DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2992.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Gleam

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og stroffprjóni á berustykki. Stærð fyrirburar til 2 ára.

DROPS Baby 43-5
DROPS Design: Mynstur sk-007-by
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
(<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 ára)
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92)

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
(100) 100-100-100-150 (150) g litur 02, perlugrár

DROPS TALA NR 628: 3 stykki (ef stykkið er prjónað með opi/klauf mitt að aftan).

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2992.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT (ef prjónað er með opi/klauf mitt að aftan):
Fellið af fyrir hnappagötum í byrjun á umferð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½ cm, fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með (2½) 2½-3-3-4 (4) cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ef prjónað er op/klauf mitt að aftan er fyrst prjónað fram og til baka, áður en stykkið er sett saman og prjónað í hring.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

PEYSA EKKI MEÐ OPI/KLAUF MITT AÐ AFTAN:
Fitjið upp (52) 56-60-64-68 (72) lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Sky.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í (2) 2-3-3-4 (4) cm.
Í næstu umferð er aukið út önnur hver 1 lykkja brugðið til 2 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat) = (13) 14-15-16-17 (18) lykkjur fleiri = (65) 70-75-80-85 (90) lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist (3) 3-4-4-5 (5) cm.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til (64) 68-76-80-84 (88) lykkjur.
Eftir garðaprjón er næsta umferð prjónuð þannig: * A.1, A.2 *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = (96) 102-114-120-126 (132) lykkjur í umferð.
Prjónið A.1 og A.2 til loka, haldið síðan áfram með 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist (4) 5-5-5-6 (6) cm frá prjónamerki við hálsmál.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
STÆRÐ (<0):
* A.3, A.4 *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
STÆRÐ 0/1 – 1/3 – 6/9 – 12/18 mánaða (2 ÁRA):
* A.3, A.5 *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Á eftir fyrstu umferð eru (128) 153-171-180-189 (198) lykkjur eftir í umferð. Prjónið A.3 og A.4/A.5 til loka, haldið síðan áfram með 5 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið í stærð (<0) og 5 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið í hinum stærðum þar til stykkið mælist (8) 10-10-10-12 (12) cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan í PEYSA.

PEYSA MEÐ OPI/KLAUF MITT AÐ AFTAN:
Fitjið upp (57) 61-65-69-73 (77) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að aftan): 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í (2) 2-3-3-4 (4) cm – munið eftir HNAPPAGAT í kanti – sjá útskýringu að ofan.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út önnur hver 1 lykkja brugðið til 2 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (frá röngu er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat) = (12) 13-14-15-16 (17) lykkjur fleiri = (69) 74-79-84-89 (94) lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist (3) 3-4-4-5 (5) cm.
Setjið 1 prjónamerki eftir kant í byrjun á umferð mitt að aftan. Stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um (1) 0-3-2-1 (0) lykkjur jafnt yfir = (70) 74-82-86-90 (94) lykkjur.
Eftir garðaprjón er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 4 lykkjur í garðaprjóni, * A.1, A.2 *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 og 4 lykkjur í garðaprjóni = (101) 107-119-125-131 (137) lykkjur í umferð.
Prjónið A.1 og A.2 til loka, haldið síðan áfram með 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist (4) 5-5-5-6 (6) cm frá prjónamerki við hálsmál. Setjið nú stykkið saman eins og útskýrt er að neðan:
Leggið kant fyrir tölur í byrjun á umferð yfir síðustu 4 lykkjur í umferð þannig að kantur með hnappagötum liggi efst. Prjónið lykkjur frá tveimur köntum með hnappagötum/tölum slétt saman 2 og 2 (= 4 lykkjur færri) = (97) 103-115-121-127 (133) lykkjur í umferð.
Prjónið síðan afgang af umferð þannig (eftir 4 lykkjur garðaprjón frá kanti með hnappagötum/tölum):
STÆRÐ (<0):
* A.3, A.4 *, prjónið *-* prjónið þar til 3 lykkjur eru á eftir kanti með hnappagötum/tölum, prjónið A.3, prjónið 2 lykkjur brugðið (2 fyrstu lykkjur frá kanti með hnappagötum/tölum).
STÆRÐ 0/1 – 1/3 – 6/9 – 12/18 mánaða (2 ÁRA):
* A.3, A.5 *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á undan kanti með hnappagötum/tölum, prjónið A.3, prjónið 2 lykkjur brugðið (2 fyrstu lykkjur frá kanti með hnappagötum/tölum).
Umferðin byrjar núna mitt í kanti með hnappagötum/tölum og eftir fyrstu umferð eru (129) 153-171-180-189 (198) lykkjur í umferð. Prjónið A.3 og A.4/A.5 til loka (4 lykkjur frá kanti með hnappagötum/tölum mitt að aftan eru nú prjónaðar eins og útskýrt er í A.4), haldið síðan áfram með 5 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið yfir þær lykkjur sem eftir eru í stærð (<0) og 5 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið í hinum stærðum þar til stykkið mælist (8) 10-10-10-12 (12) cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan í PEYSA:

