Nathalie skrifaði:
Bonjour, Dans la Manche vous dites : tricoter la tête de la manche en allers retours sur les aiguilles circulaires jusqu'a la fin Qu'est ce que c'est la tête de la manche? En vous remerciant. Nathalie
09.07.2024 - 18:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Nathalie, la tête de la manche est cette partie de la manche que sera cousue le long de l'emmanchure. Bon tricot!
12.07.2024 - 14:40
Nathalie skrifaði:
Bonjour, Dans les rangs raccourcis, que veut dire "serrer le fil" En vous remerciant Nathalie
16.06.2024 - 20:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Nathalie, on serre le fil pour éviter des trous aux transition des rangs raccourcis; dans cette vidéo on montre comment procéder; il existe d'autres façons de tricoter les rangs raccourcis dont vous en trouverez quelques vidéos ici. Bon tricot!
17.06.2024 - 09:02
Guylaine Rondeau skrifaði:
Pour ce modèle y a t il des tutoriels, car j aimerais comprendre comment coudre la manche le long du bas de l emmanchure: Coudre a contre A et b Contre B merci Et comment faire la pointe du V au devant.. merci
14.04.2024 - 02:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Rondeau, tout à fait, vous pouvez retrouver tous nos tutoriels vidéos et leçons en haut de page, dans les onglets à droite des Explications. Pour la couture des manches, cette vidéo devrait pouvoir vous aider. Bon assemblage!
15.04.2024 - 07:45
Besnier skrifaði:
Je vais faire le modèle 230-6 avec drops belle en taille s je voulais savoir 450 g coloris 01,blanc correspond à combien de pelotes de laines.
17.03.2024 - 19:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Besnier, les pelotes DROPS Belle se présentent en 50 g - cf nuancier; il vous faudra ainsi 450/50 = 9 pelotes en taille S. Bon tricot!
18.03.2024 - 09:32
Mari skrifaði:
Utrolig fin genser! Hvilken størrelse bruker modellen?
26.08.2023 - 11:16DROPS Design svaraði:
Hei Mari, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften, med alle mål til de forskjellige størrelsene. Finner du din størrelse får du samme fasongen som modellen har i bildet. God fornøyelse!
28.08.2023 - 06:49
Valborg Hillberg skrifaði:
Hur vet jag hur långt jag ska sticka på ärmen, ärmkullen
31.07.2023 - 14:23DROPS Design svaraði:
Hej Valborg Det beror på vilken storlek du stickar: När ärmen mäter 51-50-49-48-46-44 cm, stickas ärmkullen fram och tillbaka på rundsticka till färdigt mått. Sticka slätstickning från mitt i A.1 till ärmen mäter ca 52-51-51-51-51-51 cm (= färdigt mått). Maska av.
07.08.2023 - 11:45
Hanan Salah skrifaði:
Je ne comprend pas cette partie ENCOLURE DOS: En commençant sur l'endroit, à l'une des coutures d'épaule, relever pour l'encolure dos environ 42 à 46 mailles (y compris les mailles en attente) jusqu'à la couture de l'épaule suivante.
13.02.2023 - 22:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Salah, pour l'encolure dos, vous avez mis en attente les 38-40 ou 42 m centrales, pour l'encolure dos, on va rabattre avec la technique du I-cord, pour cela, on a besoin de relever les mailles le long de l'encolure dos: en commençant à la couture de l'épaule gauche (sur l'endroit) relever les mailles, tricotez les mailles en attente et relevez les mailles jusqu'à la couture de l'épaule droite, et rabattez maintenant les mailles à partir des 3 mailles du devant droit. Bon tricot!
14.02.2023 - 13:54
Hanan Salah skrifaði:
ENCOLURE DOS: En commençant sur l'endroit, à l'une des coutures d'épaule, relever pour l'encolure dos environ 42 à 46 mailles (y compris les mailles en attente) jusqu'à la couture de l'épaule suivante.
