Ingeborg skrifaði:
Zouden de benodigde hoeveelheden voor DROPS Snow kunnen worden gecontroleerd bij dit patroon? Het lijkt erop alsof dit veel te veel is (vergeleken met de hoeveelheid Wish) en een klant van ons heeft zo'n 13 bollen overgehouden. Alvast bedankt!
29.04.2025 - 11:37DROPS Design svaraði:
Dag Ingeborg,
Bedankt, het is doorgegeven aan de ontwerpafdeling om te controleren en eventueel aan te passen.
01.06.2025 - 17:04
Eliane Guillot skrifaði:
Bonjour, j'ai des difficultés avec le diagramme de ce modèle: dois-t-on tricoter : A2 et A3 tout le long ou bien répéter A3
04.12.2023 - 11:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guillot, vous tricotez 1 seule fois A.2 (après les mailles de bordure devant, vu sur l'endroit) et répétez ensuite A.3 jusqu'aux mailles de bordure devant. Bon tricot!
04.12.2023 - 16:16
Camilla skrifaði:
Hvordan kan det være, at der står 150 gram 10 burgunder og 100 gram 05 beige i opskriften til en cardigan i medium. Jeg har brugt 40 gram 10 burgunder og 45 gram 05 beige, det er alt! Nu står jeg med 3 nøgler garn, som jeg ikke kan bruge. Det skal vist ændres i opskriften. Jeg har strikket i over 45 år. Mvh. Camilla
13.09.2023 - 19:47
Claudia Frey skrifaði:
Ich verstehe nicht wie ich auf die 165 Maschen in der Passe komme. Pro markierte Reihe nehme ich doch nur 7 Maschen zu also 75+6*7=117. Wo kommen die zusätzlichen 48 Maschen her?
11.12.2022 - 21:51DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Frey, So stricken Sie die 75 M in S: 5 Blenden-Maschen, A.2 (= 5 Maschen), dann wiederholen Sie 15 Mal A.3 (= 4 M) und 5 Blenden-Maschen (5+5+(15x4)+5=75 M). Nehmen Sie im Diagram wie gezeichnet, es sind 10 M in jedem A.3 wenn Diagram fertig ist, und so haben Sie: 5+5+(15x10)+5=165 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
12.12.2022 - 10:07
Nerea skrifaði:
Gracias, había interpretado mal el esquema
08.10.2022 - 09:28
Nerea skrifaði:
En la primera fila del dibujo al final en lugar de quedar 5 puntos para la cenefa quedan 6. Qué se hace con ese punto que sobra?
05.10.2022 - 21:11DROPS Design svaraði:
Hola Nerea, la primera fila del dibujo se trabaja como sigue: 5 puntos de la cenefa (= A.1), A.2 (= 5 pts) y repetir A.3 (= 4 pts) hasta que queden 5 pts , trabajar 5 puntos de la cenefa (=A.1). El patrón está correcto.
06.10.2022 - 14:05
Sandra Gauder skrifaði:
Now my daughter loves this but I will make it a pullover for her ....pattern and colours are beautiful
05.08.2022 - 21:15
Norway Rose Cardigan#norwayrosecardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-19 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist 9 cm. Fellið síðan af fyrir næsta hnappagati þegar stykkið mælist 2 cm (mælt eftir strof). Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-10½-9-9½-9½-10 cm millibili. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í fram og til baka á hringprjóna. Fram og bakstykki skiptist síðan og prjónuð er klauf fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 56-60-60-64-64-68 lykkjur á hringprjón 6 með litnum vínrauður í DROPS Wish eða DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 6 cm, fitjið upp 4 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 64-68-72-80-84-88 lykkjur. Prjónið stroff eins og áður, en með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist alls 12 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 11-15-19-23-23-27 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 75-83-87-95-95-103 lykkjur. BERUSTYKKI: Lestið LEIÐBEININGAR og prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (A.1 sýnir liti í kanti að framan), A.2, prjónið A.3 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (A.1 sýnir liti í kanti að framan). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 165-185-195-215-215-235 lykkjur í umferð. Stykkið er prjónað í sléttprjóni og garðaprjóni með litnum malva / púður, í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 166-182-190-210-218-234 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm / mælt eftir stroffi í hálsmáli, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 29-32-33-36-38-41 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 30-32-34-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 48-54-56-62-66-72 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 30-32-34-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 29-32-33-36-38-41 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 118-130-138-150-162-174 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið og litnum malva / púður. Prjónið þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá skiptingu. Setjið 32-35-37-40-43-46 lykkjur frá framstykki á þráð eða á hjálparprjón, prjónið yfir 54-60-64-70-76-82 lykkjur frá bakstykki. BAKSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 6-8-8-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 60-68-72-80-88-92 lykkjur. Prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff í 8 cm, fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur frá hægra framstykki á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-5-7-8-5-6 lykkjur jafnt yfir = 36-40-44-48-48-52 lykkjur. Prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff í 8 cm, fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur frá hægra vinstra á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 4-5-7-8-5-6 lykkjur jafnt yfir = 36-40-44-48-48-52 lykkjur. Prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff í 8 cm, fellið af. ERMI: Setjið 30-32-34-38-38-40 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum malva / púður = 36-38-42-46-48-50 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 10-10-8-6-6-6 cm millibili alls 3-3-4-5-5-5 sinnum = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 32-31-31-30-30-29 cm frá skiptingu. Nú er aukið út um 6-8-10-12-10-12 lykkjur jafnt yfir = 36-40-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 40-39-39-38-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #norwayrosecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.