Cristina skrifaði:
Nel modello si dice di aumentare a 22 cm dallo sprone , per la taglia L, 56 maglie. per quale motivo? mi sembrano tante. Il modello non è svasato. Grazie
09.12.2022 - 16:48DROPS Design svaraði:
Buonasera Cristina, non ci risultano errori nel numero di maglie da aumentare. Buon lavoro!
11.12.2022 - 22:00
Jadwiga skrifaði:
Dzień dobry, robię rozmiar S i mam przerobione dwa schematy (choinki i mikołajki) i czytam, że trzeba dalej przerabiać karczek i dodawać oczka. Ale mój karczek juz ma wysokość odpowiednią dla mojego rozmiaru. Czy to znaczy, że juz mam rozdzielać robótkę na korpus i rękawy bez kolejnego dodawania oczek czy dalej przerabiać karczek z kolejnymi schematami? Pozdrawiam
07.12.2022 - 22:01DROPS Design svaraði:
Witaj Jadwigo, jeśli długość karczku jest już odpowiednia, a nie dodasz właściwej liczby oczek na obwodzie, to może być ich zbyt mało na tułów. Czy wykonywałaś wcześniej próbkę? Ten problem może z tego wynikać. Pozdrawiamy!
08.12.2022 - 08:42
Ariane skrifaði:
Pour la grandeur S, 50g de couleur naturel est suffisant.
03.12.2022 - 21:51
Catherine skrifaði:
Hi. I've finished the 2nd Christmas tree a2 (ladies size M) but don't have 24cm from yoke yet. Should I divide for sleeves now anyway or do I start the snowman a4 and divide part way through him? Can you divide part way through a pattern section? I realise the issue is the tension but this is the first pattern I've ever knit and I can't alter tension now. Thanks Catherine
29.11.2022 - 19:47DROPS Design svaraði:
Hi Catherine, It is important to get the correct length before dividing for the sleeves and body. And, yes, you can divide partway through a pattern as this will be under the sleeves. The pattern will then be continued on the body and sleeves. Happy knitting!
30.11.2022 - 08:02
Melanie skrifaði:
Liebes Drops-Team, die Anleitung kann nicht ganz stimmen. Wenn ich an der Passe nach dem Bündchen für die kleinste Größe 4cm stricke, dann die Musterfolge wie oben beschrieben (=64 Runden), dann bin ich bereits (laut Maschenprobe) bei 64/28=2,2 also 22cm plus die 4cm von vor dem Muster…. Das ist viel zu lang! Ich soll insgesamt ja nur 22cm bis Teilung Ärmel/Körper haben. Daher entweder die 4cm oben weglassen oder bereits nach A3 teilen. Viele Grüße
28.11.2022 - 20:51DROPS Design svaraði:
Liebe Melanie, die Passe werden Sie nicht nach A.4 teilen aber wenn Sie A.4 stricken, so haben Sie: 4 cm glatt rechts + 49 Runden (Diagramme A.1, A.2, A.3, A.2 = ca 17,5 cm), dann beginnen Sie A.4 und teilen die Arbeit nach 22 cm - A.4 wird dann beim Rumpfteil/bei den Ärmeln "separat" fertrig gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
29.11.2022 - 11:17
Camille skrifaði:
Bonjour, je ne comprends vraiment pas comment faire la division des manches. Si le calcul est correct je dois faire la division juste après les dernières augmentations mais sur le schéma A4 il est dit de le répéter un nombre de fois qui correspond à l’avant division. Comment je sais exactement où diviser?
20.11.2022 - 00:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Camille, les augmentations de A.2 doivent être terminées avant la division: divisez l'ouvrage à la hauteur indiquée pour la taille, A.4 doit avoir commencé mais n'est pas encore terminé (il sera terminé sur chaque partie séparément: dos/devant et manches). Si votre tension n'est pas juste en hauteur, il vous faudra ajuster les motifs/augmentations pour que la division ait lieu à la bonne mesure, ou bien votre empiècement sera plus long. Bon tricot!
21.11.2022 - 09:04
Patricia Rae Hunter skrifaði:
I would like to make this out the cotton light Yarn... I live in Arizona??? IS there enough body in this yarn to make this sweater??? IS there a store in the US that sells the yarn? IF not I will be in Vienna, Budapest and Prague in the next two weeks?
03.11.2022 - 22:03DROPS Design svaraði:
Dar Mrs Hunter, use our yarn converter to see alternatives (click then on each yarn to open the shadecard and read more about the yarn) - see our Stores in Hungary , Czech Republic and Austria. Happy knitting!
