Louise skrifaði:
Met meerderen van lijf en mouwen: Moet ik eerst lijfmeerderingen (24) breien en daarna de 11 meerderingen voor de mouwen of gaat dit gelijktijdig?
05.01.2025 - 14:55DROPS Design svaraði:
Dag Louise,
Het aantal keren dat je meerdert op het lijf en de mouwen is verschillend en ook de interval is verschillend, maar je start het meerderen wel tegelijkertijd op de mouwen en het lijf.
08.01.2025 - 13:45
Anne skrifaði:
Wenn die Passe fertig ist, muss dann nicht erst das halbe Rückenteil gestrickt werden bevor man die Maschen für den Arm still legt. Das ist irgendwie verwirrend erklärt...
07.12.2024 - 12:29DROPS Design svaraði:
Liebe Anne, bei diesem Modell begannen die Runden mit der Raglanmaschen vor dem 1. Ärmel (= vor dem rechten Ärmel), so bei der Verteilung werden die ersten Maschen für den Ärmel stillgelegt. Viel Spaß beim Stricken!
09.12.2024 - 08:18
Patsy Violaris skrifaði:
Hello, I’m using Sky as recommended for this project. From my swatches I’ve discovered that I need a 5 mm needle to achieve the desired gauge. Is that ok? On most other yarns I’m usually correct for the recommended needles. Regards Patsy
03.12.2024 - 17:58DROPS Design svaraði:
Dear Patsy, DROPS Sky is quite elastic and light so it's a bit different from other yarns. You could try working a larger part of the sweater with the recommended needle; maybe once you get used to the thread's elasticity you can adjust your gauge to that of the pattern. Otherwise, if the gauge remains as before, you can then change to the 5mm needles as you previously calculated. Happy knitting!
08.12.2024 - 00:15
Agnieszka skrifaði:
Witam, Czy przy robieniu karczku po dodaniu pierwszego oczka na reglan przerabiamy oczko prawe czy lewe? Wg mnie ze wzoru wynika, że lewe ale podczas robienia dalszych okrążeń nie pokrywają mi się kolumny lewych oczek z lewymi i prawych z prawymi.
02.10.2024 - 21:47DROPS Design svaraði:
Witaj Agnieszko, zacznij tak aby oczka się pokrywały, jak na zdjęciu. Po przerobieniu kilku okrążeń wzór będzie już ładnie widoczny i nic nie będzie się mylić, Pozdrawiamy!
04.10.2024 - 11:39
Gaby skrifaði:
Hallo, vielen Dank für die ganzen Anleitungen. Leider ist hier die Schriftgröße mit 9 Punkten im PDF sehr klein. Auf A3 ausdrucken ginge natürlich, aber dann lässt sich das schlecht in die Tasche stecken. ;) Nur als Hinweis. Viele Grüße
11.09.2024 - 19:46
DsMarina skrifaði:
Xyz
08.07.2024 - 20:25
Andrea Veth skrifaði:
Hallo, was mir nicht ganz klar ist, werden die Zunahmen an Rumpf und Ärmeln nacheinander gestrickt oder zusammen? Liebe Grüße A. Veth
29.03.2024 - 18:04DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Veth, die Raglanzunahmen werden gleichzeitig gestrickt, es wird zuerst in jeder 2. Runde zugenommen (8 Zunahmen) und danach am einen unterschiedlichen Rythmus: abwechslungsweise 4 Maschen (nur Rumpfteil) und 8 Maschen (Rumpfteil + Ärmel) zugenommen. Viel Spaß beim Stricken!
02.04.2024 - 14:20
Carola Kaandorp skrifaði:
Ik heb een vraag over het meerderen vanaf 208 steken (large), verschillend voor lijf en mouwen. Ik begrijp meerderen voor het lijf elke 2e naald, dus in naald 1, 3, 5, 7, 9, 11, …, 39, 41, 43 (22x). En meerderen voor de mouwen elke 4e naald, dus in naald 3, 7, 11, … 35, 39 (10x). Dan zijn er afwisselend 4 en 8 meerderingen vanaf naald 1 (+4 steken) tot en met naald 41 (+4) en daarna in naald 43 alweer +4. De reeks is dus niet 4-[8-4]-8-4, maar 4-[8-4-]8-4-4. Klopt dat?
19.12.2023 - 16:30DROPS Design svaraði:
Dag Carola,
Vanaf het punt dat je verschillend meerdert voor het lijf en de mouwen, meerder je voor maat L nog 22 keer op het lijf en nog 10 keer op de mouwen. Als je met de mouwen klaar bent, dan moet je voor het lijf inderdaad nog 2 keer meerderen, dus eindigt de reeks inderdaad met -4-4.
