Echo Mountain Cardigan#echomountaincardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-17 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun. Byrjið frá röngu, prjónið þar til 16-16-18-18-20-20 lykkjur eru á prjóni, snúið stykki, herðið á þræði og prjónið þar til 16-16-18-18-20-20 lykkjur eru eftir í hinni hliðinni. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 32-32-36-36-40-40 lykkjur á prjóni, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 32-32-36-36-40-40 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 48-48-54-54-60-60 lykkjur á prjóni, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 48-48-54-54-60-60 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu út umferðina. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-8-8-8½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka ef óskað er eftir því. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 97-101-105-105-109-113 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúna slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 4 cm, aukið út aðra hverja 1 lykkju brugðið (séð frá réttu) til 2 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir annarri hverri brugðinni lykkju = 118-123-128-128-133-138 lykkjur. Haldið áfram með stroff – ATH. Í fyrstu umferð er uppslátturinn frá útaukningu prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 9-10-11-15-18-21 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 127-133-139-143-151-159 lykkjur. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið gerð til loka, prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í berustykki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan í 2-3-3-4-4-5 cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 16-20-24-30-32-34 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 143-153-163-173-183-193 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 13-14-15-16-17-18 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (án þess að auka út) þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 247-265-283-317-336-355 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 6-8-10-8-5-6 lykkjur jafnt yfir = 253-273-293-325-341-361 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 42-45-48-52-56-60 lykkjur (framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 73-79-85-93-101-109 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 42-45-48-52-56-60 lykkjur (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 169-181-197-213-233-253 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 24 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-36-40-42-46-50 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 203-217-237-255-279-303 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúna brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúna slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 3-5-8-8-9-11 sinnum = 48-48-48-56-56-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 32-30-29-28-26-25 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 12 cm til loka máls. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd á undan gatamynstri og stroffi. Prjónið A.2 alls 6-6-6-7-7-7 sinnum hringinn á ermi. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Haldið áfram með stroff með 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er önnur hver 1 lykkja brugðið aukin út til 2 lykkjur brugðið = 60-60-60-70-70-70 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 43-42-40-39-37-36 cm frá skiptingu. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #echomountaincardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.