Angelika skrifaði:
Das Kleidchen würde ich gerne von unten nach oben stricken. Gibt es da eine Anleitung zu.
12.05.2022 - 20:23DROPS Design svaraði:
Liebe Angelika, dieses Modell wird nur von unten nach oben gestrickt, aber hier finden Sie andere Modelle, die von unten nach oben gestrickt werden. Schauen Sie aber gerne unten unter Video und Lektionnen, dort zeigen wir, wie ein Pullover von unten nach oben gestrickt wird, es kann Ihnen vielleicht helfen. Viel Spaß beim stricken!
13.05.2022 - 08:11
Mas T skrifaði:
Nella versione italiana non c'è scritto A2. Comunque ho compreso. Grazie mille grazie mille
10.05.2022 - 21:54DROPS Design svaraði:
Buonasera Mas, abbiamo corretto la versione italiana, grazie per la segnalazione. Buon lavoro!
10.05.2022 - 23:02
Mas T skrifaði:
C'è un errore nello sprone? bisogna lavorare A1 e poi 22 volte A2?
10.05.2022 - 13:37DROPS Design svaraði:
Buonasera Mas, non ci sono errori nella spiegazione dello sprone. A.2 dev'essere lavorato 22 volte sul giro. Buon lavoro!
10.05.2022 - 21:13
Bellflower Dress#bellflowerdress |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð 0 - 4 ára.
DROPS Baby 43-11 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Lykkjur eru auknar út á undan og á eftir hverju prjónamerki (þ.e.a.s. fyrsta útaukning er gerð á undan hverju prjónamerki, önnur útaukning er gerð á eftir hverju prjónamerki o.s.frv.). AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á UNDAN HVERJU PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á EFTIR HVERJU PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu innan við 1 lykkju: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrra hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir seinna hnappagatinu þegar stykkið mælist 5-6 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna niður að klauf mitt að aftan. Síðan er prjónað í hring. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum. Fram- og bakstykkið er síðan prjónað í hring á hringprjóna. Kantar á ermum eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 71-77-83-89 (95-95) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff í 1 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, A.1, prjónið A.2 alls 20-22-24-26 (28-28) sinnum og 5 lykkjur í garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 131-143-155-167 (179-179) lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 3-3-3-4-4-4 cm. Nú er mynstur prjónað þannig: 5 lykkjur í garðaprjóni, A.3, prjónið A.4 alls 19-21-23-25 (27-27) sinnum, A.5 og 5 lykkjur í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.3 til A.5 er aukið út um 0-0-0-0 (0-10) lykkjur jafnt yfir. Þegar A.3 til A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 191-209-227-245 (263-273) lykkjur. Stykkið mælist ca 10-10-10-12-12-12 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af 5 fyrstu lykkjur og prjónaðar eru sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru = 186-204-222-240 (258-268) lykkjur. Prjónið nú sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Færið umferðina til um 3 lykkjur, þannig að núna byrjar umferðin ca mitt að aftan. Þegar stykkið mælist 11-11-12-13 (14-15) cm, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 26-29-30-34 (37-39) lykkjur slétt, setjið næstu 40-44-50-52 (54-56) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4 lykkjur undir ermi, 53-58-61-68 (75-78) lykkjur slétt, setjið næstu 40-44-50-52 (54-56) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4 lykkjur undir ermi og endið með 27-29-31-34 (38-39) lykkjur slétt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 114-124-130-144 (158-164) lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 7-7-8-9 (10-10) lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki, * 14-15-16-18 (19-20) lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki, 14-16-16-18 (20-21) lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, 15-16-17-18 (20-20) lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki og endið með 8-8-9-9 (11-11) lykkjur slétt. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Aukið svona út í 4.-4.-5.-5. (6.-6.) hverri umferð alls 9-10-11-12 (12-13) sinnum = 186-204-218-240 (254-268) lykkjur. Þegar fram- og bakstykki mælist 14-18-21-24 (25-28) cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-0 (2-4) lykkjur jafnt yfir = 192-208-224-240 (256-272) lykkjur. Prjónið síðan A.6 umferðina hringinn. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka, eru 288-312-336-360 (384-408) lykkjur í umferð. Fellið af með sléttum lykkjum. Kjólinn mælist ca 36-40-44-48 (50-54) cm frá öxl. KANTUR ERMI: Setjið 40-44-50-52 (54-56) lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 4 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-54-56 (58-60) lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1-1-1-2-2-2 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 4-3-3-4 (5-6) lykkjur jafnt yfir = 48-51-57-60 (63-66) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar kantur í ermi mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá skiptingu. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið hægri kant (kantur sem felldur var af) undir vinstri kant og saumið niður. Saumið tölur í hægri kant. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bellflowerdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.