DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spice Market Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-27
DROPS Design: Mynstur sk-169
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 11, heslihneta

DROPS TALA NR 629: 6-6-6-6-7-7 st

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.2 og A.3.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Fellið af næstu 2 lykkjur, prjónið næstu 3 lykkjur slétt. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax á eftir stroffi í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-10-10-9-9 cm millibili.

LASKALÍNA (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið er út um 1 lykkju á eftir/undan prjónamerki á ermum þannig: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki á ermi, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 1 lykkju á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Endurtakið á hinni erminni (= 4 lykkjur fleiri á ermum). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka í eitt niður að klauf í hliðum, síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 119-123-129-133-139-143 lykkjur með DROPS Sky yfir stuttan hringprjón 4,5 og stuttan hringprjón 3,5 sem haldið er saman.
Dragið út hringprjón 4,5 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjón 3,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið svona þar til stykkið mælist 7 cm. Nú eru fitjaðar upp 8 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 135-139-145-149-155-159 lykkjur.
Haldið áfram með stroff eins og áður, þær 8 nýju lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantlykkjur að framan). Með þessu verður kantur í hálsmáli tvöfaldur, meðan kantar að framan í garðaprjóni verða ekki tvöfaldir (kantur við miðju að framan verður þar með ekki eins þykkur þegar honum er hneppt). Prjónið stroff þar til stykkið mælist 14 cm.
Nú er stroffið brotið þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð frá réttu í stroffprjóni eins og áður, jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti (byrjið og endið með 8 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið). Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki hér, stykkið er nú mælt héðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 26-26-28-28-30-30 lykkjur jafnt yfir (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni og lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 109-113-117-121-125-129 lykkjur. Prjónið mynstur frá réttu þannig:
8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2, setjið 1 prjónamerki hér (vinstra framstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-13-15-9-11-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (ermi), A.3, A.4 (mitt að aftan), A.2, setjið eitt prjónamerki hér (bakstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-13-15-9-11-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setið eitt prjónamerki hér (ermi), A.3, A.5, 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (hægra framstykki). Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á ermum og það hefur verið aukið út um 1 lykkju í hverju A.2 / A.3 á framstykkjum og á bakstykki = 117-121-125-129-133-137 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu á ermum í annarri hverri umferð 21-25-26-31-31-30 lykkjur til viðbótar (alls 22-26-27-32-32-31 sinnum), JAFNFRAMT þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 2 síðustu umferðir í hverri mynsturteikningu endurteknar á hæðina 20-23-27-28-33-36 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. þar til það eru 55-61-69-71-81-87 lykkjur sléttprjón á milli A.2 og A.3 á bakstykki og það eru 28-31-35-36-41-44 lykkjur sléttprjón á milli A.2/A.3 og kant að framan á hvoru framstykki) = 301-333-357-385-409-421 lykkjur.

Haldið áfram með áferð yfir 15-15-15-19-19-19 lykkjur í A.2 og A.3, 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm mælt frá prjónamerki mitt að framan.
Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 51-54-58-63-68-71 lykkjur (hægra framstykki), setjið næstu 57-67-71-75-77-77 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 10-10-10-12-12-16 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 85-91-99-109-119-125 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 57-67-71-75-77-77 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 10-10-10-12-12-16 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 51-54-58-63-68-71 lykkjur sem eftir eru á prjóni eins og áður (= vinstra framstykki). Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 207-219-235-259-279-299 lykkjur.
Haldið áfram með 2 síðustu umferðir í A.2 og A.3, 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru.

Prjónið þar til stykkið mælist 22 cm.
Setjið fyrstu og síðustu 56-59-63-69-74-79 lykkjur á þráð fyrir vinstra og hægra framstykki. Prjónið síðan fram-/bakstykki til loka hvert fyrir sig þannig að það myndist klauf í hvorri hlið

BAKSTYKKI:
= 95-101-109-121-131-141 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 24-24-28-28-32-38 lykkjur jafnt yfir = 119-125-137-149-163-179 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig – frá röngu: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 kantlykkjur garðaprjón. Þegar stroffið mælist 8 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka 56-59-63-69-74-79 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 13-12-16-16-19-22 lykkjur jafnt yfir = 69-71-79-85-93-101 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig – frá röngu: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 8 cm, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt (spegilmynd).

ERMI:
Setjið 57-67-71-75-77-77 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-12-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 67-77-81-87-89-93 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 5-5-5-6-6-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 7½-3½-3-2-2-2 cm millibili alls 5-9-10-12-12-13 sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka, eru 57-59-61-63-65-67 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-35-34-32-31-29 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 11 lykkjur jafnt yfir = 68-70-72-74-76-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Fellið af. Ermin mælist ca 41-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op við miðju framan á kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (það eiga ekki að myndast göt)
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Kaarina wrote:

Hello again. Further to my previous message, I realised I had missed some increases. I do now have 35 and 69 sts between A2/A3, however I also have 83 sts for the sleeves. Per the instructions I should have a total of 357 sts for size L but I have 381 (including the 8 band sts on either end. Should I have stopped increasing the sleeves 6 rows earlier?

10.02.2024 - 04:14

DROPS Design answered:

Dear Kaarina, for the sleeves you should have 19 stitches in the first row. This is the sleeve: knit 1 stitch, make 1 yarn over, knit 15, make 1 yarn over, knit 1, insert a marker thread here (sleeve) = 19 stitches. Now increase like this for the sleeves (= 2 increases in each sleeve) every 2nd row 26 more times = 52 stitches increased in each sleeve. 19 stitches + 52 stitches = 71 stitches. So you should have 12 stitches less in each sleeve than you stated (= 24 less stitches). 381-357 = 24 stitches. Happy knitting!

