DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Country Spice

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 237-19
DROPS Design: Mynstur ai-417
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 35, leir

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmál er prjónaður í hring á stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Síðan er prjónuð upphækkun aftan í hnakka – upphækkunin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84-86-90-94-96-100 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-18-18-22-24-20 lykkjur jafnt yfir = 104-104-108-116-120-120 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan og 1 prjónamerki eftir 52-52-54-58-60-60 lykkjur = mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er mælt frá þar sem prjónamerki var sett í við miðju að framan. Prjónamerkin eru einnig notuð til að telja út að hlið hvar mynstrið á að byrja.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum er sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti.
Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 18-18-19-19-20-20 lykkjur (½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Annað prjónamerki: Teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur á eftir 1. prjónamerki (axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið 36-36-38-38-40-40 lykkjur á eftir 2. prjónamerki (framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur eftir 3. prjónamerki (axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Það eru 18-18-19-19-20-20 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki.
Látið 4 prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.
Nú er prjónuð upphækkun aftan í hnakka eins og útskýrt er að neðan.

UPPHÆKKUN:
Öll upphækkunin er prjónuð í sléttprjóni.
Byrjið mitt að aftan, prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 16-16-18-18-20-20 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 24-24-27-27-30-30 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 32-32-36-36-40-40 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 40-40-45-45-50-50 lykkjur slétt – að auki er aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 48-48-54-54-60-60 lykkjur brugðið – að auki er aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. prjónamerki og 1 lykkju á UNDAN 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU (útauknar lykkjur koma sem viðbót við lykkjufjöldann í upphækkun), snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka að miðju að aftan – að auki er aukið út um 1 lykkju á EFTIR 4. prjónamerki, klippið þráðinn. Nú hefur verið aukið út um 2 lykkjur á undan 1. prjónamerki og 2 lykkjur á eftir 4. prjónamerki (séð frá réttu), þ.e.a.s. það eru 4 lykkjur fleiri á bakstykki en á framstykki.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir axlarsæti. JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir axlarsæti, prjónið mynstur á framstykki og bakstykki. Lestu kaflann um AXLARSÆTI og MYNSTUR eins og útskýrt er að neðan, áður en þú prjónar áfram!

AXLARSÆTI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna – umferðin byrjar eftir 1. prjónamerki.
Í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki og aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Haldið svona áfram hringinn og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 16-18-18-18-20-20 sinnum. Síðan eru prjónaðar 2 umferðir þar sem einungis er aukið út í hvorri hlið á framstykki, þ.e.a.s. aukið út á EFTIR 2. prjónamerki og á UNDAN 3. prjónamerki = 176-184-188-196-208-208 lykkjur í umferð (16-16-16-20-20-20 lykkjur á hvorri öxl og 72-76-78-78-84-84 lykkjur á framstykki/bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-9-9-9-10-10 cm frá þar sem prjónamerkið var sett mitt að framan. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

