Milly Dalle skrifaði:
Yes now I understand the chart. Thank you for your speedy reply!
17.04.2022 - 20:38
Milly Dalle skrifaði:
Why are there 2 consecutive yarn overs in chart A3 of baby jacket 43-6? Even twisting the yarn on the next row may leave a hole. Please clarify this chart. Thank you
16.04.2022 - 01:13DROPS Design svaraði:
Dear Milly, there are no 2 consecutive yarn overs. You have 1 yarn over, knit 1 and 1 yarn over. Happy knitting!
17.04.2022 - 11:57
Sussi skrifaði:
Ja tack
07.04.2022 - 06:46
Sweet Gleam Cardigan#sweetgleamcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og stroffprjóni á berustykki. Stærð fyrirburar til 2 ára.
DROPS Baby 43-6 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kanturinn í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm, fellið síðan af fyrir (3) 4-5-5-5 (5) næstu hnappagötum með ca (5) 5-5-5-5½ (6) cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp (59) 63-71-75-79 (83) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í (2) 2-3-3-4 (4) cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð frá réttu er önnur hver 1 lykkja brugðið aukin út til 2 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn – byrjið útaukningu í 2. lykkju brugðið á eftir kanti að framan (frá röngu er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat) = (12) 13-15-16-17 (18) lykkjur fleiri = (71) 76-86-91-96 (101) lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist (3) 3-4-4-5 (5) cm. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um (3) 2-0-3-2 (1) lykkjur jafnt yfir = (74) 78-86-94-98 (102) lykkjur. Eftir garðaprjón er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * A.1, A.2 *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Á eftir fyrstu umferð eru (107) 113-125-137-143 (149) lykkjur í umferð. Prjónið A.1 og A.2 til loka, síðan er haldið áfram með 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist (4) 5-5-5-6 (6) cm frá prjónamerki við hálsmál. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: STÆRÐ (fyrirburar): 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * A.3, A.4 *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. STÆRÐ 0/1 – 1/3 – 6/9 – 12/18 mánaða (2 ÁRA): 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * A.3, A.5 *, prjónið *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Á eftir fyrstu umferð eru (141) 166-184-202-211 (220) lykkjur í umferð. Prjónið A.3 og A.4/A.5 til loka, síðan er haldið áfram með 5 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið í stærð (fyrirburar) og 5 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið í hinum stærðum þar til stykkið mælist (8) 10-10-10-12 (12) cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til (139) 163-175-191-195 (207) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist (10) 11-12-12-13 (14) cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu (22) 26-28-30-31 (33) lykkjur eins og áður, setjið næstu (30) 34-36-40-40 (42) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu (35) 43-47-51-53 (57) lykkjur eins og áður, setjið næstu (30) 34-36-40-40 (42) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu (22) 26-28-30-31 (33) lykkjur eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = (87) 103-115-123-131 (139) lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist (6) 9-12-12-15 (16) cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (12) 14-16-18-18 (20) lykkjur jafnt yfir = (99) 117-131-141-149 (159) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í (2) 2-2-3-3 (3) cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca (20) 24-28-30-34 (36) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið (30) 34-36-40-40 (42) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (34) 38-42-46-48 (50) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi (á ekki við um stærð fyrirburar og 0/1 mánaða) – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls (0) 0-1-1-1 (2) sinnum á hæðina = (34) 38-40-44-46 (46) lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist (5) 8-10-13-15 (19) cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca (2) 2-2-3-3 (3) cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (0) 0-0-4-4 (2) lykkjur jafnt yfir = (34) 38-40-40-42 (44) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í (2) 2-2-3-3 (3) cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca (7) 10-12-16-18 (22) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetgleamcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.