13.02.2023 - 22:18
Hanan Salah skrifaði:
Bonjour madame puis-je travailler les 2 manches au même temps ensemble sur aiguilles circulaires 3 et 4 ?
26.01.2023 - 15:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Salah, si vous en avez l'habitude, alors oui, sinon, préférez réaliser l'une manche après l'autre, ce sera plus simple. Bon tricot!
26.01.2023 - 15:51
Hanan Salah skrifaði:
Bonjour madame par rapport aux rangs raccourcis les mailles non tricotées resteront sur l’aiguille à chaque fois sur chaque ligne et ensuite je les tricote toutes ensembles ? Je ne comprends pas bien vraiment ( je ne suis pas française je suis égyptienne un peux de soucis avec la langue française ) merci bien
24.01.2023 - 14:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Salah, tout à fait, lorsque vous tricotez les rangs raccourcis en tricotant jusqu'à ce qu'il reste par ex. 6-6-7-7-8-8 mailles, ces mailles ne sont pas tricotées, la fois suivante, tricotez 3 ou 4 mailles en moins (cf taille). Lorsque toutes les mailles seront mises en attente sur un fil, reprenez toutes les mailles en attente et rabattez-les toutes en une seule fois. Bon tricot!
24.01.2023 - 16:40
White Trail#whitetrailsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með v-hálsmáli og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-6 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 106 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 5,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca. 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka. Síðan er fram- og bakstykkið prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/hringprjóna, upp að ermakúpu, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka. Að lokum er prjónaður i-cord kantur aftan í hnakka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 112-124-136-148-164-180 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff þannig: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 3 cm. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 106-118-130-142-158-174 lykkjur og fækkið jafnframt um 18-24-26-28-32-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, prjónið 3 lykkjur garðaprjón = 94-100-110-120-132-144 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Nú er prjónað sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Klippið þráðinn. Geymið stykkið. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki, en ekki klippa þráðinn frá. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón = 188-200-220-240-264-288 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með GARÐAPRJÓN yfir garðaprjón – sjá útskýringu að ofan (= 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 6 lykkjur, prjónið mynstur þannig: Prjónið 1 lykkju slétt. Setjið eitt prjónamerki hér (eftir þessa lykkju). Þetta er núna byrjun á umferð. Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 92-98-108-118-130-142 lykkjur, A.1 yfir næstu 2 lykkjur (= yfir miðju 2 lykkjur af 6 lykkjur í garðaprjóni), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 92-98-108-118-130-142 lykkjur, prjónið A.1 yfir síðustu 2 lykkjur (= yfir miðju 2 lykkjur af 6 lykkjum í garðaprjóni). Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru lykkjur felldar af fyrir handvegi í hvorri hlið þannig: Byrjið 2-2-5-7-11-15 lykkjur fyrir byrjun á umferð, fellið af næstu 2-2-8-12-20-28 lykkjur fyrir handveg, prjónið þar til 0-0-3-5-9-13 lykkjur eru eftir á undan næsta A.1, fellið af næstu 2-2-8-12-20-28 lykkjur fyrir handveg, prjónið út umferðina = 92-98-102-108-112-116 lykkjur bæði á framstykki og bakstykki. FRAMSTYKKI: = 92-98-102-108-112-116 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm (ca 3 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg í hvorri hlið), prjónið fyrstu umferð í A.2 yfir miðju 10 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, brugðnar lykkjur yfir næstu 45-48-50-53-55-57 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= 46-49-51-54-56-58 lykkjur fyrir hægra framstykki/öxl), prjónið brugðnar lykkjur yfir næstu 45-48-50-53-55-57 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 46-49-51-54-56-58 lykkjur fyrir vinstra framstykki/öxl). VINSTRA FRAMSTYKKI/ÖXL: Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, sléttprjón þar til 13 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri fyrir v-hálsmáli), prjónið A.3 yfir síðustu 11 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu með A.3 við v-hálsmál, 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur og fellið af fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð 10-10-11-11-12-12 sinnum og í 4. hverri umferð 7 sinnum = 29-32-33-36-37-39 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Nú eru prjónaðar stuttar umferðir yfir öxl (mynstrið heldur áfram eins og áður yfir 11 lykkjur við hálsmál) þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Snúið, prjónið þar til 6-6-7-7-8-8 lykkjur eru eftir í umferð. UMFERÐ 3: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 4: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 5: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 6: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 