20.12.2023 - 18:55
Alex skrifaði:
Jeżeli potrzebuję rozmiaru XXS to w jaki sposób powinnam zmniejszyć liczbę oczek dla poszczególnych elementów swetra?
07.12.2023 - 13:53DROPS Design svaraði:
Witaj Alex, niestety nie jesteśmy w stanie dopasować naszych wzorów do indywidualnych wymagań. Zalecamy zwrócenie się do sklepu, w którym kupujesz włóczkę, tam na pewno uzyskać pomoc. Pozdrawiamy!
07.12.2023 - 15:18
Mc Cransac skrifaði:
Bonjour, peut-on tricoter ce modèle en soft tweed ? merci
07.11.2023 - 21:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cransac, tout à fait car les 2 laines sont du même groupe, utilisez notre convertisseur pour calculer la nouvelle quantité correspondante. Bon tricot!
08.11.2023 - 08:09
Warm Blush#warmblushsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og perlustroffi. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-6 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 1 lykkju í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið lykkjuna með prjónamerki í, takið upp þráðinn sem er á milli lykkju með prjónamerki og næstu lykkju – takið þráðinn upp framan í með vinstri prjóni og prjónið lykkjuna slétt í aftari lykkjubogann – lykkjan verður snúin til vinstri. Í næstu umferð er lykkjan prjónuð inn í mynstur A.1. Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, takið upp þráðinn sem er á milli fyrri lykkju og lykkju með prjónamerki – takið upp þráðinn aftan í með vinstri prjóni og prjónið lykkjuna slétt í fremri lykkjubogann – lykkjan verður snúin til hægri. Í næstu umferð er lykkjan prjónuð inn í mynstur A.1. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju (prjónamerki situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-104-108-112-116-120 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Sky. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 13 cm (það á síðar að brjóta stroffið saman tvöfalt og þá mælist það ca 6 cm). BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út og prjónamerki sett í stykkið þannig: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 0-2-2-6-8-14 lykkjur jafnt yfir næstu 27-29-31-33-35-37 lykkjur (27-31-33-39-43-51 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 0-2-2-6-8-14 lykkjur jafnt yfir næstu 27-29-31-33-35-37 lykkjur (27-31-33-39-43-51 lykkjur fyrir bakstykki). Það eru 100-108-112-124-132-148 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt að aftan (á milli 1. og 4. prjónamerkis), berustykkið er síðar mælt héðan. Nú er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (lykkjur með prjónamerki í eru prjónaðar allan tímann í sléttprjóni), JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð við hvert prjónamerki alls 6-8-12-19-19-21 sinnum = 148-172-208-276-284-314 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Lestu allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram! Nú breytist útaukningin og aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum þannig: FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út á eftir 2. og 4. prjónamerki og á undan 3. og 1. prjónamerki. Aukið svona út í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 24-24-22-19-21-21 sinnum til viðbótar, þar til aukið hefur verið út alls 30-32-34-38-40-42 sinnum á fram- og bakstykki. ERMI: Aukið út á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki. Aukið svona út í 4. hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 11-11-10-9-9-9 sinnum, aukið hefur verið út alls 17-19-22-28-28-30 sinnum á ermi. Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir laskalínu eru 288-312-336-388-404-436 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur án útaukninga þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (lykkja með 1. Prjónamerki, tilheyrir bakstykki), setjið næstu 55-59-65-77-77-81 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 11-11-13-13-15-17 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 89-97-103-117-125-137 lykkjur mynstur A.1, setjið næstu 55-59-65-77-77-81 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 11-11-13-13-15-17 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið mynstur A.1 yfir síðustu 88-96-102-116-124-136 lykkjur í umferð (bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-216-232-260-280-308 lykkjur. Prjónið mynstur A.1 eins og áður. Prjónið þar til ermin mælist 22-22-23-23-23-23 cm frá skiptingu – eða prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir 5 cm að loknu máli). Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 20-24-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð = 220-240-256-284-308-340 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Setjið lykkjur frá öðrum þræðinum á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 11-11-13-13-15-17 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermi = 66-70-78-90-92-98 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju af nýjum lykkjum sem prjónaðar voru upp og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið mynstur A.1 eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan. Endurtakið úrtöku með ca 6-5-3½-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-10-14-15-16 sinnum = 54-56-58-62-62-66 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 39-38-37-36-34-33 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 6-4-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-68-72-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið nokkur spor þannig að kanturinn í hálsmáli verði tvöfaldur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #warmblushsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.