An skrifaði:
"als de meerderingen klaar zijn, ga dan verder in patroon zonder meerderingen tot een lengte van ...cm" Blijf ik nu wel steeds de twee raglansteken recht breien of gaan ze helemaal mee in het patroon van één recht, één averecht?
15.05.2025 - 09:56DROPS Design svaraði:
Dag An,
Je kunt de raglansteken door blijven breien tot de pas klaar is.
16.05.2025 - 19:20
Annick ESTEVE skrifaði:
Je ne suis pas sûre d'avoir bien compris votre réponse. Vous me confirmez bien qu'après les 2 mailles jersey séparées par le marqueur, je dois exécuter le diagramme? Merci pour votre réponse
30.01.2025 - 14:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Esteve, les lignes des raglans sont effectivement tricotées en jersey = ce sont 2 mailles endroit avec le marqueur entre les 2. Le diagramme va être ainsi tricoté entre ces mailles: par ex. 1 m raglan, 14 m point fantaisie pour la manche, 2 m raglan (le marqueur est entre les 2), 40-54 m point fantaisie pour le devant, 2 m raglan (le marqueur est entre les 2), 14 m point fantaisie pour la manche, 2 m raglan (le marqueur est entre les 2), 40-54 m point fantaisie pour le dois, et 1 m jersey (fin du tour); ainsi vous avez (en S-XXXL): 1+14+2+40-54+2+14+2+40-54+1=116 m en S et 144 m en XXXL. Bon tricot!
30.01.2025 - 15:42
Annick ESTEVE skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas du tout comment faire les augmentations concernant le raglan (augmenter 1 maille de chaque côté des 2 mailles endroit etc....) En suivant le diagramme il y aura forcement une maille envers sur 2 rangs. D'avance merci pour vos explications Cordialement Annick
29.01.2025 - 16:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Esteve, les 2 mailles de chacun des raglans (= 1 maille avant + 1 maille après chaque fil marqueur) doivent être tricotées à l'endroit (= en jersey, pas en A.1), et les augmentations des raglans vont se faire avant/après ces 2 mailles endroit. Bon tricot!
29.01.2025 - 16:33
Nicole skrifaði:
I'm not really understanding the texture pattern. For row 4 and 5 is it always knits over knits and purls over purls even when increasing in the raglan or does that alter what you do? Same with 5 and 6. Also should the 2 raglan stitches always be knitted or do we continue the texture pattern over those as well?
05.07.2024 - 18:13DROPS Design svaraði:
Dear Nicole, the raglan stitches (according to the description of the raglan increases are "2 knitted stitches in each transition between the body and sleeves ", increases should be done at both sides of these two stitches and the textured pattern should be knitted up to as close to these two stitches as possible. Happy Knitting!
06.07.2024 - 00:18
Elke skrifaði:
Nach den raglanzunahmen habe ich 412 Maschen auf der Nadel. Passen die alle auf eine kurze rundstrickkadel? Oder muss ich irgendwann von der kurzen zur langen rundstricknadel wechseln? Und wenn ja, wann? Vielen Dank für die Antwort. Elke
16.05.2023 - 15:13DROPS Design svaraði:
Liebe Elke, wechseln Sie für die längere Stricknadel, wenn es zuviele Maschen für die kurzere gibt. Viel Spaß beim stricken!
16.05.2023 - 16:05
Linda Björk Gunnarsdóttir skrifaði:
Daginn, ég er nýgræðingur að fara eftir uppskriftum og prjóna peysu. A1 - á að prjóna alltaf 3 sléttar umferðir á milli slétt og brugðið eða fyrsta umferð 3 og svo alltaf 6 umferðir sléttar og svo 4 umf. slétt/brugðið?
16.05.2023 - 10:14DROPS Design svaraði:
Blessuð Linda Björk. Þú prjónar fyrst 3 umferðir slétt og síðan slétt-brugðið í 4 umferðir (mundu bara að víxla sléttu og brugðnu lykkjunum eftir umferð 2) og svo 6 umferðir slétt á milli. Gangi þér vel.
16.05.2023 - 19:54
Patricia Olivia Fuchs skrifaði:
Hallo! Laut Skizze hat der Ärmel nach dem Aufteilen in Rumpf und Ärmel eine Breite von 23 cm (S), das wäre dann ein Umfang von 46 cm - richtig? Laut Strickanleitung soll dies 76 Ärmelmaschen insgesamt entsprechen. Bei der angegebenen Maschenprobe von 24x32 = 10x10 cm stimmen diese Angaben aber nicht. 76 Maschen sind in der Breite 31,6 cm, damit wäre der Ärmel aber nur 15,83 cm breit. Ich verstehe beim besten Willen nicht, wie sie da rechnen?