PEYSA:
Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur og jafnið jafnframt lykkjufjöldann út til (132) 152-164-180-184 (200) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið.
Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (10) 11-12-12-13 (14) cm frá prjónamerki við hálsmál.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu (18) 21-23-25-26 (29) lykkjur, setjið næstu (30) 34-36-40-40 (42) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu (36) 42-46-50-52 (58) lykkjur, setjið næstu (30) 34-36-40-40 (42) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu (18) 21-23-25-26 (29) lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= (80) 92-104-112-120 (132) lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist (6) 9-12-12-15 (16) cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um (12) 14-16-18-18 (20) lykkjur jafnt yfir = (92) 106-120-128-138 (152) lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í (2) 2-2-3-3 (3) cm. Fellið aðeins laust af.
Peysan mælist ca (20) 24-28-30-34 (36) cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið (30) 34-36-40-40 (42) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (34) 38-42-46-48 (50) lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi (á ekki við um stærð <0 og 0/1 mánaða) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls (0) 0-1-1-1 (2) sinnum á hæðina = (34) 38-40-44-46 (46) lykkjur.
Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist (5) 8-10-13-15 (19) cm frá skiptingu.
Nú eru eftir ca (2) 2-2-3-3 (3) cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (0) 0-0-4-4 (2) lykkjur jafnt yfir = (34) 38-40-40-42 (44) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í (2) 2-2-3-3 (3) cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca (7) 10-12-16-18 (22) cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Ef peysan er prjónuð með opi/klauf mitt að aftan, saumið tölur í kant fyrir tölur sem er án hnappagata.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2022
PEYSA MEÐ OP/KLAUF MITT AÐ AFTAN:...Leggið kant fyrir tölur í byrjun á umferð yfir síðustu 4 lykkjur í umferð þannig að kantur með hnappagötum liggi efst. Prjónið lykkjur frá tveimur köntum með hnappagötum/tölum slétt saman 2 og 2 (= 4 lykkjur færri) = (97) 103-115-121-127 (133) lykkjur í umferð.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga ekki að myndast göt)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet Gleam

Gabriela, Germany

Sweet Gleam

HEPcrafty1

Sweet Gleam

HEPcrafty1

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Quirien wrote:

Sweet gleam 6/9 maanden heeft 100 gram garen nodig, terwijl Dream in blue en Drops baby 2-10 beiden voor 6/9 maanden 200 gram garen rekenen. Ze zitten alle drie in dezelfde garen groep. Is deze 100 gram correct?

07.04.2024 - 12:29

country flag Quirien wrote:

Sweet gleam 6/9 maanden heeft 100 gram garen nodig, terwijl Dream in blue en Drops baby 2-10 beiden voor 6/9 maanden 200 gram garen rekenen. Ze zitten alle drie in dezelfde garen groep. Is deze 100 gram correct?

05.04.2024 - 19:22

DROPS Design answered:

Dag Quirien,

Ja dat klopt, want DROPS Sky is heel licht garen, waardoor je minder grammage nodig hebt. (Het gaat uiteindelijk om de totale looplengte van het garen.)

