-7-7 lykkjur eftir. Prjónið þessar lykkjur slétt saman 2 og 2 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt. Fellið af. Prjónið síðan band á öxl / hlýra og i-cord kant eins og útskýrt er að neðan.

BAND Á ÖXL / HLÝRI OG I-CORD KANTUR:
Byrjið með að prjóna upp lykkjur frá réttu meðfram v-hálsmáli á framstykki. Notið hringprjón 2,5 og prjónið upp ca 75 til 105 lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni (jafngildir ca 1 lykkju í hverja lykkju/umferð frá horni að horni meðfram v-hálsmáli). Klippið þráðinn frá.

Fitjið upp 5 lykkjur á 1 sokkaprjón nr 2,5 (prjónið með hinum), prjónið snúruprjón þannig: * Færið lykkjurnar að byrjun á umferð, herðið á þræði og prjónið 5 lykkjurnar slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til bandið á öxl / hlýrinn mælist ca 12-12-12-14-14-14 cm bandið á að liggja yfir öxlina á milli framstykkis og bakstykkis, mátið e.t.v. toppinn og stillið lengdina af). Ekki klippa þráðinn frá.
Nú er fellt af með i-cord affellingu meðfram v-hálsmáli á framstykki þannig:
Byrjið frá réttu, * prjónið 4 fyrstu lykkjur frá snúrunni slétt, prjónið síðustu lykkjuna snúna slétt saman með fyrstu lykkju á prjóni frá framstykki. Lyftið til baka lykkjum sem prjónaðar voru á vinstri prjóni *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur meðfram v-hálsmáli á framstykki hafa verið felldar af og 5 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Færið þessar 5 lykkjur yfir á vinstri prjón, prjónið snúruprjón þar til bandið á öxl / hlýri mælist ca 12-12-12-14-14-14 cm (stillið lengdina eftir hinu bandinu á öxl / hlýra). Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel.

FRÁGANGUR:
Saumið böndin á öxl / hlýra efst á bakstykki – yst í hvora hlið.
Saumið hliðarsauma innan við 1 lykkju í garðaprjóni.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman

symbols = prjónið 4 lykkju slétt saman þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, lyftið þeim til baka yfir á vinstri prjón, lyftið næst ystu lykkjunni yfir ystu, endurtakið þar til allar 3 lykkjurnar hafa verið lyftar yfir (= 3 lykkjur færri). Lyftið til baka síðustu prjónuðu lykkjunni yfir á hægri prjón

symbols = prjónið 4 lykkjur snúnar slétt saman þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, lyftið næst síðustu lykkjunni sem var prjónuð yfir síðustu, endurtakið þar til allar 3 lykkjurnar hafa verið lyftar yfir (= 3 lykkjur færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Corina wrote:

Hello! I would like to know if this pattern can be worked with 80 cm needles instead of 60cm. I only have them in this length. Thank you!

18.04.2024 - 11:39

DROPS Design answered:

Hi Corina, you can use 80 cm needles instead of 60cm. Happy knitting!

18.04.2024 - 11:50

country flag Agata wrote:

Dzień dobry, mam pytanie do: „Zamykać w odl. 1 oczka ściegiem francuskim od brzegu z każdej strony” przy robieniu dekoltu. Rozumiem, ze przekładam pierwsze oczko (brzegowe) potem jedno oczko prawe, drugie oczko prawe i przekładam jedno nad drugim w celu zamknięcia?

06.10.2023 - 14:54

DROPS Design answered:

Witaj Agato, oczka brzegowe są zawsze przerabiane na prawo. Zamykasz oczko/a za lub przed oczkiem brzegowym. Jak to zrobić patrz ZAMYKANIE OCZEK na górze wzoru. Poniżej znajdziesz również instrukcje video, gdzie możesz obejrzeć jak zamykamy 1 czy 2 oczka w taki sposób jak wymaga tego ten wzór (patrz Zamykanie 2 oczek' oraz 'Zamykanie oczek–zdjąć 1 o., 1 o.p., przełożyć o. zdjęte nad przerobionym oczkiem'). W razie dodatkowych pytań pisz. Pozdrawiamy!

