Jackie Andrews skrifaði:
Pattern please
23.05.2025 - 10:18
Tove Williksen Haug skrifaði:
Hei! Jeg strikka denne hundegenseren til mellompuddelen til dattera mi, den ble kjempefin. (Og kjempeartig å strikke!). Mener jeg har sett oppskrift i samme mønster til dame? Eller har jeg drømt? Mvh Tove
01.02.2025 - 23:49DROPS Design svaraði:
Hei Tove. Hyggelig å høre at du ble fornøyd med hundegenseren :) Vi har ikke helt den samme oppskriften til dame, men ta en titt på genserene i DROPS 205-18 og 243-27. De har det samme mønstret, men der går mønster over hele genseren. mvh DROPS Design
10.02.2025 - 09:27
Doris skrifaði:
Je suis rendu le dessous du ventre avez vous une photo ou je ne comprend pas les explications après la boutonnière et la suite
29.02.2024 - 16:25
Trine Støttrup skrifaði:
Jeg er startet på en hundeswester, men ksn ikke længere finde opskriften!! Den er strikket på rundkindede nr 6 2 rt og 2 vr, til arbejdet måler 20 cm. Så strikkes der en omgang ret og en omgang vrang. Lan du hjælpe?
16.01.2023 - 18:16
Tina Kristoffersen skrifaði:
Hej, Hunden på billedet er en Kleiner Münsterländer, som er større end en Cocker Spaniel. Kommer der en str. L til opskriften også?
09.10.2022 - 14:13DROPS Design svaraði:
Hei Tina. Det kommer nok dessverre ingen i str. L. Hunden på bildet var en valp da bildet ble tatt og den passet str. M. mvh DROPS Design
10.10.2022 - 15:54
Northbound#northbounddogsweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með maglitu mynstri. Stærð XS - M.
DROPS 233-17 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum frá röngu þannig: Frá röngu: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman og prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. ÚRTAKA: Frá réttu: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Frá röngu: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur snúið brugðið saman, prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið saman og prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón frá hálmáli og niður að opi fyrir framfætur. Lykkjur eru felldar af fyrir opi fyrir framfætur og stykkið er síðan prjónað fram og til baka. Þegar opi fyrir framfætur hefur verið gert, er prjónað band sem er fest niður með tölu í hlið á stykki. Teikning sýnir peysuna neðan frá. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 48-56-64 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Alaska í litnum grár. Prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 2-3-4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4, haldið áfram með stroffprjón eins og áður þar til stykkið mælist 4-6-8 cm frá uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á sokkaprjón / stuttan hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 8-16-24 lykkjur jafnt yfir = 56-72-88 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! HUNDAPEYSA: Prjónið mynsturteikningu A.1 hringinn. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina er fellt af fyrir opi fyrir framfætur þannig: Fellið af fyrstu 14-18-22 lykkjur í umferð og prjónið A.1 út umferðina = 42-54-66 lykkjur. Haldið áfram með A.1, en prjónið fyrstu 3 og síðustu 3 lykkjur með litnum grár í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og prjónið hinar lykkjur eins og áður. Þær lykkjur í garðaprjóni eru prjónaðar með litnum grár til loka. Haldið áfram með A.1 fram og til baka þar til A.1 hefur verið prjónað alls 3-4-5 sinnum á hæðina. Prjónið með litnum grár í sléttprjóni með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 13-21-28 cm frá uppfitjunarkanti. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 18-22-26 nýjar lykkjur á prjóni (band) = 60-76-92 lykkjur. Snúið stykki. Prjónið 21-24-29 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir og prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið svona fram og til baka þar til bandið mælist ca 2-2-2½ cm. Í næstu umferð frá röngu er fellt af fyrir 1 hnappagati – sjá HNAPPAGAT. Prjónið garðaprjón og sléttprjón þar til bandið mælist 4-4-5 cm. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 18-22-26 lykkjur (band) og prjónið út umferðina eins og áður = 42-54-66 lykkjur. Stykkið mælist ca 17-25-33 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 3 lykkjur í garðaprjóni eins og áður, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið í hverri umferð – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 7-9-9 sinnum í hvorri hlið = 28-36-48 lykkjur. Nú er prjónað stroff fram og til baka (fyrsta umferð er frá réttu): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff svona fram og til baka þar til stykkið mælist alls 28-38-49 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölu fyrir miðju í enda á bandinu. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northbounddogsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.