DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10978.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sherwood Forest

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður, með hringlaga berustykki, röndum og sléttprjóni. Stærð XS - XXL.

DROPS 237-18
DROPS Design: Mynstur fa-513
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL -XXL

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150-150-200-200 g litur 200, grár
150-150-150-150-200-200 g litur 923, country fair
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-125-150-150-175 g litur 22, öskugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10978.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

RENDUR:
Prjónið rendur þannig:
* Prjónið 1 umferð með litnum country fair í DROPS Fabel + litnum öskugrár í DROPS Kid-Silk.
Prjónið 1 umferð með litnum grár í DROPS Fabel + litnum öskugrár DROPS Kid-Silk *, prjónið frá *-*.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir).

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 110-115-120-125-130-135 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum country fair í DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Peysan er prjónuð í RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Nú er fækkað um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = 88-92-96-100-104-108 lykkjur. Haldið áfram með stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist 12 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 96-102-114-120-126-132 lykkjur. Nú er prjónað A.1 yfir allar lykkjur. ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 256-272-304-320-336-352 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-0-0-4-8-12 lykkjur jafnt yfir = 256-272-304-324-344-364 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki.

Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 38-40-44-49-53-56 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 52-56-64-64-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 76-80-88-98-106-112 lykkjur (framstykki), setjið næstu 52-56-64-64-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-40-44-49-53-56 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað til loka hvert fyrir sig.
Stykkið er núna mælt héðan! Klippið þráðinn.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 164-176-192-216-236-248 lykkjur í umferð. Byrjið umferð mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í annarri hliðinni.
Haldið áfram í sléttprjóni og röndum. Prjónið þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 8-8-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 172-184-204-228-248-260 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Prjónið stroff í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 52-56-64-64-66-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-72-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-8-8-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón, haldið áfram með rendur. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-4-3-2½-2½-2 cm millibili alls 6-8-11-11-12-13 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 38-36-36-35-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 2-4-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 42-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.03.2023
BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir...

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Lucia wrote:

Buonasera, sto facendo il collo e alla fine nella taglia L mi dice di aumentare 16 maglie e ne avrò 120.. ma 100 piu 16 fa 116 non 120. Grazie

10.03.2024 - 18:07

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo, ora il numero di aumenti è corretto. Buon lavoro!

11.03.2024 - 23:40

country flag Daiana wrote:

Hola. Soy nueva aún en el tejido circular. Me gustaria saber como es que se traslada el comienzo de la labor hacia debajo de la manga al comenzar a tejer el cuerpo de la prenda, ya que me estaria quedando la hebra con la que estaba tejiendo en medio de la espalda. Gracias.

21.02.2024 - 04:06

DROPS Design answered:

Hola Daiana, como se explica en el patrón, tras dividir para el cuerpo y las mangas, cortas el hilo. Ahora reúnes el hilo en el sitio que quieres empezar la vuelta (centro de los puntos montados bajo la manga), como si estuvieras empezando un nuevo ovillo.

26.02.2024 - 22:38

country flag Agnes Oreglia wrote:

Bonjour, je viens de réaliser le diagramme A1 et, je trouve qu'il est facile ! Je me demande si ce diagramme d'empiècement en rond peut s'appliquer avec n'importe quelle grosseur d'aiguilles et de laine ? Merci

20.02.2024 - 13:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Oreglia, pas forcément, il est adapté ici à l'échantillon (18 mailles x 23 rangs jersey = 10 x 10 cm) et à la forme du pull (cf schéma); retrouvez ici tous nos modèles de pulls tricotés de haut en bas avec empiècement arrondi, ajoutez des filtres si besoin pour mieux cibler votre recherche. Bon tricot!

20.02.2024 - 15:47

country flag Liesbeth wrote:

Hi, I’m trying to knit my first sweater, but I don’t understand how to interpret the pattern. I’m knitting the M size and after the neck, I have increased to 114 stitches. Then I start the A.1 pattern where I need to increase after every 15 stitches? But that means I have 9 stitches left on my needle? That doesn’t seem right to me?

14.10.2023 - 22:31

DROPS Design answered:

Dear Liesbeth, A.1 is worked over 6 stitches on the first round (remember that charts are read from the bottom up) so you will have to repeat A.1 19 times on the round (114/6= 19). So you work the first round of A.1 over the first 6 stitches, then repeat over the next ones and continue the whole round. On the next round you will work the second round of A.1 like on the previous round, but you will increase by working 1 yarn over at the end of every repeat (as shown in the chart with a black oval). Therefore, since there are 19 repeats of A.1 on the round, you will increase 19 stitches. Continue like this, working the pattern upwards. Happy knitting!

16.10.2023 - 00:04

country flag Simone Kraaipoel wrote:

De hals wordt in totaal 12 cm hoog. Vraag: wordt de halsband omgeslagen? Dit ivm wat is dan de goede kant van het werk. Ik vermoed van wel en dan zou ik dus de averechte opzetrand als goedekant van het werk moeten beschouwen. Klopt dit.

03.09.2023 - 18:26

DROPS Design answered:

Dag Simone,

Nee, de hals wordt niet omgeslagen.

04.09.2023 - 20:13

country flag Baiba wrote:

Does the sweater fit well if the short rows are not knitted to lengthen the back?

19.08.2023 - 19:42

DROPS Design answered:

Dear Baiba, there are no short rows in this pattern. Are you referring to another pattern? Happy knitting!

20.08.2023 - 18:48

country flag Sandra wrote:

Las vueltas del graficó A1, se han dibujado solo las vueltas de derecho? O están todas las corridas que se deben tejer? Para lograr las corridas deseadas?.

08.06.2023 - 18:43

DROPS Design answered:

Hola Sandra, el diagrama muestra todas las vueltas del patrón vistas por el lado derecho. Ten en cuenta que la labor se trabaja en redondo, por lo que todas las vueltas se trabajan por el lado derecho.

17.06.2023 - 17:05

country flag Naïssa wrote:

Comment faire pour changer d'aiguilles circulaire en cours d'ouvrage tricoté en rond , par exemple pour le col

23.02.2023 - 18:29

DROPS Design answered:

Bonjour Naïssa, tricotez le 1er tour de l'empiècement (à l'endroit en augmentant à intervalles réguliers) avec la nouvelle aiguille, puis continuez avec celle-ci. Bon tricot!

24.02.2023 - 09:51

country flag Kristina Ottebrand wrote:

Jag undrar varför man ska öka innan man stickar mudden på fram och bakstycket. Ska ma inte minska istället om man tänker att det blir tvärtom mot att sticka nerifrån och upp. Mvh Kristina

13.02.2023 - 22:17

DROPS Design answered:

Hej Kristina, det er for at det ribstrikkede ikke skal trække arbejdet alt for meget sammen når du også går et pindenummer ned :)

14.02.2023 - 09:55

country flag Martina wrote:

Ich finde den Zunahmetipp nicht.

13.02.2023 - 20:20

DROPS Design answered:

Liebe Martina, oops richtig, danke für den Hinweis - unser Designteam wird das mal schauen - diese Lektion wird Ihnen damit helfen, wie man regelmäßig verteilt zunimmt. Viel Spaß beim stricken!

14.02.2023 - 13:46