Bettina Saxe skrifaði:
Er der ikke fejl i cm angivelsen på ærmerne fra delingen skal ærmet være 29 cm - så når de kun til mine albuer
28.01.2023 - 11:51DROPS Design svaraði:
Hei Bettina. Plaggets vidde i str. xxxl skal tilsi at ermene fra deligen på 29 cm + 4 cm (vrangbord) er nok, men du kan fint strikke de lengre (om du har nok garn). Men prøv genseren på deg for å dobbeltsjekk lengden. mvh DROPS Design
30.01.2023 - 14:12
Anette Kirkegaard skrifaði:
På den danske udgave af opskriften er der ikke noget diagram. Har ledt højt og lavt, lukket den ned og genstartet, alt med samme resultat: ingen diagram. Ser jeg på den engelske udgave er der et diagram men usikker på om det er fyldestgørende
01.12.2022 - 16:59DROPS Design svaraði:
Hej Anette, jo når jeg går ind på den danske opskrift, både på computeren og på mobilen, så ligger diagrammerne nederst i opskriften - prøv med ctrl F5 igen :)
02.12.2022 - 08:36
Anette Kirkegaard skrifaði:
Jeg savner diagrammer til opskriften. Kommer ikke frem HJÆLP
30.11.2022 - 20:57DROPS Design svaraði:
Hej Anette, jo de skal være der, de ligger lige over måleskitsen nederst i opskriften :)
01.12.2022 - 13:52
Janet skrifaði:
Hello, I'm on the Yoke and it has you decrease stiches then the next row indicates: * A.1, A.2, A.3, insert 1 marker ... etc. I'm not understanding what to do here. Looking at the diagrams - do you do the number of stitches to start the row as done in each diagram? Sorry I don't understand this part. Thanks
01.11.2022 - 03:28DROPS Design svaraði:
Hi Janet, After the neck and changing to needle size 4.5 mm, you decrease stitches evenly on the first round which is knitted. Then you work the patterns and, as you say, work the first row in each diagram A.1, A.2, A.3 straight after each other, then insert a marker thread before the next stitch. Continue as instructed with knitted stitches and the yarn over before inserting the next marker thread. All of this is then repeated to finish the round. Hope this helps and happy knitting!
01.11.2022 - 06:50
Josette Lallemand skrifaði:
Bonjour, j'ai un problème pour démarrer mon ouvrage. Il faut 4 augmentations par raglan et sur le diagramme A1 et A3 je vois qu'une augmentation sur 1 côté
16.10.2022 - 21:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lallemand, les augmentations du dos/devant figurent dans A.1/A.3 (= le jeté à la fin de A.1 = début du dos/devant et celui au début de A.3 = fin du dos/devant) + les 2 jetés de part et d'autre des manches (avant/après les mailles endroit) = 8 jetés au total; après avoir augmenté 2 fois dans A.1/A.3 vous augmenterez comme indiqué dans A.2 (2 m comme avant). Bon tricot!
17.10.2022 - 10:12
Liv skrifaði:
Looks great for everyday activities wear
06.08.2022 - 00:50
Arantxa skrifaði:
J'aime les fils fins et les formes originales
04.08.2022 - 17:09
Spice Market#spicemarketsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-28 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1 og A.3. LASKALÍNA: Aukið er út um 1 lykkju á eftir/undan prjónamerki á ermum þannig: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki á ermi, (prjónamerki situr hér), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 1 lykkju á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (prjónamerki situr hér). Endurtakið á hinni erminni (= 4 lykkjur fleiri á ermum). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Fram- og bakstykki er prjónað í hring niður að klauf í hliðum, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 118-122-128-132-138-142 lykkjur með DROPS Sky yfir stuttan hringprjón 4,5 og stuttan hringprjón 3,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 4,5 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjón 3,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff í 14 cm. Nú er stroffið brotið þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður, jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 26-26-28-28-30-30 lykkjur jafnt yfir = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Síðan er prjónað þannig: * A.1, A.2, A.3, setjið 1 prjónamerki hér (bakstykki/framstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-13-15-9-11-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (ermi) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á ermum og það hefur verið aukið út um 1 lykkju í A.1/A.3 á framstykki og bakstykki = 100-104-108-112-116-120 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram hringinn með mynstri og aukið út fyrir laskalínu á ermum í annarri hverri umferð 21-25-26-31-31-30 sinnum til viðbótar (alls 22-26-27-32-32-31 sinnum), JAFNFRAMT þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 2 síðustu umferðir í hverri mynsturteikningu endurteknar á hæðina 20-23-27-28-33-36 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 þar til það eru 55-61-69-71-81-87 lykkjur sléttprjón á milli A.1 og A.3 á bakstykki og á framstykki) = 284-316-340-368-392-404 lykkjur. Haldið síðan áfram með áferð yfir 15-15-15-19-19-19 lykkjur í A.1 og A.3 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm mælt frá prjónamerki og niður mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 85-91-99-109-119-125 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 57-67-71-75-77-77 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 10-10-10-12-12-16 lykkjur á prjóni (í hlið undir ermi), prjónið næstu 85-91-99-109-119-125 lykkjur (framstykki), setjið næstu 57-67-71-75-77-77 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 10-10-10-12-12-16 lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 190-202-218-242-262-282 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 5-5-5-6-6-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið mynstur eins og áður yfir lykkjur í A.1 og A.3, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 22 cm í öllum stærðum, prjónið fram að prjónamerki í annarri hlið á stykki. Síðan er prjónað fram og til baka yfir helming af lykkjunum í umferð fyrir fram-/bakstykki, þannig að það myndist klauf í hvorri hlið BAKSTYKKI: = 95-101-109-121-131-141 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 24-24-28-28-32-38 lykkjur jafnt yfir = 119-125-137-149-163-179 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig – frá röngu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN –sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 kantlykkjur garðaprjón. Þegar stroffið mælist 8 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Setjið 57-67-71-75-77-77 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-12-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 67-77-81-87-89-93 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 5-5-5-6-6-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7½-3½-3-2-2-2 cm millibili alls 5-9-10-12-12-13 sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka, eru 57-59-61-63-65-67 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-35-34-32-31-29 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 11 lykkjur jafnt yfir = 68-70-72-74-76-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 41-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #spicemarketsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.