DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Silver Diamond

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 237-13
DROPS Design: Mynstur z-967
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 501, ljós grár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 44, tunglskin

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndast göt. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Síðan er fram- og bakstykki og ermar sett saman og berustykkið er prjónað til loka í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 184-200-216-236-264-288 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff svona í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 36-36-40-44-48-52 lykkjur jafnt yfir = 148-164-176-192-216-236 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 29-29-30-30-30-30 cm, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 3-3-4-4-5-6 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið eins og áður yfir næstu 68-76-80-88-98-106 lykkjur (framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg eins og áður yfir næstu 68-76-80-88-98-106 lykkjur (bakstykki) og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið ermar eins og útskýrt er að neðan.

ERMI:
Fitjið upp 56-56-60-60-64-64 lykkjur á sokkaprjóna 4 með einum þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-8-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10 cm, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 8-5-3½-2-2-1½ cm millibili, alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-40-39-38-36-34 cm. Síðasta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttprjón þar til 3-3-4-4-5-6 lykkjur eru eftir, fellið af þær 3-3-4-4-5-6 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg = 48-52-56-64-64-66 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar inn á sama hringprjón 5 og fram- og bakstykki þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 232-256-272-304-324-344 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón í 2-3-4-4-6-6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-8-18-16-14 lykkjur jafnt yfir = 220-242-264-286-308-330 lykkjur.
Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 100-110-120-130-140-150 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm (ca 4-5-5-4-4-6 cm sléttprjón eftir A.1). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-18-24-30-36-42 lykkjur jafnt yfir = 88-92-96-100-104-108 lykkjur eftir í umferð. Prjónið síðan KANTUR Í HÁLSMÁLI eins og útskýrt er að neðan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4 og prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.01.2023
ERMI:...Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-40-39-38-36-34 cm.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Marie Auffret wrote:

Bonjour,pour tricoter le diagramme A1 il ne faut pas tricoter les jetés au rang suivant en maille endroit torse pour laisser un jour? Merci

10.10.2023 - 16:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Auffret, les jetés ne doivent pas être tricotés torse, ils sont tricotés simplement dans le brin avant pour former les trous du point ajouré. Bon tricot!

11.10.2023 - 08:25

country flag Marie Auffret wrote:

Bonjour, je ne comprends pas pourquoi pour la taille S on tricote la manche jusqu'à 42 cm, pour la taille M jusqu'à 40 cm, pour la taille L jusqu'à 38cm........ Ça devrait être le contraire c'est à dire croissant plus on monte en taille. Qu'est ce qui m'a échappé ? Pouvez-vous m'expliquer ? Merci

08.10.2023 - 22:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Auffret, les manches sont plus courtes dans les grandes tailles car l'empiècement est plus long, ainsi, la demi-envergure restera plus longue dans les grandes tailles, en fonction de vos propres mesures. Mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma pour ajuster si besoin la longueur des manches. Bon tricot!

09.10.2023 - 09:50

country flag AUFFRET Marie wrote:

Bonjour, Je vais tricoter ce modèle mais je ne comprends pas pourquoi vous donner 2 couleurs de fils: gris clair et clair de lune? Dans l'explication DOS/DEVANT vous dîtes:"Monter 184-200-216-236-264-288 mailles avec l’aiguille circulaire 4 et 1 fil de chaque qualité (2 fils)." 2 fils :ça veut dire qu'il faut associer les 2 couleurs de laine????????? Merci d'avance.

27.09.2023 - 11:41

DROPS Design answered:

Bonjour, Le fil Kid-Silk donne un effet plus souple et en jouant avec 2 tons de fils, on obtient un effet chiné très discret. Vous pouvez choisir un seul fil dúne seule couleur de notre Groupe de Fils C Bon tricot!