MYNSTUR:
Þegar aukið hefur verið út um 4 umferðir í sléttprjóni á eftir kanti í hálsmáli og upphækkun, byrjar mynstrið.
A.1 er einungis prjónað á framstykki og bakstykki. Á ermum er prjónað sléttprjón.
Þ.e.a.s. prjónið sléttprjón yfir axlalykkjur, á framstykki en byrjun á mynstri talið út frá prjónamerki mitt að framan – sjá tákn í A.1 sem merkir miðju að framan/miðju að aftan, teljið út frá hlið eins langt og hægt er að útaukningu fyrir axlarsæti og byrjið mynstrið.
ATH: Það er fallegast ef hægt er að koma í veg fyrir að hafa «hnútamynstur» alveg við útaukningu fyrir axlarsæti, skiptið e.t.v. þessum lykkjum út og prjónið sléttprjón, prjónið A.1 eins langt og hægt er við útaukningu fyrir axlarsæti í hinni hliðinni og prjónið síðustu lykkjur í sléttprjóni þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið, prjónið sléttprjón yfir axlalykkjurnar og prjónið mynstur á bakstykki alveg eins og á framstykki. Haldið svona áfram.
Útauknar lykkjur frá útaukningu á axlarsæti og síðari útaukningu eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, en stillið af að það komi ekki «hnútamynstur» alveg við útaukningu.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Þegar útaukning fyrir axlarsæti er lokið, aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar í næstu umferð þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU!
Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-13-15-13-13-10 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-2-0-0-0-0 sinnum = 236-244-248-248-260-248 lykkjur (haldið áfram að telja út í umferð í A.1 þar sem lykkjum hefur ekki verið fækkað og þetta á síðan við um allan lykkjufjölda sem gefinn er upp eins langt og A.1 er prjónað).
Stykkið mælist ca 20-22-23-21-22-19 cm frá þar sem prjónamerki var sett í framstykkið. Síðan er aukið út á berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu fyrir ermum, þannig að hvert og eitt þessara 4 prjónamerkja sitji í ystu lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Það eru 72-76-78-78-84-84 lykkjur á framstykki/bakstykki meðtaldar lykkjur með prjónamerki í og 46-46-46-46-46-40 lykkjur á hvorri ermi.
Í næstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverju og einu af þessum 4 lykkjum með prjónamerki í.
Nú eru lykkjur auknar út á framstykki, bakstykki og á báðum ermum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 á framstykki/bakstykki og í sléttprjóni á ermum.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 0-0-1-3-5-12 sinnum og síðan í hverri umferð alls 1-2-3-5-3-0 sinnum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 244-260-280-312-324-344 lykkjur í umferð.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 21-23-25-26-28-30 cm frá þar sem prjónamerkin voru sett í framstykkið og ca 26-28-30-32-34-36 cm frá öxl.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 48-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi (allar lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis), fitjið upp 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 74-80-86-94-100-108 lykkjur (framstykki), setjið næstu 48-50-54-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi (allar lykkjur á milli 3. og 4. prjónamerkis), fitjið upp 6-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóni (í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 74-80-86-94-100-108 lykkjur (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-176-192-208-224-244 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp í byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón fram að prjónamerki – umferðin byrjar nú hér.
Haldið áfram með mynstur hringinn eins og áður. ATH. Þær 4-4-4-4-4-6 lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri undir hvorri ermi, prjónast í sléttprjóni.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 21 cm frá skiptingu í öllum stærðum – endið eftir 6. eða 12. umferð í A.1.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af.
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-50-54-62-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-10-10-12-14 lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 8-6-4-2½-2½-2 cm millibili alls 4-5-7-10-11-12 sinnum = 46-48-50-52-52-54 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 33-32-31-30-29-27 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 38-37-36-35-34-32 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = engin lykkja, farðu áfram í næstu rúðu í mynsturteikningu
symbols = löng lykkja: Stingið prjóninum inn í gegnum stykkið á milli úrtöku frá 2 umferð að neðan. Sækið þráðinn og dragið þráðinn með til baka að réttu á stykki – passið uppá að þráðurinn sé dreginn eins langt og hægt er, án þess að draga stykkið saman
symbols = mitt að framan / mitt að aftan
symbols = prjónstefna
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning á ermum
symbols = útaukning á berustykki
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Jules wrote:

Thank you. Also: possible to do the back in stock. stitch? I.E: would gauge be affected? thx for your patience 😊.

29.02.2024 - 23:55

DROPS Design answered:

Dear Jules, just check first that your gauge would be the same in pattern and in stocking stitch by knitting a swatch. Happy knitting!

01.03.2024 - 08:23

country flag Jeannie Fairfax wrote:

Please, EXPLAIN: "NOTE! It is best to avoid a knot pattern up to saddle shoulder increase, replace this stitches with stocking stitch if needed, work A.1 as far as you can towards saddle shoulder increase in the other side, and work the last stitches in stocking stitch so that pattern begins and ends the same in each side, work stocking stitch over shoulder stitches, and work pattern on back piece the same way as on front piece. Continue like this."

29.02.2024 - 19:53

DROPS Design answered:

Dear Jeannie, the knot pattern (A.1) may become more irregular or difficult to manage once you start increasing for the saddle shoulders. Therefore, at that point, instead of working A.1 over the saddle shoulder stitches you work in stocking stitch. In the meantime, continue working A.1 over the back piece as before. Happy knitting!

