Bibi skrifaði:
Compared to (for example) the pattern "Foggy Autumn" (also in the yarn Air) the measures is a tiny bit smaller, but the quantity yarn for this pattern (Early Morning Mist) is more than double! (Size S Foggy Autumn = 250 g, Early Morning Mist = 650 g)
25.10.2022 - 18:59DROPS Design svaraði:
Hej Bibi, vi skal se på garnforbruget, så kommer vi tilbage med en rettelse. Tak for info :)
26.10.2022 - 08:27
Bibi skrifaði:
I have to agree with some of the above in questioning the quantity of yarn in this pattern: is the quantity really right? It differs quite a lot from patterns like it.
23.10.2022 - 14:59DROPS Design svaraði:
Hej Bibi, hvilken opskrift sammenligner du med? Har du sammenlignet med de samme mål (målene finder du i måleskitsen nederst i opskriften)
25.10.2022 - 13:44
Ula skrifaði:
Czy waga wloczki jest prawna?
22.10.2022 - 11:08DROPS Design svaraði:
Witaj Ulu, moim zdaniem włóczki jest za dużo na ten sweter. Poza tym jest więcej podobnych pytań pod wzorem. Wysłałam zapytanie. Prawdopodobnie pojawi się korekta do wzoru (sprawdzaj na dole wzoru, pod opisem). Pozdrawiamy!
24.10.2022 - 09:01
Renata Del Sal skrifaði:
Siete sicuri che la quantità di filato indicata sia esatta?
21.10.2022 - 16:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Renata, ci sono state altre segnalazioni in merito: abbiamo chiesto al settore design di effettuare una verifica. Buon lavoro!
25.10.2022 - 20:02
Renate skrifaði:
Stimmt die Mengenangabe für AIR? Für die meisten Pullis braucht man in Größe M zwischen 300 und 400 Gramm, hier ist es das Doppelte???
21.10.2022 - 12:01DROPS Design svaraði:
Liebe Renate, danke für den Hinweis, die Garnmenge wird korrigiert, in M braucht man nur 350 g DROPS Air. Viel Spaß beim stricken!
26.10.2022 - 14:32
Karin skrifaði:
Schön, für einen kalten Wintertag.
07.08.2022 - 20:28
Agnete Lerdahl skrifaði:
Comfy snow
07.08.2022 - 14:51
Early Moorning Mist#earlymoorningmistsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð á undan / eftir 1 lykkju í sléttprjóni (lykkja með merki í). Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki þegar prjónað er frá réttu / á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki þegar prjónað er frá röngu. Aukið út fyrir ermar á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki þega prjónað er frá réttu / á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki þegar prjónað er frá röngu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig: Á UNDAN MERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Uppslátturinn er prjónaður frá réttu þannig: Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með DROPS Air. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 13 cm. Í næstu umferð eru sett 4 merki í stykkið, þetta er gert jafnframt því sem aukið er út um 4 lykkjur í umferð eins og útskýrt er að neðan – merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu: Prjónið 10-12-12-14-14-16 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, prjónið 21-23-25-27-29-31 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir (framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, prjónið slétt yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan. Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. merki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 4 lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. merki (hægir hlið í hálsmáli að framan – það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. merki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá réttu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. merki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 3. merki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: = 124-128-132-136-140-144 lykkjur. Nú er prjónað hringinn yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ S, M, L og XL: Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki og ermum (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með merki í) í 2. hverri umferð alls 2-8-10-11 sinnum = 140-192-212-224 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-15-14-16 sinnum á fram- og bakstykki (9-7-7-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 24-27-28-31 sinnum á fram- og bakstykki og 15-19-21-23 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 248-280-296-320 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXL og XXXL: Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri umferð á fram- og bakstykki 2-6 sinnum og í 2. hverri umferð á ermum 1-3 sinnum = 152-180 lykkjur. Aukið síðan út á fram- og bakstykki og ermum í 2. hverri umferð (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með merki í) alls 10-7 sinnum = 232-236 sinnum. Haldið áfram í sléttprjóni og með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í 2. hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-22 sinnum á fram- og bakstykki (9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 34-39 sinnum á fram- og bakstykki og 24-25 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 340-368 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 248-280-296-320-340-368 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm mælt mitt að framan eftir stroff í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 37-42-43-48-51-58 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 75-83-87-95-103-115 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 38-41-44-47-52-57 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-206-226-250 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-22-22-26-26-34 lykkjur jafnt yfir = 180-200-212-232-252-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 49-57-61-65-67-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-63-69-73-77-79 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota merkiþráðinn síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7-4-3-2½-2-2 cm millibili alls 5-8-10-11-12-12 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 39-38-36-35-33-31 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki og festið með 4 punktum með því að sauma það niður með spori í hverja laskalínu. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #earlymoorningmistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.