07.04.2024 - 18:05

country flag Calandra wrote:

A la fin du col je ne comprends pas comment on pass de 84 à 126 mailles Pull sans ouverture au milieu

01.03.2024 - 15:23

DROPS Design answered:

Bonjour Calendra, vous allez augmenter comme indiqué dans les diagrammes A.1 et A.2 (1 maille au 1er tour de chaque diagramme), autrement dit, vous tricotez 21 fois (A.1,A.2) tout le tour, vous allez donc augmenter 21 fois 2 mailles au 1er tour = 84+42= 126 mailles. Bon tricot!

01.03.2024 - 16:03

country flag Madelyn wrote:

What's the yarn weight?

22.01.2024 - 21:52

country flag Jennifer wrote:

Hello, I don't understand the point of increasing every other purl-1 to purl-2 by making 1 yarn over. I knitted a jumper without split mid-back and cast on 72 stitches. There are 36 purl stitches, so if I finish the increase, are there 36 increased stitches?

14.01.2024 - 13:44

DROPS Design answered:

Dear Jennifer, it's every other (= alternate) purl-1 to purl-2. Therefore, you should have alternate sections of k1,p1 and k1,p2. For example: knit 1, purl 1, knit 1, purl 2, knit 1, purl 1, knit 1, purl 2..... So you increase not in each of the 36 purl stitches but in half of them (= 18 stitches). This will slightly increase the number of stitches in the neck to better shape the neck and get closer to the stitches for the rest of the piece. Happy knitting!

14.01.2024 - 19:34

country flag Jutta wrote:

Hallo, ich stricke gerade den Pullover Sweet Gleam für meine Enkeltochter. Er gefällt mir so gut. Gibt es auch eine Strickanleitung für die Größe 40? Liebe Grüße Jutta

07.01.2024 - 22:07

DROPS Design answered:

Liebe Jutta, hier finden Sie einen ähnlichen Pullover für Damen. Viel Spaß beim stricken!

08.01.2024 - 10:47

country flag Marie wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas lorsque vous dîtes continuer en faisant A.3, A.5 *, tricoter de *-* jusqu'à la fin du tour. Pouvez vous me dire si je dois faire d'abord A3 puis après A5, ou bien est ce que je fais une ligne de A3 puis une ligne de A5 sur un tour . ? Dans l'attente de votre retour.

27.11.2023 - 18:06

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, vous devez répéter les indications entre les *, autrement dit, vous tricotez *le diagramme A.3 (= 3 mailles + 2 jetés au 2er rang), puis le diagramme A.5 (=3 mailles + 1 jeté au 1er rang)*, et vous répétez de *à* tout le tour, autrement dit, vous tricotez alternativement A.3 et A.5. Après le 1er rang, vous avez des côtes 5 mailles endroit/4 mailles envers et continuez ainsi en côtes jusqu'à la hauteur indiquée pour la taille tricotée. Bon tricot!

28.11.2023 - 08:37

country flag June wrote:

Synes bærestykket er alt for bredt, i forhold til bluse, jeg skulle tage 32 masker ind, før start på bluse. Så ikke en god opskrift, efter min mening.

23.11.2023 - 20:04

country flag Celine Ciolek wrote:

Bonjour j ai tricote les cote 1/1 pendant 4 cm je suis a étape augmentation 1 mailles envers sur 2 ... ma question est la suivant je fais augmentation du jeté , avant la maille envers ou après le maille envers en espèrent que ma question est éclair pour vous ....

14.11.2023 - 15:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ciolek, ce n'est pas bien important, vous pouvez augmenter soit au début des sections en mailles envers, soit à la fin. Bon tricot!

15.11.2023 - 07:54

country flag June wrote:

Forstår stadig ikke at man i str. 6/9 md. Får 190 masker efter mønster A3 og A5, når Opskriften siger 180 masker? Skal man så tage ind inden, man begynder på bluse???

06.11.2023 - 13:40

DROPS Design answered:

Hej June, ja hvis du ikke har 180 masker, skal de justeres til 180 masker på første omgang ret :)

09.11.2023 - 15:15