29.02.2024 - 22:37

country flag Ling wrote:

Ich verstehe das Muster nicht. Wie kann ich das Muster von beiden Seiten symmetrisch stricken, wenn die vordere Mitte in dem Muster gar nicht in dem Mitte des Musters ist? Ich werde immer bei der rechten Seite der Mitte 6+ 8x *während bei der linken Seite der Mitte immer 2+8x *

14.02.2024 - 00:42

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ling, in diese Lektion wird erklärt, wie man ein Muster in der Mitte platziert; hier soll die Masche mit dem Dreieck in A.1 die mittlere Masche am Vorder- sowie am Rückenteil sein. Viel Spaß beim stricken!

14.02.2024 - 08:23

country flag Maria Vigano' wrote:

Buonasera. E' possibile aggiungere in questo modello il rialzo sul dietro del collo per migliorare la vestibilità? e in caso positivo, seguendo quale schema? Grazie per l'attenzione

17.11.2023 - 21:55

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, può apportare le modifiche che vuole e può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

19.11.2023 - 19:14

country flag Diana Stampe wrote:

Hej med jer 🙂 Jeg er blevet færdig med denne trøje og syntes, at den er rigtig fin. Desværre er der kommet "riller" i ærmerne - jeg gætter på, at det er pga strømpepindene. Kan jeg må nogen måder redde trøjen, så den kan bruges? På forhånd tak og ha en dejlig dag, Diana

17.09.2023 - 16:34

DROPS Design answered:

Hei Diana. Tenker du "riller" nedover ermene der hvor man bytter fra den ene pinnen til den andre? Disse vil forsvinne etter en stund/ved bruk. Evnt kan du strekke og dra litt forsiktig i ermene eller vaske genseren (etter vaskeanvisningen). mvh DROPS Design

26.09.2023 - 11:44

country flag Fionuala wrote:

Hi, I'm making the medium size of this sweater and I wonder if there's a typo in the Sleeve Increase section? The pattern says to increase 1 stitch at each end of the sleeve 13 times. This should result in an additional 26 stitches which, when added to the original 16 stitches, comes to 42 stitches. However, in the next section, Yoke Increase, the pattern states that there should be 46 stitches for the sleeve before any further shaping is worked. Can you advise, please?

26.08.2023 - 11:30

DROPS Design answered:

Dear Fionuala, after the shoulder you should have 16 stitches. After that, you increase every 2nd round 2 stitches on each sleeve 13 times and 2 stitches every round twice. So you will increase 30 stitches. 30 + 16 = 46 stitches. Happy knitting!

28.08.2023 - 00:35

country flag Renate wrote:

Ich verstehe das Muster nicht. Woher kommen in der 3. Reihe die beiden rechten Maschen zwischen den tiefer gestochenen Stern-Maschen? In der 2. Reihe sind die darunterlegen Maschen als nicht vorhanden markiert, da sie ja durch die beiden Abnahmen verschwunden sind. Aber wo muss ich einstechen, um dann daraus wieder 2 rechte Maschen zu holen? Vielen Dank im Voraus für Ihre Hilfe!

16.11.2022 - 22:05

DROPS Design answered:

Liebe Renate, vielleicht kann Ihnen dieses Video helfen? Es zeigt, wie man so ein Muster strickt (beachten Sie aber, das Diagram wie im Pullover zu stricken, Video ist nur die Technikk). Viel Spaß beim stricken!

17.11.2022 - 10:07

country flag Melanie wrote:

Hi, I think the pattern is incorrect. The increase stitches for the saddle shoulder, on the right side, after marker, says pick up from the back, your video clip, shows the front!!!!

25.10.2022 - 21:08

country flag Karen Beard wrote:

I am an experienced knitter but this pattern ( and another Drops pattern I tried) are completely incomprehensible. I see it is translated into English from Norwegian. With respect, the translation has resulted in complete confusion on my part. Thank you for trying but I won’t be attempting any more of your patterns.

11.10.2022 - 21:22

country flag Katarzyna wrote:

Super 🥰

06.08.2022 - 11:17