Catherine skrifaði:
I’m knitting this jumper and I’m a bit confused - I’ve just completed the yoke but have far more stitches than the pattern suggests I ought to have. I have 207 stitches and I’m knitting size 1-3m. The pattern says to “adjust to 164 stitches”, which seems a considerable decrease. Is this correct? Thank you!
19.09.2022 - 23:37DROPS Design svaraði:
Dear Catherine, it looks like you have too many stitches in this size, you should have only 171 sts before starting the section and the round adjusting to 164 - where you are just supposed to decrease 7 sts evenly on the round (see here). Happy knitting!
20.09.2022 - 09:57
Barbara skrifaði:
🤣Und bei mir auch, nicht Feuerteufel, natürlich Fehlerteufel
27.08.2022 - 13:48
Barbara skrifaði:
Das erstmal vorweg, eure Anleitungen und Garne sind super, stricke gerade den Sweet Gleam Pulli mit Schlitz in Größe 80/86, und da hat sich, glaube ich, ein Feuerteufel eingeschlichen, bei der Zusammenführung der Knopfleiste werden 4 Maschen zusammen gestrickt, ich hatte vorher 131 - 4=127 und nicht 137 Liebe Grüße
27.08.2022 - 13:45
Ana Montoya skrifaði:
Buenos días: En el patrón 43/5, jersey con abertura en la espalda, no entiendo cómo unir los 4 puntos musgo de la cenefa, con los otros 4 puntos musgo de la otra cenefa, para continuar tejiendo en redondo. Tienen un video? o mejor explicación ? Mil gracias. Ana.
21.08.2022 - 18:22DROPS Design svaraði:
Hola Ana, colocamos los 4 puntos de la cenefa con ojales sobre la cenefa donde vamos a coser los botones. Ahora, trabajar juntos el primer punto de una cenefa con el 4º pt de la otra, el 2º pt con el 3º de la otra cenefa, el 3º pt con el 2º de la otra cenefa y el 4º punto con el 1º de la otra cenefa.
21.08.2022 - 20:29
Anita skrifaði:
Kan ikke forstå hvordan der kan tages ud. Der bliver for mange masker ? Det kommer heller ikke til at passe med ret/vrang På næste omgang tages hver 2. 1 vrang ud til 2 vrang ved at slå om (på næste omgang strikkes omslaget drejet vrang, så det ikke bliver hul) = (13) 14-15-16-17 (18) masker taget ud = (65) 70-75-80-85 (90) masker.
03.06.2022 - 19:38
Susan skrifaði:
Will there be an adult version of this?
28.04.2022 - 07:19DROPS Design svaraði:
Dear Susan, Mayan Sun might be the one you are looking for. Happy knitting!
28.04.2022 - 11:51
Paula skrifaði:
Kann es sein, dass die Diagramme A3,4,5 falsch gekennzeichnet sind? In der Anleitung steht 3/4 Maschen links und 5 rechts, die Diagramme zeigen Unterschiede in jeder Reihe, mal eine Reihe links, mal rechts.
07.04.2022 - 21:09DROPS Design svaraði:
Liebe Paula, bei der 4. Reihe in A.3 und A.4/A.5 stricken Sie eine Hinreihe links (in Runden) oder eine Rückreihe rechts (in Reihen). Nach A.3+ A.4/A.5 stricken Sie mit Rippenmuster5 M re (über A.3) 3 M links (A.4) oder 4 M links (A.5). Viel Spaß beim stricken!
08.04.2022 - 08:38
Sweet Gleam#sweetgleamsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og stroffprjóni á berustykki. Stærð fyrirburar til 2 ára.
