DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn Ballade

Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-26
DROPS Design: Mynstur st-027
Garnflokkur A + B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 18, gulrótarkaka
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-125-150-150 g litur 35, súkkulaði

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (8 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður, áður en stykkið skiptist og prjónað er fram og til baka fyrir klauf. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón.

HÁR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 78-82-84-86-90-94 lykkjur með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir) á stuttan hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 8 cm.

Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-12-10-18-22 lykkjur jafnt yfir = 84-88-96-96-108-116 lykkjur.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.

Teljið 13-14-16-16-19-21 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 26-28-32-32-38-42 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 13-14-16-16-19-21 lykkjur eftir í umferð (hálft bakstykki). Klippið þráðinn.

HÁLSMÁL:
Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan.
Byrjið frá réttu, 3 lykkjur á undan 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan ef þú hugsar um þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki (hægri hlið á hálsmáli að framan).
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 11 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki.
Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 11 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki – munið eftir útaukning fyrir laskalínu.
Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki. Klippið þráðinn.
Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Byrjið mitt að aftan og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 10-13-14-16-20-21 sinnum (meðtaldar útaukningar á stuttu umferðunum). Aukið síðan út í 4. hverri umferð 6-6-6-6-5-5 sinnum = 212-240-256-272-308-324 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm mitt að framan (mælt eftir hálsmál). Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 32-36-39-41-47-50 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 42-48-50-54-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-72-78-82-94-100 lykkjur (framstykki), setjið næstu 42-48-50-54-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 32-36-39-41-47-50 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 140-156-168-180-204-220 lykkjur. Byrjið umferð mitt á milli nýrra lykkja undir annarri erminni og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 25 cm frá skiptingu. Haldið eftir fyrstu 70-78-84-90-102-110 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 70-78-84-90-102-110 lykkjur á þráð. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 5-5-5-7-7-7 lykkjur jafnt yfir = 75-83-89-97-109-117 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram með stroff í 3 cm. Fellið af. Setjið lykkju af þræði á hringprjón 4 og prjónið á sama hátt.

ERMI:
Setjið 42-48-50-54-60-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-54-56-62-68-72 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 10-6-6-3½-3-2½ cm millibili alls 3-5-5-7-8-9 sinnum = 42-44-46-48-52-54 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 37-36-34-32-31-29 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 40-39-37-35-34-32 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Emma wrote:

Hello :) this is my first top-down sweater and I'm stuck at the end of the high collar, I finished it and I am supposed to start the neck line but I'm a bit confused. so now my work (collar) is on my needles (I used dpn instead), I cut the yarn and what am I supposed to do? do I take out new needles to work the short rows? do they have to be circular needles or straight ones? Also, I'm planning on using a different colour for the ribbing, at what point do I switch to the main one?

09.09.2023 - 14:54

DROPS Design answered:

Dear Emma, it's more confortable to use circular needles to work. You cut the yarn so that you can start at a previous stitch in the round. You rejoin the yarn 3 stitches before the 3rd marker and start working the short rows for the neck. Happy knitting!

10.09.2023 - 23:22

country flag Annick wrote:

Bonjour Je viens de commander cette laine Réf 18( idem que le modèle) car je voulais réaliser un ouvrage TWEED or je suis déçue car la laine reçue ( dyelot 218018 ) ne correspond pas à une laine tweed . Merci de faire remonter la remarque à votre fournisseur/ fabricant. Merci

13.03.2023 - 10:52

DROPS Design answered:

Bonjour Annick, nous sommes désolés de lire que vous n'avez pas aimé cette laine, merci de bien vouloir remonter toutes les informations utiles à votre magasin qui pourra fort probablement vous aider et nous transmettra vos retours. Bon tricot!

13.03.2023 - 13:33

country flag Federica wrote:

Buona sera, sto lavorando il maglione nella taglia L ma ho riscontrato un problema: ho montato le 84 maglie, finito lo schema collo alto inizia il primo aumento, per la taglia L sono 12 maglie aumentate, per un totale di 96. Quando metto i segnapunti però rimangono 4 maglie fuori, perché secondo i vostri conti 16+14+32+14+16 il totale è 92. Potete correggere l’errore per favore, grazie!