7: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 8: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 9: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 10: Prjónið fyrstu 3 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (í frágangi eru lykkjurnar settar við kant í hálsmáli í bakstykki), fellið af þær lykkjur sem eftir eru á öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI/ÖXL: Prjónið mynstur þannig frá réttu þannig: A.4 yfir fyrstu 11 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri fyrir v-hálsmál), prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu með A.4 við v-hálsmál, sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð 10-10-11-11-12-12 sinnum og í 4. hverri umferð 7 sinnum = 29-32-33-36-37-39 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm. Nú eru snúningar prjónaðir yfir öxl (mynstrið heldur áfram eins og áður yfir 11 lykkjur við hálsmál) þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið þar til eftir eru 6-6-7-7-8-8 lykkjur í umferð. UMFERÐ 2: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 3: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 4: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 5: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 6: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 7: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 8: Snúið, herðið á þræði og prjónið til baka. UMFERÐ 9: Prjónið fyrstu 3 lykkjur áður en þær eru settar á þráð, fellið af þær lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum. BAKSTYKKI: = 92-98-102-108-112-116 Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið miðju 38-38-40-40-42-42 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 26-29-30-33-34-36 lykkjur fyrir öxl. Haldi áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg, jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir á öxlum þannig: Hægri öxl: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Snúið, prjónið þar til 6-6-7-7-8-8 lykkjur eru eftir í umferð. UMFERÐ 3: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 4: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 5: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 6: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 7: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 8: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 9: Snúið, herðið á þræði og prjónið til baka. Þegar stutta umferðir hafa verið prjónaðir til loka eru allar lykkjur felldar af með brugðnum lykkjum frá röngu. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. Vinstri öxl: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið þar til eftir eru 6-6-7-7-8-8 lykkjur í umferð. UMFERÐ 2: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 3: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 4: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 5: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 6: Snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina. UMFERÐ 7: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-4-4 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. UMFERÐ 8: Snúið, herðið á þræði og prjónið til baka. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðir til loka eru allar lykkjur felldar af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Fitjið upp 64-68-72-72-76-76 lykkjur á sokkaprjóna 3 með Belle. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-16-14-16-14 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið mynstur þannig: A.1 yfir fyrstu 2 lykkjur, sléttar lykkjur þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar ermin mælist 8-8-8-8-6-7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 12-13-14-15-16-17 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Þegar ermin mælist 51-50-49-48-46-44 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Prjónið sléttprjón frá miðju í A.1 þar til ermin mælist ca 52-51-51-51-51-51 cm. Fellið af. Prjónið hina ermin á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – byrjið yst á öxl og saumið lykkjur eina og eina inn að hálsmáli þar til 3 lykkjur eru eftir á framstykki (það eru 3 lykkjur fleiri á framstykki en á bakstykki). Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 42 til 46 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði) upp að næsta axlasaum á bakstykki. Klippið þráðinn, það á núna að prjóna i-cord í þessar lykkjur þannig: Setjið 3 lykkjur af þræði í kanti á hægra framstykki á prjón 3. Prjónið i-cord frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu lykkju snúna slétt saman með fyrstu/næstu lykkju sem prjónuð var upp á bakstykki. Færið til baka 3 lykkjur frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón (í þeirri röð sem þær eru í). Haldið svona áfram meðfram öllum kantinum í hálsmáli á bakstykki þar til ekki fleiri lykkjur eru eftir til að prjóna í. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Saumið ystu 3 lykkjur saman við 3 lykkjur af þræði á vinstra framstykki. Klippið þræðina og festið. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitetrailsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.