28.09.2023 - 11:36

country flag AUFFRET Marie wrote:

Bonjour, Je vais tricoter ce modèle mais je ne comprends pas pourquoi vous donner 2 couleurs de fils: gris clair et clair de lune? Dans l'explication DOS/DEVANT vous dîtes:"Monter 184-200-216-236-264-288 mailles avec l’aiguille circulaire 4 et 1 fil de chaque qualité (2 fils)." 2 fils :ça veut dire qu'il faut associer les 2 couleurs de laine????????? Merci d'avance.

27.09.2023 - 11:40

DROPS Design answered:

Bonjour, Vous pouvez tricoter ce modèle avec un seul fil de notre Groupe de Fils C d'une seule couleur. Bon tricot!

28.09.2023 - 11:38

country flag Jenni Ovaska wrote:

Hei, onkohan ruutupiiroksessa A1 virhe? Teen kokoa M ja en saa kuviota menemään niinkuin ohjeessa. Kun olen tekemässä 4. kerrosta,niin nurjat silmukat pitäisi kuvion mukaan alkaa yhtä myöhemmin kuin edellisellä nurjalla kierroksella, muta minulla alkaa samalta kohdalta.

07.06.2023 - 08:55

DROPS Design answered:

Hei, olethan tehnyt kavennukset piirroksen 3.kerroksella? Jokaisesta mallikerrasta kavennetaan 2 silmukkaa.

08.06.2023 - 16:17

country flag Martinez wrote:

Bonjour, le diagramme A1 mentionne 2 mailles ensemble dans la légende, mais où sont indiquées DANS le diagramme ces mailles ? car sur l'empiècement on a 242 m et au final on doit avoir apres avoir tricoté A1 110 mailles, du coup ou sont passées les132 mailles (242-110 =132). Merci

11.05.2023 - 18:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martinez, ces 2 mailles ensemble dans la légende n'avaient pas lieu d'être là et ont été supprimées. La seule diminution est le surjet double (on glisse 1 m à l'end, on tricote 2 m end à l'end et on passe la m glissée par-dessus la m glissée - on a diminué 2 m) au milieu de chaque motif, où on va diminuer 2 mailles parfois compensées par 2 jetés. Autrement dit, vous devez avoir 10 mailles dans chaque A.1 quand le diagramme est terminé; Bon tricot!

12.05.2023 - 07:45

country flag Jenni wrote:

Onko siis mahdollista että toista lankaa menee 250g ja toista vain 100g? Tehdäänkö koko paita kuitenkin kaksinkertaisella langalla? 😊

21.04.2023 - 07:28

DROPS Design answered:

Kyllä, DROPS Kid-Silk -lanka on hyvin riittoisa lanka (210 m/25 g), joten 4 kerää riittää. Koko pusero neulotaan 2-kertaisella langalla.

21.04.2023 - 13:47

country flag Hélène wrote:

Pardon pour les erreurs: *toutes les mailles, *début du tour. Merci

06.03.2023 - 13:10

country flag Hélène wrote:

Bonjour, quand on reprend toutes mailles pour l’empiècement, où est le débit du tour et du coup où commence le diagramme A1? Merci d’avance et merci pour ce magnifique site.

06.03.2023 - 13:08

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, on va reprendre soit au début du dos (on commence alors par le dos), soit à la fin du dos (on commence alors par la manche gauche), au choix. Les tours commenceront ainsi à cette transition entre les 2 parties (manche droite/dos ou bien dos/manche gauche). Bon tricot!

06.03.2023 - 15:01

country flag Elise wrote:

Har det kommet noe svar angående armelengde…? Nå er armen ferdig, men rekker meg ikke til halvveis opp på overarmen engang i str L. Skal den virkelig være så kort…?

20.01.2023 - 20:59

DROPS Design answered:

Hei Elise, Ermene skal rekke nedd til håndledd. I større størrelser er ermlengde kortere pga videre skulder og lengre bærestykke (så måle ut fra hvor bærestykket kommer til), men hvis dette ikke hjelper er det mulig å fortsette å strikke videre før du feller til ermhullet. God fornøyelse!

22.01.2023 - 08:58