DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Baby Merino yarn
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sage Twist

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli, köðlum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 237-31

#sagetwistsweater

DROPS Design: Mynstur bm-102
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-550-600 g litur 50, salvíugrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við mynsturteikningu A.1/A.2. Aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður í næstu umferð þannig:
Á UNDAN A.1/A.2:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Lykkjan snýr til hægri.
Á EFTIR A.1/A.2:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann. Lykkjan snýr til vinstri.
Aukið svona út hvoru megin við A.1/A.2, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 120-128-128-136-136-140 lykkjur með DROPS Baby Merino yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 2,5 sem haldið er saman. Dragið út stuttan hringprjón 3 og haldið eftir lykkjunum á stuttum hringprjóni 2,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm.
Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður, jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli, héðan er nú stykkið mælt.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú útaukningu þannig: Prjónið A.1, prjónið sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir næstu 10 lykkjur (14 lykkjur fyrir ermi), prjónið A.1, prjónið sléttprjón og aukið út um 6-4-6-4-6-8 lykkjur jafnt yfir næstu 22-26-26-30-30-34 lykkjur (28-30-32-34-36-42 lykkjur fyrir framstykki), prjónið A.1, prjónið sléttprjón og aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir næstu 10 lykkjur (14 lykkjur fyrir ermi), prjónið A.1, prjónið sléttprjón og aukið út um 6-4-6-4-6-8 lykkjur jafnt yfir næstu 22-26-26-30-30-34 lykkjur (28-30-32-34-36-42 lykkjur fyrir bakstykki) = 148-152-156-160-164-176 lykkjur.

Lestu næsta kafla áður en þú prjónar áfram!
Lestu LASKALÍNA í útskýringu að ofan og byrjið útaukningu í næstu umferð. JAFNFRAMT þegar mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina er mynsturteikning A.2 prjónuð yfir mynsturteikningu A.1.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Mismunandi er aukið út á ermum og framstykki/bakstykki þannig:
ERMAR:
Aukið út í annarri hverri umferð 10-12-10-20-30-40 sinnum, aukið síðan út í 4. hverri umferð 10-12-15-12-9-4 sinnum.
FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI:
Aukið út í annarri hverri umferð 24-27-31-40-49-54 sinnum, aukið síðan út í 4. hverri umferð 7-8-7-3-0-0 sinnum.

Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka eru 352-388-408-460-516-568 lykkjur í umferð. Á milli hverra A.2 eru 54-62-64-78-92-102 lykkjur fyrir hvorri ermi og 90-100-108-120-134-150 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki.
Nú er prjónað sléttprjón, mynstur án útaukninga og án þess að gera kaðla í A.2 (prjónið einungis slétt og brugðið eins og í mynsturteikningu) þar til stykkið mælist 25-27-28-30-32-34 cm frá eftir kanti í hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar (í miðju á A.2) þannig: Prjónið 8 lykkjur slétt (miðja á A.2), setjið næstu 70-78-80-94-108-118 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 12-12-14-14-16-16 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 106-116-124-136-150-166 lykkjur slétt (framstykki), setjið næstu 70-78-80-94-108-118 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 12-12-14-14-16-16 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 98-108-116-128-142-158 lykkjur slétt (bakstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig og stykkið er núna mælt héðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 236-256-276-300-332-364 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 19-19-20-20-20-20 cm frá skiptingu eða prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-20-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 252-272-296-324-360-392 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 70-78-80-94-108-118 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 12-12-14-14-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 82-90-94-108-124-134 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi. Sjá ÚRTAKA!
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-2-2 cm fækkið lykkjum mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
Fækkið lykkjum með 2½-2-1½-1-1-½ cm millibili alls 12-15-16-21-28 sinnum.
STÆRÐ XXXL:
Fækkið lykkjum til skiptis með ½ og 1 cm millibili alls 32 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
= 58-60-62-66-68-70 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 36-34-34-32-31-30 cm frá skiptingu eða prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir 4 cm að loka máli). Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 10-8-10-6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 68-68-72-72-76-80 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.11.2022
BERUSTYKKI:.. = 148-152-156-160-164-176 lykkjur.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt og prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt og prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS 237-31
Diagram for DROPS 237-31

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sagetwistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Lara skrifaði:

Könnten Sie mir bitte die Raglanzzunahmen genauer erklären? Ich verstehe den Rythmus nicht.

05.11.2023 - 12:15

DROPS Design svaraði:

Liebe Lara, die Raglanzunahmen werden zuerst in jeder 2. Runde gestrickt (= je 8 Maschen pro Zunahmenrunde) dann nehmen Sie für Rumpfteil in jeder 2. Runde weiter wie zuvor zu, aber gleichzeitig nehmen Sie nur in jeder 4. Runde für die Ärmel zu (es wird abwechslungsweise 4 und 8 Maschen zugenommen), dann nehmen Sie für Rumpf und Ärmel in jeder 4. Runde zu (= 8 Zunahmen), in einigen Größen wird es dann am Ende nur für Rumpfteil zugenommen nicht mehr bei den Ärmeln (= 4 Zunahmen). Viel Spaß beim stricken!

06.11.2023 - 08:32

country flag Karoline skrifaði:

Jeg skal til at opdele i ærme og forstykke og bagstykke. Skal alle opdelingerne finde sted i midten af snoningerne, eller skal alle fire stykker have en hel snoning i deres del? Føler at starten er svær at forstå, da jeg ikke ved om jeg skal starte omgangen i midten af en snoning også strikke 8 masker, eller jeg strikker de 8 masker hvorved man ender i midten af en snoning?