09.10.2023 - 08:43

country flag Giulia wrote:

Buongiorno, Non capisco bene cosa fare quando si dice "Quando il lavoro misura 28-29-30-31-32-33 cm, lavorare 2 coste sulle 6-8-9-12-14-16 maglie più esterne a ogni lato (continuare le altre maglie a maglia rasata)." Avrei bisogno di maggiori spiegazioni

12.09.2023 - 12:49

DROPS Design answered:

Buonasera Giulia, in questo punto deve lavorare solo sul numero di maglie indicato e non su tutte le maglie, e deve lavorare 2 coste, cioè 4 ferri diritto. Buon lavoro!

12.09.2023 - 19:37

country flag Anja wrote:

Hallo, ich verstehe nicht, was mit dem V-Ausschnitt passieren soll. Ich nehme die Maschen auf und schneide den Faden ab. Und dann? Es ist ja nichts weiter beschrieben, wie ich den Rand stricke. Und für den Schulterträger nehme ich 5 Maschen auf und stricke eine Hinreihe rechts und wiederhole dies? Also kraus rechts über 5 Maschen? Das verstehe ich nicht, aber mehr ist nicht beschrieben.

29.07.2023 - 14:46

DROPS Design answered:

Liebe Anja, wenn beide Vorderteile fertig sind, stricken Sie SCHULTERTRÄGER und I-CORD-RAND:, dh zuerst die Maschen auffassen und Faden abschneiden; dann 5 Maschen anschlagen und eine I-Cord für den 1. Träger stricken dann stricken Sie diese 5 Maschen mit den aufgefassenen Maschen zusammen wie in diesem Video gezeigt. Viel Spaß beim stricken!

31.07.2023 - 10:11

country flag Riikka wrote:

Hei, en ymmärrä ohjeesta miten olkaimet tehdään? Tarvitsen yhden 2,5 puikon, mutta miten olkain kiinnittyy topin etuosaan tässä vaiheessa? En löytänyt opastusvideoita tähän vaiheeseen.

01.07.2023 - 22:07

DROPS Design answered:

Hei, olkain neulotaan aluksi erikseen. Kun olkaimen pituus on 12-12-12-14-14-14 cm, se kiinnitetään etukappaleeseen seuraavasti: *Neulo olkaimen ensimmäiset 4 silmukkaa oikein, neulo viimeinen silmukka ja etukappaleen ensimmäinen silmukka kiertäen oikein yhteen. Ota neulotut silmukat takaisin vasemman käden puikolle*, toista *-* kunnes olet päättänyt kaikki etukappaleen V-aukon kohdalla olevat silmukat ja oikean käden puikolla on jäljellä 5 silmukkaa. Ota nämä 5 silmukkaa vasemman käden puikolle ja neulo näillä silmukoilla toinen olkain.

04.07.2023 - 16:57

country flag Audrey wrote:

Can someone please help me understand the I-cord bind off for the back piece? I do not understand how I’m supposed to purl from the wrong side and then get back to the front to start the bind off. I always wind up with the yarn in the wrong place. The video leaves out this first part so I am just royally confused. Been staring at it for hours.

27.05.2023 - 18:22

DROPS Design answered:

Dear Audrey, cast on 5 stitches in an extra needle, then purl these stitches on the wrong side. Now, turn and work these stitches alongside the stitches in the back. Knit the first 4 stitches and knit the 5th stitches with the first stitch on the back, pass all stitches onto the same needle and continue working as before: knit the 4 stitches and work the 5th stitch with the next stitch in the back. Happy knitting!

28.05.2023 - 18:48

country flag Ingrid Mcmillan-ernst wrote:

Hello. Can you please tell me, if possible, what size the model in the picture is wearing? Thank you!

27.04.2023 - 17:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mcmillan-ernst, most of the time, our models are wearing either a size S or a size M, but since every body is different, measure a similar garment you have and like the shape and compare to the measurements in the chart (taken flat from side to side - in cm, convert into inches here). read more here. Happy knitting!

28.04.2023 - 09:38

country flag Nayfher wrote:

Esta parte no la entiendo *trabajar 2 pliegues sobre los 6-8-9-12-14-16 puntos más externos a cada lado* . A qué se refieren con pliegues

19.04.2023 - 12:04

DROPS Design answered:

Hola Nayfher, los pliegues están explicados en EXPLICACIONES PARA REALIZAR LA LABOR; 1 pliegue = 2 filas de derecho.

23.04.2023 - 18:10

country flag Agnès wrote:

Dune

21.01.2023 - 17:46

country flag Marta wrote:

Fawn Top

18.01.2023 - 16:15