24.01.2023 - 15:41DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Fuchs, die 23 cm bei der Ärmel in S ist die Länge der Passe, dh vor der Verteilung - und nicht der Umfang von den Ärmeln. Umfang für die Ärmel ist: 66 stillgelegten Maschen bei der Verteilung + 10 Maschen aufgefassen = 76 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
24.01.2023 - 16:55
Dorit skrifaði:
Hej :-) Jeg er godt i gang med denne trøje, men hvorfor skal der tages ud før ribbort på både bul og ærmer ? Hvis man strikker nedefra tager man ikke ind de samme steder. Ved godt, at en ribbort trækker arbejdet sammen, men synes udtagning på ca. hver 6. pind er meget. VH Dorit
27.12.2022 - 12:58DROPS Design svaraði:
Hei Dorit. Det er for å få en penere overgang mellom bol/vrangbord og erme/vrangbord. Om man ikke ønsker å øke før vrangbord, kan man fint la være å gjøre det. Bare husk å ha et maskeantall der vrangborden vil stemme. mvh DROPS Design
02.01.2023 - 13:32
Paulien skrifaði:
Goedendag, Ik heb even uitleg nodig wat er wordt bedoelt met 33x de 2de steek meerderen. Als ik dat doe kom ik niet uit op 384 steken. Alvast bedankt. Mvg paulien
11.12.2022 - 19:44DROPS Design svaraði:
Dag Paulien,
Er staat dat er 33 keer gemeerderd moet worden op iedere 2e naald. Per naald meerder je 8 steken. Hierdoor kom je op 384 steken.
12.12.2022 - 20:45
Susanna skrifaði:
Hallo liebes Drops Team, ich stecke gerade bei der Raglanzunahme in A1 fest. Ich muss ja auch in den Musterrunden Zunahmen stricken. Wie füge ich diese Zunahmen in das Muster ein? Bei mir sind die rechten und linken Mädchen nicht versetzt, sondern auch übereinander. Das Diagramm lese ich immer von rechts nach links.
17.11.2022 - 15:16DROPS Design svaraði:
Liebe Susanna, die neuen Maschen am Anfang A.1 sollen wie die vorrige Maschen einen neuen Rapport gestrickt werden, und die neuen Maschen am Ende A.1 sollen wir die nächste Maschen einen neuen Rapport damit das Muster immer gleich wird (und sich beidseitig vergrössert). Viel Spaß beim stricken!
17.11.2022 - 16:28
Green Harmony#greenharmonysweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-23 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: AUKIÐ SVONA ÚT EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. AUKIÐ ÚT Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón. MÁL: Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, þar sem áferðin í A.1 kemur til með að draga stykkið aðeins saman þegar stykkið liggur flatt. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 128-132-136-144-148-156 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Nord. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 13 cm (kantur í hálsmáli er síðar brotinn saman tvöfaldur). Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 12 lykkjur jafnt yfir = 116-120-124-132-136-144 lykkjur. Skiptið yfir í stuttan hringprjón 3,5. BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð (á undan fyrstu lykkju), teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 42-44-46-50-52-56 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 42-44-46-50-52-56 lykkjur eftir í umferð (bakstykki). Setjið eitt prjónamerki ca mitt að aftan, berustykkið á síðar að mælast frá þessu prjónamerki. Prjónið A.1 berustykkið hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 28-33-36-39-43-48 sinnum = 340-384-412-444-480-528 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka, prjónið mynstur eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 23-25-26-28-30-32 cm frá prjónamerki mitt að aftan – lesið MÁL. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 3-2-2-3-4-6 lykkjur fram hjá 1. prjónamerki (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 66-78-84-88-94-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 104-114-122-134-146-164 lykkjur (framstykki), setjið næstu 66-78-84-88-94-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 101-112-120-131-142-158 lykkjur (bakstykki). Klippið þráðinn. Síðan er fram- og bakstykkið og ermar prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 228-248-268-292-316-352 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í aðra hlið á stykkinu, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram hringinn með A.1 eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist ca 26-26-27-27-27-27 cm frá skiptingu – stillið af að prjónaðar séu minnst 3 umferðir í sléttprjóni á eftir síðustu rönd með áferðamynstri. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 36-40-44-44-48-48 lykkjur jafnt yfir í umferð = 264-288-312-336-364-400 lykkjur. Skiptið yfir í stuttan hringprjón 2,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 66-78-84-88-94-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 76-88-96-100-106-112 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem prjónaðar voru upp. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið hringinn í A.1 eins og áður, en 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki er prjónað í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 7-11-15-16-18-19 sinnum á hæðina = 62-66-66-68-70-74 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-35-34-32-31-29 cm frá skiptingu – stillið af að prjónaðar séu minnst 3 umferðir í sléttprjóni á eftir fyrri rönd með áferðamynstri. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 10-10-10-12-10-10 lykkjur jafnt yfir = 72-76-76-80-80-84 lykkjur. Skiptið yfir í sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (2 lykkjur, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 40-39-38-36-35-33 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innan verðu á stykki. Saumið nokkur spor innan í stykkið til að halda stroffinu á réttum stað. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greenharmonysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.