Claudine skrifaði:
Devant droit, vous dites d'ajouter une jetée pour avoir les deux côtés identiques. Comment peuvent-ils être identiques si nous avons une maille de plus. Pour le devant gauche A1 se termine par 1m.end suivi de A10 qui commence par 1 m.end & le devant droit A9 se termine par 1 m.end. suivi de A1 qui commence par 1 m.end. Comment pourrait-il ne pas être pareil?
01.05.2026 - 19:10
Christine skrifaði:
Seit einem Jahr liegt diese Jacke nun fertig gestrickt bereit, nur der Schalkragen lässt mich verzweifeln. Ich halte mich exakt an die Anleitung und erhalte jedes Mal wieder ein Strickstück mit einer wulstigen Wurst am Hals. Da ist einfach zu viel Breite/Masse statt nur Kragen. Ich werde nun beide VT auftrennen, alles ohne Blende neu stricken, und eine einfache krause Blende anstricken. Sehr, sehr schade um die ganze Zeit und Arbeit. Könnte ein Video für diesen Kragen erstellt werden?
01.05.2026 - 15:21
Claudine skrifaði:
Col châle / devant gauche Après avoir repris les 23 mailles en attente il est indiqué sur l'endroit du travail commencé par 7 mailles au point mousse. Ce devrait plutôt être indiqué sur l'envers du travail?
28.04.2026 - 22:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Claudine, tout à fait, correction faite, merci pour votre retour. Bonne continuation!
29.04.2026 - 11:27
Claudine skrifaði:
Bonjour, pour le dos, quand nous sommes rendus à rabattre les mailles de l'épaule avec la technique I-cord et que nous avons 40 mailles, est-ce que l'on rabat aussi les 9 mailles (3 fois) qui n'ont pas été tricoté dans l'étape juste avant?
18.04.2026 - 20:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Claudine, tout à fait, on doit rabattre ici toutes les mailles de l'épaule, découvrez ici, en vidéo comment procéder. Bon tricot!
20.04.2026 - 09:49
Rebecca skrifaði:
When working A2 on the back piece can you explain where the increases are worked. I can only see one stitch increase on the pattern diagram?
01.04.2026 - 20:48DROPS Design svaraði:
Hi Rebecca, A.2 is repeated on the row (6 stitches x 16 in the smallest size for example), with 1 stitch increased in each repeat = 16 increased stitches on the row. Happy Easter! Regards, Drops Team.
03.04.2026 - 07:40
Ludivine skrifaði:
Lorsque l’on commence le col, faut-il continuer la bordure et les 3 mailles en point mousse ?
05.11.2025 - 15:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Ludivine, les mailles restantes du col châle se tricotent comme elles se présentent: les 7 mailles point mousse au point mousse et les mailles restantes soit à l'endroit soit à l'envers en fonction du rang précédent. Bon tricot!
05.11.2025 - 17:08
Bessin Jacqueline skrifaði:
Bonjour,j’ai tricoté ce modèle sans difficulté jusqu’au col châle .Très beau modèle mais je ne comprends pas quand on me dit pour le côté gauche par exemple de tricoter sur l’endroit alors que je suis sur l’envers et inversement pour le côté droit.Je suis bloquée et vous remercie pour votre réponse .Modèle 235-2
15.10.2025 - 18:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bessin, le col châle se fait avoir terminé les épaules, on a rabattu les mailles et coupé le fil, le 1er rang du col châle du devant droit se tricote sur l'envers (joignez le fil en début de rang sur l'envers) et tricotez les rangs raccourcis en commençant sur l'endroit; pour le devant gauche, tricotez le 1er rang du col sur l'endroit (joignez le fil en début de rang sur l'endroit) et commencez les rangs raccourcis sur l'envers. Bon tricot!
16.10.2025 - 17:27
Christine skrifaði:
Nach einer Rückfrage hier habe ich den Schalkragen an beiden VT nach Anleitung hinbekommen und bin leider überhaupt nicht glücklich. Obwohl alle Maße stimmen, liegt der Kragen (nicht die Blende, der Rest) als ganz seltsame, sich nach außen stülpende Wulst im Nacken; für ein vernünftiges Umschlagen ist er aber wiederum zu schmal. Sehr schade... Ich werde nun die Nähte und den gesamten Teil an beiden VT wieder auftrennen und hoffentlich eine alternative Lösung finden.
12.03.2025 - 21:50
Sarah skrifaði:
Hey, I’m loving the pattern so far. I’ve reached the end of the back when I cast off the middle section and start working on the shoulders individually. But I’m really confused and not sure how I’m suppose to do them. Do I knit for a bit then start decreasing on the side closest to the neck… I’m confused 😵💫 Any help welcomed, thank you.
03.02.2025 - 21:31DROPS Design svaraði:
Hi Sarah, You cast off 1 stitch at the beginning of the next row from the neck, straight after casting off the middle stitches for the neckline. Then you continue working the shoulder until you have reached the required length, before beginning to work the diagonal shoulders. Hope this helps and happy knitting!