30.10.2023 - 22:48

DROPS Design svaraði:

Hej Karoline, de første 8 masker som strikkes - for at komme til midten af A.2 - kommer til at høre sammen med rygstykket, så du får samme antal masker på for og rygstykke :)

31.10.2023 - 09:11

country flag Wendy Hawkins skrifaði:

When starting 3rd size with 156 std then increasing 31x8 and 7x8 x=304+156 origins std ,this equals 460 but pattern says 408 ?

20.08.2023 - 19:27

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Hawkins, in this jumper, you won't increase on the same rhythm on body and sleeves, this means in 3rd size you increase for sleeves 4 sts 10 times on every 2nd round then 15 times on every 4th round (= 100 sts in total), at the same time you increase for body 4 sts 31 times on every other round and 7 times on every 4th round (=152 sts) so that you will increase either 8 sts on the round or only 4 sts (when increasing for body on every other round but for sleeves on every 4th round). And there are: 156+100+152=408 sts in total. Happy knitting!

21.08.2023 - 09:18

country flag Liv Spang skrifaði:

Jeg er begynder i sweaterstrik og strikker str. M men er i tvivl om hvordan jeg tager ud på ærmer og for-/bagstykke. Der står tag ud på hver 2. Omgang x antal gange og hver 4. omgang x antal gange men ikke hvor mange masker der tages ud hver gang eller hvor? Jeg regner mig til det er to masker hvert sted men skal de fordeles jævnt eller tages ud i start og slut af ærme og for-/bagstykke. Håber I kan hjælpe mig.

07.08.2023 - 15:11

DROPS Design svaraði:

Hej Liv, du tager ud til raglan ved at lave 1 omslag før og efter A.1/A.2, se øverst i opskriften hvor der står RAGLAN hvordan du strikker omslagene på næste pind :)

10.08.2023 - 14:31

country flag Tove KITTELSRUD skrifaði:

Jeg finner ikke noe om plaggets mål? (Sage Rwist)

30.07.2023 - 20:24

DROPS Design svaraði:

Hei Tove, Du finner en målskisse på bunn av sida. God fornøyelse!

31.07.2023 - 06:37

country flag Eva Pospisilova skrifaði:

Koľko je potreba priadze na tento pulover velkost M ?

29.06.2023 - 17:51

DROPS Design svaraði:

Dobrý den, Evo, údaje o spotřebě příze najdete v odstavci MATERIÁL hned v záhlaví u hlavní fotky modelu. Spotřeba pro jednotlivé velikosti je uváděna v tom pořadí, v jakém jsou označené velikosti pro M je to tedy vždy 2. číslo (a to platí i v návodu), takže potřebujete 400 g příze. Přeji pohodové pletení! Hana

30.06.2023 - 13:46

country flag Hegedűs Jánosné skrifaði:

Három napig agyaltam azon, hogy hol lesz a raglán szaporítás, a számok sehogyan sem jöttek ki, mire rájöttem, hogy a síma szemeken belüli széleken kell elvégezni! Gondolom sokunknak problémát jelentett, ezért írom a megjegyzésemet, hátha ezzel segítek másokon! Talán érdemes jelölőket tenni oda, ahova kerülnek a raglán szaporítások!

28.06.2023 - 09:18

country flag Deirdre O Carroll skrifaði:

How best to block item knitted in drops baby merino? Or would it be better to lightly iron?

06.06.2023 - 19:13

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs O Carroll, if you absolutely like to block your work, it might be easier to just moisten it (or wash it following carefully the instructions on label) and let it dry flat. Your DROPS store might have even more tips for you, they will share even per mail or telephone. Happy knitting!

07.06.2023 - 08:57

country flag Caro skrifaði:

Hallo, ich komme leider überhaupt nicht mit den Raglan Zunahmen zurecht. Stricke ich 2 Runden und nehme 8 maschen zu. Dann nach 4 Runden wieder. Dann wieder nach 2.... bis ich das dann 12x in der 2ten runde und 12x inder 4ten runde gemacht habe? Hoffe sie können mir helfen.

25.04.2023 - 22:05

DROPS Design svaraði:

Liebe Caro, die Zunahmen für den Rumpfteil und für die Ärmel werden gleichzeitig gestrickt, aber mit einem unterschiedlichen Rythmus, dh je nach der Größe werden Sie 8 Maschen (je 1 Masche am Vorder- + Rückenteil + Ärmel) und dann abewechslungsweise nur 4 M (wenn beim Rumpf in jeder 2. Reihe aber bei den Ärmeln in jeder 4. Reihe zugenommen wird) und 8 M zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

26.04.2023 - 08:40

country flag Marianne Langholm skrifaði:

Starter med 156= str l. Der er 4 reglan. 10×8=80 15×8=120 =356 For og bag, må være 4 udtag 31×4=124 7×4=28 =508. 100 for meget.

25.04.2023 - 17:08

DROPS Design svaraði:

Hej Marianne, du starter med 156 masker tager 4 masker ud på ærmerne 10 gange og 15 gange = 100 Tager 4 m ud på for-&bagstykke 31 gange og 7 gange = 152 = 408 masker :)

26.04.2023 - 07:23