15.02.2023 - 20:31

DROPS Design answered:

Buonasera Federica, non ci sono errori nella spiegazione, è sicura di aver inserito i segnapunti NELLA maglia e non TRA le maglie? Buon lavoro!

16.02.2023 - 19:14

country flag Adinda wrote:

Lees de berichten over de draad in de steek te doen maar dan is dat toch de steek waar je vóór en ná moet meerderen? Dan klopt toch het aantal steken helaas echt niet. Helaas heb ik nu 4 steken te weinig in het pand en teveel in mouw. Heb het wel opgelost door snel in het pand te meerderen, maar voor onervaren breiers zal dit niet zo logisch zijn. Erg omslachtig beschreven, wijkt af van een normale beschrijving, daarom ging het fout en ben niet de enige lees ik

02.02.2023 - 22:04

country flag Rose wrote:

Bonjour, taille M - fin du col montant 88 m pourriez vous dire combien de mailles au total à la fin de l'encolure et avant l'empiècement ? car je n'arrive pas à vos chiffres 212-240-256-272-308-324 mailles à la fin des augmentations de l'empiècement. merci

26.11.2022 - 20:32

DROPS Design answered:

Bonjour Rose, vous augmentez 8 mailles pour le raglan, à chaque tour d'augmentations, autrement dit: 13 fois tous les 2 tours (13x8=104); puis 6 x tous les 4 tours (=6x8=48), vous aviez 88 m +104+48=240 mailles. Bon tricot!

28.11.2022 - 09:32

country flag Asia wrote:

Hello, I would like to ask whether size XXXL is suitable for 125 cm in bust? If not, how to modify this pattern to fit my size?

22.11.2022 - 01:48

DROPS Design answered:

Dear Asia, you will find all finished measurements taken flat from side to side + for each size in the chart at the bottom of the pattern; compare a similar garment you have and like the shape to find out which size would match the best. Read more here. Happy knitting!

22.11.2022 - 10:19

country flag José wrote:

De markeerders zijn inderdaad tussen de steken geplaatst ipv IN de volgende steek. Dankjewel, ik kan weer verder.👍🏼

08.10.2022 - 16:57

country flag José wrote:

De verdeling van de steken na de meerdering klopt niet: er zijn 96 steken na het meerderen. De steken worden verdeeld: 16+14+32+14+16=92 steken. Hoe nu verder?

06.10.2022 - 21:44

DROPS Design answered:

Dag José,

Heb je de markeerdraden in de steken geplaatst (en niet tussen 2 steken)? Dit kan namelijk het verschil van 4 steken verklaren.

08.10.2022 - 16:37

country flag Pascale wrote:

De verdeling klopt niet: . Brei 1 naald recht en meerder 6-6-12-10-18-22 steken verdeeld = 84-88-96-96-108-116 steken. Voeg nu 4 markeerdraden in het werk zoals uitgelegd hieronder. Gebruik de markeerdraden bij het meerderen voor de raglan. Tel 13-14-16-16-19-21 steken (helft van het achterpand), voeg de 1e markeerdraad in de volgende steek, tel 14 steken (mouw), voeg de 2e markeerdraad in de volgende steek, tel 26-28-32-32-38-42 st Dit is in totaal 92 steken en geen 96

24.09.2022 - 09:39

country flag Cinzia Galli wrote:

Buongiorno sto lavorando questo modello ma non mi torna il n delle maglie: voi indicate per la taglia s 64 maglie davanti 42 maniche e64 per il dietro. Ma avendo lavorato i ferri accotciati per lo scollo , le maglie del dietro sono più di quelle del davanti almeno 10 in più. Cosa devo fare? Se faccio aumeenti solo sul raglan davanti mi verrà una gobba . Che fare? Grazie

22.09.2022 - 12:04

DROPS Design answered:

Buonasera Cinzia, alla fine degli aumenti per raglan ha ottenuto 212 maglie come indicato per la taglia S? Buon lavoro!

22.09.2022 - 16:17