Ilsemarie skrifaði:
DROPS 237-28 DROPS Design: Modell ab-132 Wird der ganze Pullover kraus rechts gestrickt? Werden die Rippen in den ersten 10 cm Rippen, laut Diagramm A.1 gestrickt und dabei nur die rechten Maschen verschränkt (in der Rückreihe links verschränkt) und die linken Maschen nicht verschränkt gestrickt? Vielen Dank und liebe Grüße, Ilsemarie
26.11.2022 - 22:50
Veerle Melkebeek skrifaði:
Beste, mijn stekenpatroon met naald 5 klopt. Dwz ongeveer 10 cm in de lengte voor 14 steken. Het achterpand wordt voor maat M opgezet met 95 steken. Dit geeft met de opgegeven stekenverhouding een berekende breedte van 68 cm (95/14 * 10) - een breedte die ik na 6 rijen boord te breien ook bekom. Dit klopt niet met de opgegeven breedte in de tekening voor maat M, nl. slechts 49 cm. Vanwaar dit verschil ? Bedankt alvast om mij verder te helpen. Veerle
17.11.2022 - 15:08DROPS Design svaraði:
Dag Veerle,
Na het breien van de boordsteek, minder je steken en brei je verder in tricotsteek met 69 steken. Dit komt overeen met ongeveer 49 cm in de breedte.
06.01.2023 - 19:28
Veerle skrifaði:
Ik begrijp niet waarom er in de eerste rij na de 10cm boordsteek met een behoorlijk aantal steken geminderd wordt. Dat is toch niet op het patroon te zien ? Wat is de reden ? Bedankt voor de toelichting !
03.11.2022 - 22:26DROPS Design svaraði:
Dag Veerle,
Dat is om ervoor te zorgen dat de boord het werk niet samentrekt, maar dat het werk a.h.w. recht doorloopt.
05.11.2022 - 14:16
Patricia Monsghan skrifaði:
Lovely calrdigsn, I have not knitted for a while and the most yarn I used was double knitting, how/or which if your yarns is closest to double knitting. (Or 10 ply). Thakyou
11.10.2022 - 22:10
Karin skrifaði:
Schöne Kuscheljacke.
07.08.2022 - 20:43
Snuggly Hug#snugglyhugcardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með klauf í hliðum, v-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 237-28 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermi): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið 4. og 5. lykkju frá kanti brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 10, 15, 21 og 27 cm S: 10, 16, 22 og 28 cm M: 10, 16, 22 og 29 cm L: 10, 16, 23 og 30 cm XL: 10, 17, 24 og 31 cm XXL: 10, 17, 24 og 32 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að ermakúpu, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka. Öll stykkin eru prjónuð neðan frá og upp. Frágangur á peysu er eins og útskýrt er í uppskrift. BAKSTYKKI: Fitjið upp 87-95-103-111-121-131 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm – endið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 24-26-29-31-34-36 lykkjur jafnt yfir = 63-69-74-80-87-95 lykkjur. Í næstu tveimur umferðum er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar (= kantlykkjur fyrir saum) = 65-71-76-82-89-97 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið – fyrir frágang á ermum = 67-73-78-84-91-99 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, prjónið kant í hálsmáli þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 20-23-24-27-29-33 lykkjur sléttprjón, 25-25-28-28-31-31 lykkjur A.1, sléttprjón yfir næstu 20-23-24-27-29-33 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram í 3 cm þar til stykki mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm. Nú eru felldar af miðju 11-11-14-14-17-17 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 28-31-32-35-37-41 lykkjur. Prjónið vinstri öxl með 1 kantlykkju og 6 lykkjum í A.1 við hálsmál, sléttprjón yfir næstu lykkjur og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hægri öxl alveg eins. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 49-55-59-63-67-71 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 svo að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 6. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 6 lykkjur A.1 (= 7 lykkjur fyrir kant að framan), 41-47-51-55-59-63 lykkjur sléttprjón – jafnframt er fækkað um 13-16-17-18-19-19 lykkjur jafnt yfir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 36-39-42-45-48-52 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Fitjið upp 1 nýja lykkju, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, 6 lykkjur A.1 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 37-40-43-46-49-53 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan eins og áður mitt að framan og 1 kantlykkju garðaprjón að hlið. Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 7 lykkjur í A.1, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Prjónið út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-2-2-2-2 cm millibili alls 10-10-12-12-13-13 sinnum – jafnframt þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 1 kantlykkju í hlið sem er notuð við frágang. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli eru 28-31-32-35-37-41 lykkjur eftir á öxl. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 49-55-59-63-67-71 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 svo að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 41-47-51-55-59-63 lykkjur sléttprjón – jafnframt er fækkað um 13-16-17-18-19-19 lykkjur jafnt yfir, 6 lykkjur A.1 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 36-39-42-45-48-52 lykkjur. Í næstu umferð er prjónuð 1 kantlykkja í garðaprjóni, 6 lykkjur A.1, sléttprjón yfir næstu lykkjur og að lokum er fitjuð upp 1 ný lykkja = 37-40-43-46-49-53 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan eins og áður við miðju að framan og 1 kantlykkju garðaprjón að hlið. Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli frá réttu þannig: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 6 lykkjur A.1 eins og áður og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-2-2-2-2 cm millibili alls 10-10-12-12-13-13 sinnum – jafnframt þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fitjið upp 1 kantlykkju í hlið sem er notuð við frágang. Eftir allar úrtöku fyrir v-hálsmáli eru 28-31-32-35-37-41 lykkjur eftir á öxl. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 38-40-42-44-44-46 lykkjur á sokkaprjóna 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff eftir A.1 í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í umferð = 34-36-38-40-40-42 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8-8-7-11-7-8 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili, alls 12-13-13-14-15-15 sinnum = 58-62-64-68-70-72 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 43-43-42-41-40-38 cm. Í næstu umferð eru felldar af 7 miðjulykkjur mitt undir ermi. Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka. Nú er fellt af fyrir ermakúpu þannig: Fellið af 3 lykkjur í byrjun á hverri umferð þar til stykkið mælist ca 47-47-46-45-44-42 cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermakúpu. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður að stroffi innan við 1 kantlykkju (= 10 cm klauf í hvorri hlið). |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snugglyhugcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.