04.02.2025 - 06:48
Carmen-Gabriela skrifaði:
Hallo + Danke. Ja, die verkürzte Seite wird an den rückw. HA genäht. Die äußere Seite der Blende ist aber ziemlich lang, selbst nach dem Annähen von ca. 3 cm tiefer. Also, (hoher) Stehkragen im Nacken oder umschlagen; je nach dem werde ich die Naht der beiden schrägen Teile von der rechten oder linken Strick-Seite gestalten. Ich stricke für ein Familienmitglied und werde nach dem 2. VT (ist in Arbeit) anpassen. Es bleibt spannend, ansonsten ist die Jacke echt schön!
22.01.2025 - 18:18
Cracked Walnuts Jacket#crackedwalnutsjacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk og DROPS Puna / DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, garðaprjóni, köðlum og stroffprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 235-2 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. PRJÓNAÐ SAMAN: FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt. FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. SLÉTTPRJÓN: Þegar prjónað er frá röngu er prjónað brugðið og þegar prjónað er frá réttu er prjónað slétt. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 1 lykkju fram hjá merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 6, 14, 22 og 30 cm. S: 6, 14, 22 og 30 cm. M: 6, 14, 23 og 32 cm. L: 7, 16, 25 og 34 cm. XL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm. XXL: 6, 14, 22, 29 og 36 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykkið er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka í stykkjum. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-110-110-122-134-146 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 114-128-128-142-156-170 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 27-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 87-92-92-102-112-122 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 138-146-146-162-178-194 lykkjur í umferð. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.7 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.8 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 51-54-54-60-66-72 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 87-92-92-102-112-122 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a áfram á hæðina að loka máli. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 13-14-16-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl (37-39-38-42-46-51 lykkjur) eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja í byrjun á umferð = 36-38-37- 41-45-50 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 8-9-9-10-11-12 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 38-40- 39-43-47-52 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur. Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði frá röngu á stykki, passið uppá að herða ekki of á þræðinum *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur af öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp upp 61-67-67-73-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í næstu umferð frá réttu er mynstrið prjónað þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9, prjónið 1-0-0-1-0-1 lykkja brugðið, 1-0-0-1-0-1 lykkja slétt, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9 eins og áður, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-77-77-84-91-98 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins mitt að framan á báðum framstykkjum), prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 71-78-78-85-92-99 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, síðan er prjónað brugðið frá réttu og slétt frá röngu. Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 15-17-17-19-21-23 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.5 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm. Prjónið mynstur nú með byrjun frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.6 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 77-85-85-93-101-109 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.7 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm. Prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.9a eins og áður, prjónið A.8 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 21-24-24-27-30-33 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a á hæðina að loka máli. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 8-9-9-10-11-12 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsi. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 20-23-24-25-26-26 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 20-23-24-25-26-26 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 38-40-39-43-47-52 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur. Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði frá röngu á stykki, passið uppá að herða ekki of á þræðinum *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur af öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. SJALKRAGI: Setjið 20-23-24-25-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5. Prjónið með byrjun frá röngu þannig: 0-2-3-3-5-5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram (þ.e.a.s. kaðlar eru ekki lengur fléttaðir) og prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 16-19-20-21-22-22 lykkjur, snúið og herðið þráðinn. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir 16-19-20-21-22-22 lykkjur. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur. Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp upp 61-67-67-73-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og brugðnar lykkjur út umferðina. Í næstu umferð frá réttu er mynstrið prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 20-18-18-20-18-20 lykkjur eru eftir, prjónið 1-0-0-1-0-1 lykkju slétt, 1-0-0-1-0-1 lykkja brugðið, A.10, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 18 lykkjur eru eftir, A.10 eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-77-77-84-91-98 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 20 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 14-16-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 77-85-85-93-101-109 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.7 þar til 20 lykkjur eru eftir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.8 þar til 20 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 21-24-24-27-30-33 lykkjur jafnt yfir, A.10a eins og áður, 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 56-61-61-66-71-76 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a á hæðina til loka máls. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, prjónið nú skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til eftir eru 8-9-9-10-11-12 lykkjur, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónið yfir 8-9-9-10-11-12 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í síðustu umferð við hálsmál er prjónað þar til 20-23-24-25-26-26 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 20-23-24-25-26-26 lykkjur á þráð fyrir sjalkraga og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 38-40-39-43-47-52 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur. Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkja sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóninn sem voru á þræði frá röngu á stykki, passið uppá að herða ekki of á þræðinum *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur af öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur. SJALKRAGI: Setjið 20-23-24-25-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5. Prjónið með byrjun frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 0-2-3-3-5-5 lykkjur eru eftir og prjónið síðustu lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram (þ.e.a.s. kaðlar eru ekki lengur fléttaðir) og prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið yfir fyrstu 16-19-20-21-22-22 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið yfir 16-19-20-21-22-22 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur. Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm þar sem hann er stystur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 60-60-60-72-72-72 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri gerð. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 merki í byrjun umferðar. Prjónið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 70-70-70-84-84-84 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Prjónið A.3 alls 2 sinnum á hæðina. Prjónið A.8 yfir allar lykkjur, í fyrstu umferð er fækkað um 22-22-22-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-58-58-58 lykkjur. Endurtakið A.8a á hæðina að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Aukið svona út með 3½-3½-2½-3-3-2 cm millibili alls 6-6-8-6-6-8 sinnum = 60-60-64-70-70-74 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Fellið af þegar ermin mælist 40-40-41-39-37-35 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við 1 lykkju í icordkanti. Saumið sjalkragann mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crackedwalnutsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.