04.11.2022 - 07:50
Christmas Time Sweater#christmastimesweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri með jólasveinum, jólatrjám, snjóköllum og hjörtum. Stærð S - XXXL. Þema: Jól.
DROPS 235-39 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2: Ef óskað er eftir meira mynstri á fram- og bakstykki og ermum, er hægt að halda áfram með mynsturteikningu í röð að eigin ósk, en munið eftir að þetta kemur til með að hafa áhrif á efnismagn. Á ermum er mynd staðsett mitt á ermi og það er talið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum ljós grár, prjónið lykkjuna með prjónamerki með litnum ljós grár, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum ljós grár (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-120-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum skógargrænn í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) jafnframt því sem prjónaðar eru rendur þannig: Prjónið 2 umferðir með litnum skógargrænn, 2 umferðir með litnum ljós grár, 4 umferðir með litnum skógargrænn, haldið síðan áfram með stroff með litnum ljós grár þar til kanturinn í hálsmáli mælist 4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð með litnum ljós grár þar sem aukið er út um 26-27-28-34-40-42 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 130-135-140-154-164-170 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið við miðju að framan. Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón með litnum ljós grár. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykki mælist 4-4-5-5-6-7 cm frá prjónamerki við hálsmál, aukið út um 38-41-44-46-52-54 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 168-176-184-200-216-224 lykkjur. Prjónið nú mynstur jafnframt því sem haldið er áfram með útaukningar eins og útskýrt er að neðan – sjá LEIÐBEININGAR-1 og MYNSTUR í útskýringu að ofan. A.1: Prjónið A.1 alls 21-22-23-25-27-28 sinnum hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 48-48-56-56-64-72 lykkjur jafnt yfir = 216-224-240-256-280-296 lykkjur. A.2: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð, prjónið A.2 alls 27-28-30-32-35-37 sinnum hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 40-48-48-56-64-64 lykkjur jafnt yfir = 256-272-288-312-344-360 lykkjur. A.3: Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alls 32-34-36-39-43-45 sinnum hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 32-40-48-48-48-56 lykkjur jafnt yfir = 288-312-336-360-392-416 lykkjur. A.2: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið aftur A.2, alls 36-39-42-45-49-52 sinnum hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út um 16-16-24-40-40-48 lykkjur jafnt yfir = 304-328-360-400-432-464 lykkjur. A.4: Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 alls 38-41-45-50-54-58 sinnum hringinn á berustykki. Haldið áfram með mynstur – jafnframt skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá prjónamerki við hálsmál. Útaukningar hafa núna verið gerðar til loka, en mynstrið er ekki tilbúið enn og er prjónað áfram á fram- og bakstykki og ermum. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-50-54-60-66-72 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 60-64-72-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn með litnum ljós grár (í hlið undir ermi), prjónið 92-100-108-120-132-144 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 60-64-72-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn með litnum ljós grár (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 46-50-54-60-66-72 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. Fram- og bakstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-216-232-256-280-304 lykkjur. Byrjið umferð við aðra hlið á stykki – mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi og haldið áfram með mynstri frá berustykki – mynstureining (A.4) kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir ermum, en prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að hvorri hlið undir ermum og prjónið þær lykkjur sem eftir eru undir ermi með litnum ljós grár. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.5 alls 25-27-29-32-35-38 sinnum hringinn á berustykki. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár – sjá LEIÐBEININGAR-2. Prjónið þar til stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-40-44-52-56-60 lykkjur jafnt yfir = 240-256-276-308-336-364 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-64-72-80-84-88 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum ljós grár = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 5. af 8 nýjum lykkjum undir ermi (mitt undir ermi) og setjið 1 prjónamerki í 35.-37.-41.-45.-47.-49. lykkju í umferð (mitt á ermi). Prjónamerki mitt undir ermi á að nota þegar fækka á lykkjum undir ermi og prjónamerkið mitt á ermi á að nota til að telja út hvar mynstrið á að byrja. Byrjið umferð við prjónamerki mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki – mynstureining (A.4) kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er mitt undir ermi og prjónið þær lykkjur sem eftir eru undir ermi með litnum ljós grár. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.5 – teljið út frá miðjulykkju á ermi hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi – lykkja með prjónamerki í á að passa við lykkju merkta sem miðjulykkja í mynsturteikningu. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár – sjá LEIÐBEININGAR-2. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-4-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 7-8-11-14-15-16 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 34-33-32-30-29-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-10-12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 64-64-68-72-72-76 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 41-40-39-37-36-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #christmastimesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.