Ann Carlsson skrifaði:
Jag vill påpeka att maskorna inte stämmer för stl L när markörerna skall sättas. 18+14+36+14+18 =100 Inte 104, det finns således 23 maskor kvar före mitt markeringar och inte 18….eller?
28.08.2026 - 21:49DROPS Design svaraði:
Hei Ann. Jo, det stemmer. I oppskriften står det at man skal sette merkene i masken, altså: Tell 18 masker (halve bakstykket), sett 1 merke i neste maske, tell 14 masker (erme), sett 1 merke i neste maske, tell 36 masker (forstykket), sett 1 merke i neste maske, tell 14 masker (erme), sett 1 merke i neste maske, det gjenstår nå 18 masker på pinnen (halve bakstykke) = 18+1+14+1+36+1+14+1+18 = 104 masker. mvh DROPS Design
10.09.2026 - 14:48
Þórunn skrifaði:
Hvar finn ég uppskriftina?
21.08.2026 - 23:06DROPS Design svaraði:
Blessuð Þórunn. Þú finnur uppskriftina inni á garnstudio.com
23.08.2026 - 10:53
Jacquelyn skrifaði:
I am making the Foggy Autumn Cardigan and have complete all of the stitches for the neckband. However, I can not figure out how tojoin the neckband together. I watched the video but the neck in the video looks like it is knitted in the round and there is no sound. I am completely lost. How long should my circular cable be to make this work? What side should my working yarn me on? Help!!
21.08.2026 - 21:34DROPS Design svaraði:
Dear Jacquelyn just work as shown in the video, ie knit every other stitch together with every other stitch picked up from the cast on edge; the length of the circular needle depends on your number of stitches, the needle needs to be shorter than the circumference of piece worked, if it's longer you can then use the magic loop technique. Happy knitting!
24.08.2026 - 07:45
Hrefna skrifaði:
Á hvaða prjónastærð á að gera prufu fyrir uppgefna prjónafestu
06.07.2026 - 13:27DROPS Design svaraði:
Blessuð Hrefna. Þú gerir prjónfestu á prjón 5,5 sama grófleika af prjóni sem peysan er prjónuð með. Stroffin eru oftast prjónuð með fínni prjónum. Gangi þér vel.
14.07.2026 - 11:41
Angela skrifaði:
Grazie per l'aiuto e per la velocità di risposta.
02.07.2026 - 09:40
Angela skrifaði:
Vorrei realizzare questo bellissimo maglione ma vorrei lavoralo con i ferri lineari. Come potrei realizzarlo?
30.06.2026 - 21:31DROPS Design svaraði:
Buonasera Angela, può lavorarlo in piano con una maglia di vivagno ai lati per la cucitura. Buon lavoro!
01.07.2026 - 23:47
Jody Ellis skrifaði:
I just finished this jumper. Great, clear, easy pattern and quick knit with drops air. It’s being blocked as we speak🥰!
12.06.2026 - 02:21
Barbara skrifaði:
Buongiorno, sono una super principiante! Vorrei provare a realizzare Foggy Autumn con un filato che già possiedo che però prevede l'utilizzo di ferri nuemro 3,5. E' possibile?
02.06.2026 - 16:26DROPS Design svaraði:
Buonasera Barbara, deve lavorare con il filato e il numero di ferri che le permettono di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!
08.06.2026 - 23:01
Annejot Hoffman skrifaði:
Waar kan ik de matentabel vinden zoals borstwijdte, lengte etc. Ik weet niet welke maat ik moet breien. Het betreft een damestrui met raglanmouw.
24.05.2026 - 21:01DROPS Design svaraði:
Dag Annejot,
Helemaal onderaan het patroon vind je een maattekening.
27.05.2026 - 13:04
Marie skrifaði:
..oh je, gerade sehe ich es soll heißen 19 Mal 8 M zu nehmen… sorry, ich habe das x übersehen 🙈🤭
20.05.2026 - 12:53DROPS Design svaraði:
Keine Sorge! Viel Spaß beim Weiterstricken!
21.05.2026 - 08:38
Foggy Autumn#foggyautumnsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-34 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið að lykkju með merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með merki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við öll merkin (8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN lykkju með merki: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið vinstri prjóni í lykkjuna og setjið til baka yfir á vinstri prjón (þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn slétt (þ.e.a.s. uppslátturinn verður snúinn frá lykkju með merki). Á EFTIR lykkju með merki: Prjónið uppsláttinn snúinn slétt (þ.e.a.s. uppslátturinn frá lykkju með merki). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á viðum miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-81-87-90-93-96 lykkjur með DROPS Air yfir stuttan hringprjón 4 og hringprjón 5,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5,5 og haldið lykkjunum eftir á stuttum hringprjón 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff í hring (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 9 cm er það brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í sléttprjóni jafnframt sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5,5. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (fyrir miðju að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu merki! BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 14-15-17-10-11-14 lykkjur jafnt yfir = 92-96-104-100-104-100 lykkjur. Setjið nú 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Teljið 15-16-18-17-18-19 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 30-32-36-34-36-39 lykkjur (framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, nú eru eftir 15-16-18-17-18-20 lykkjur í umferð (hálft bakstykki). Prjónið nú sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 17-19-20-24-26-27 sinnum = 228-248-264-292-312-326 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið 34-37-39-43-47-49 lykkjur slétt, setjið næstu 46-50-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 68-74-78-86-94-99 lykkjur slétt, setjið næstu 46-50-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 34-37-39-43-47-50 lykkjur slétt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-164-176-192-212-222 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 24-24-24-25-25-25 cm frá skiptingunni, aukið út um 13-13-16-18-19-21 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 165-177-192-210-231-243 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-50-54-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 merkþráð á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4½-4-3-2-2-1½ cm millibili alls 7-8-10-13-14-14 sinnum = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Þegar ermin mælist 34-33-31-31-29-28 cm frá skiptingunni, aukið út um 5-6-7-7-5-6 lykkjur jafnt yfir = 45-48-51-51-51-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt) yfir allar lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist 8 cm. Ermin mælist ca 42-41-39-39-37-36 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #foggyautumnsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.