Autumn Cardinal Cardigan#autumncardinalcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og klukkuprjónslykkjum. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-23 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 3 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-9½-10-8½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 119-125-129-133-139-143 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í ca 8-8-8-9-9-9 cm, endið eftir umferð frá röngu. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni (kantur að framan), prjónið sléttar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir og aukið jafnframt út um 34-34-36-38-38-40 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 7 lykkjur í garðaprjóni (kantur að framan) – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 153-159-165-171-177-183 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkjur í A.1, þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 7 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 8-8-9-9-10-11 cm frá prjónamerki og næsta umferð er prjónuð frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð (ranga) eru allar 2 lykkjur slétt (séð frá röngu) auknar út til 3 lykkjur slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli allra 2 lykkja slétt = 199-207-215-223-231-239 lykkjur. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 7 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið (í fyrstu umferð er uppslátturinn frá útaukningum prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.2, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins, endið með 7 lykkjum í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.3, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins og endið með 7 lykkjur í garðaprjóni = 291-303-315-327-339-351 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 291-303-315-353-366-379 lykkjur í umferð. Síðan eru 2 umferðir merktar með stjörnu í A.3 endurteknar. Prjónið þar til stykkið mælist 15-15-17-18-19-21 cm frá prjónamerki. Síðan er prjónað sléttprjón með 7 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eftir A.3, aukið út um 23-24-25-39-40-42 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 314-327-340-392-406-421 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-18-21-22-23-26 cm frá prjónamerki, aukið út um 5-16-27-15-25-42 lykkjur jafnt yfir = 319-343-367-407-431-463 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 52-56-59-65-70-76 lykkjur, setjið næstu 62-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 91-99-105-117-127-139 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 62-66-72-80-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 52-56-59-65-70-76 lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 211-227-243-267-291-315 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 56-60-64-70-76-82 lykkjur inn frá hvorri hlið = 99-107-115-127-139-151 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu – endið eftir umferð frá röngu. Nú skiptist stykkið við bæði prjónamerkin. Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig, þannig að það myndist klauf í hvorri hlið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-19-19-21-23-25 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 73-79-83-91-99-107 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir við miðju að framan, prjónið 1 lykkju brugðið, endið með 7 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-19-19-21-23-25 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 73-79-83-91-99-107 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 lykkjur í sléttprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir að hlið, prjónið 1 lykkju brugðið, endið með 1 lykkju í sléttprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af aðeins laust. BAKSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-32-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir = 129-139-149-165-181-197 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, * prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af aðeins laust. ERMI: Setjið 62-66-72-80-82-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-74-82-90-94-98 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 9-10-13-16-17-18 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 36-35-33-31-29-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-14-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 64-68-70-72-74-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-43-41-39-37-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumncardinalcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.