12.02.2024 - 00:31

country flag Bernadette Van Duijvenbode wrote:

Begrijp ik het goed dat ik de terugkerende naald moet breien zoals de steken zich voordoen? En de omslagen averechts?

04.02.2024 - 20:39

country flag Kaarina wrote:

I'm knitting this cardigan in size L. I'm now at the point where I should have 357 sts but the amount of stitches between A2 and A3 on front and back are different (i.e., my row is as follows 8-32-15-77-15-63-15-77-15-32-8). Where did I go wrong? I don't know how I can continue... Help!

29.01.2024 - 04:30

DROPS Design answered:

Dear Kaarina, there were 4 sts on each front piece in A.4 at the beg, you increase 4 sts in A.4 and repeat the increases 27more times = 4+4+27=35 sts for front pieces between bands and raglan sts. On back piece you had 7 sts between both A.3, you increase 8 sts in A.4 + 27 more times 2 sts = 7+8+2x27= 69 sts; Hope it can help. Happy knitting!

30.01.2024 - 07:21

country flag Ulla wrote:

Thank you for your recent reply however it didn\'t answer my question. I know what ribbing is but the pattern says k1, p1 until the last stitch, then k1 and to repeat this until the work reaches 7cm. If I repeat the same instruction on the other side the first and last stitch will be knit thereby creating a moss stitch. The instruction is misleading...?

07.12.2023 - 17:55

DROPS Design answered:

Dear Ulla, from wrong side knit the knit and purl the purl, this means when from RS you start with K1, P1 and end with K1, from WS you will start with P1, K1 and end with P1. Happy knitting!

08.12.2023 - 08:35

country flag Ulla wrote:

I love your website and all the patterns you offer. I started this cardigan and have already a question about the neck. I CO 129 stitches and purled first row. Then the instruction is to k1, p1 until the last stitch which will be k1. When I turn it to the WS I start with k1, p1. This gives me moss stitch, not ribbing as mentioned. What am I missing?

06.12.2023 - 17:51

DROPS Design answered:

Hi Ulla, When working the rib back from the wrong side, the stitches that were knitted on the right side are purled on the wrong side and the stitches that were purled on the right side are knitted on the wrong side. Happy crafting!

07.12.2023 - 06:43

country flag FRANCESCA wrote:

Buongiorno A1eA5 sono messi male. Vanno specchiati altrimenti viene con scollo a V e non come da foto. Purtroppo io me ne sono accorta solo a metà lavoro e non potete immaginare il dispiacere nel disfare specialmente perché stavo facendo una CL

28.11.2023 - 08:01

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, non ci sono correzioni riguardo i modelli: ha seguito correttamente la lavorazione partendo dal basso verso l'alto e da destra verso sinistra per i ferri di andata e da sinistra a destra per quelli di ritorno? Buon lavoro!

30.11.2023 - 23:01

country flag Graziella wrote:

Hi, I'm knitting the small size & don't quite understand the instructions "At the same time when the diagrams have been worked vertically, repeat the last 2 rows vertically - is this after each vertical repeat or after the 3 pattern repeats. Also, I can't quite make out how the sts increase from 177 to 301 from the Raglan & pattern repeats - I get less than this by calculations. Thanks!

15.11.2023 - 21:00

DROPS Design answered:

Dear Graziella, continue increasing for raglan as before an continue working diagrams/pattern as established until you will have a total of 301 sts, ie 55 sts stocking stitch between A.2 and A.3 on back piece, 28 sts stocking stitch between A.2 and A.3 and front band stitches. Happy knitting!

16.11.2023 - 10:10

country flag Gaby wrote:

Hallo, Ich bin bei der Passe. Sind in Diagrammen nur die Hinreihen eingezeichnet? Was ist mit den Rückreihen, alles links?

16.10.2023 - 07:56

DROPS Design answered:

Liebe Gaby, die Diagramme zeigen alle Reihen, dh die Hin- sowie die Rück-Reihen; siehe Symbolerklärungen. Hier lesen Sie noch mehr. Viel Spaß beim stricken!

16.10.2023 - 10:14

country flag Margaret T Winters wrote:

I love the look of this cardigan, and am preparing to begin it. My chosen yarn is Pingouin 50wool/25acrylic/15silk and I was wondering if it would work to add in a kid mohair to beef it up a bit? Please advise. Thank you, Margaret

29.09.2023 - 08:44

DROPS Design answered:

Dear Margaret, the composition of the yarn is not as important as the actual yardage. We are not familiar with this yarn so we can't assess whether it would be useful for this pattern. Happy knitting!

30.09.2023 - 23:58

country flag Judith Brink wrote:

Hi, this pattern has me completely confused. Please help. For raglan sleeve increases must I just increase the knit 1, make 1 yo, knit 15 make 1 yo, knit 1 for the sleeves. Or do I need to increase as well between A2 and the sleeve marker? How many stitches should I have on my needles after row 3 and then row 5? Does it go 125, 133, 141? Thank you for any help. Regards Judith

25.09.2023 - 13:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brink, increase on sleeve as explained under RAGLAN (applies to sleeves):, this means work until the marker thread at the beginning of the sleeve, than knit 1, increase 1 stitch, work sleeve until 1 stitch remains before the marking thread at the end of sleeve, increase 1 stitch, knit 1. The number of sts between the yarn overs will increases as you increase. This is to increase on sleeves. On front and back pieces, increase as shonw in the diagrams (see written pattern) . Happy knitting!

25.09.2023 - 15:38