DROPS Baby 43-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT (ef prjónað er með opi/klauf mitt að aftan): Fellið af fyrir hnappagötum í byrjun á umferð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½ cm, fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með (2½) 2½-3-3-4 (4) cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ef prjónað er op/klauf mitt að aftan er fyrst prjónað fram og til baka, áður en stykkið er sett saman og prjónað í hring. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. PEYSA EKKI MEÐ OPI/KLAUF MITT AÐ AFTAN: Fitjið upp (52) 56-60-64-68 (72) lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í (2) 2-3-3-4 (4) cm. Í næstu umferð er aukið út önnur hver 1 lykkja brugðið til 2 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat) = (13) 14-15-16-17 (18) lykkjur fleiri = (65) 70-75-80-85 (90) lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist (3) 3-4-4-5 (5) cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til (64) 68-76-80-84 (88) lykkjur. Eftir garðaprjón er næsta umferð prjónuð þannig: * A.1, A.2 *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = (96) 102-114-120-126 (132) lykkjur í umferð. Prjónið A.1 og A.2 til loka, haldið síðan áfram með 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist (4) 5-5-5-6 (6) cm frá prjónamerki við hálsmál. Næsta umferð er prjónuð þannig: STÆRÐ (fyrirburar): * A.3, A.4 *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. STÆRÐ 0/1 – 1/3 – 6/9 – 12/18 mánaða (2 ÁRA): * A.3, A.5 *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Á eftir fyrstu umferð eru (128) 153-171-180-189 (198) lykkjur eftir í umferð. Prjónið A.3 og A.4/A.5 til loka, haldið síðan áfram með 5 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið í stærð (fyrirburar) og 5 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið í hinum stærðum þar til stykkið mælist (8) 10-10-10-12 (12) cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan í PEYSA. PEYSA MEÐ OPI/KLAUF MITT AÐ AFTAN: Fitjið upp (57) 61-65-69-73 (77) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að aftan): 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í (2) 2-3-3-4 (4) cm – munið eftir HNAPPAGAT í kanti – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð frá réttu er aukið út önnur hver 1 lykkja brugðið til 2 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (frá röngu er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat) = (12) 13-14-15-16 (17) lykkjur fleiri = (69) 74-79-84-89 (94) lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist (3) 3-4-4-5 (5) cm. Setjið 1 prjónamerki eftir kant í byrjun á umferð mitt að aftan. Stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um (1) 0-3-2-1 (0) lykkjur jafnt yfir = (70) 74-82-86-90 (94) lykkjur. Eftir garðaprjón er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 4 lykkjur í garðaprjóni, * A.1, A.2 *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 og 4 lykkjur í garðaprjóni = (101) 107-119-125-131 (137) lykkjur í umferð. Prjónið A.1 og A.2 til loka, haldið síðan áfram með 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist (4) 5-5-5-6 (6) cm frá prjónamerki við hálsmál. Setjið nú stykkið saman eins og útskýrt er að neðan: Leggið kant fyrir tölur í byrjun á umferð yfir síðustu 4 lykkjur í umferð þannig að kantur með hnappagötum liggi efst. Prjónið lykkjur frá tveimur köntum með hnappagötum/tölum slétt saman 2 og 2 (= 4 lykkjur færri) = (97) 103-115-121-127 (133) lykkjur í umferð. Prjónið síðan afgang af umferð þannig (eftir 4 lykkjur garðaprjón frá kanti með hnappagötum/tölum): STÆRÐ (fyrirburar): * A.3, A.4 *, prjónið *-* prjónið þar til 3 lykkjur eru á eftir kanti með hnappagötum/tölum, prjónið A.3, prjónið 2 lykkjur brugðið (2 fyrstu lykkjur frá kanti með hnappagötum/tölum). STÆRÐ 0/1 – 1/3 – 6/9 – 12/18 mánaða (2 ÁRA): * A.3, A.5 *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á undan kanti með hnappagötum/tölum, prjónið A.3, prjónið 2 lykkjur brugðið (2 fyrstu lykkjur frá kanti með hnappagötum/tölum). Umferðin byrjar núna mitt í kanti með hnappagötum/tölum og eftir fyrstu umferð eru (129) 153-171-180-189 (198) lykkjur í umferð. Prjónið A.3 og A.4/A.5 til loka (4 lykkjur frá kanti með hnappagötum/tölum mitt að aftan eru nú prjónaðar eins og útskýrt er í A.4), haldið síðan áfram með 5 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið yfir þær lykkjur sem eftir eru í stærð (fyrirburar) og 5 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið í hinum stærðum þar til stykkið mælist (8) 10-10-10-12 (12) cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan í PEYSA: PEYSA: Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur og jafnið jafnframt lykkjufjöldann út til (132) 152-164-180-184 (200) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist (10) 11-12-12-13 (14) cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu (18) 21-23-25-26 (29) lykkjur, setjið næstu (30) 34-36-40-40 (42) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu (36) 42-46-50-52 (58) lykkjur, setjið næstu (30) 34-36-40-40 (42) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu (18) 21-23-25-26 (29) lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = (80) 92-104-112-120 (132) lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist (6) 9-12-12-15 (16) cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um (12) 14-16-18-18 (20) lykkjur jafnt yfir = (92) 106-120-128-138 (152) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í (2) 2-2-3-3 (3) cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca (20) 24-28-30-34 (36) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið (30) 34-36-40-40 (42) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (34) 38-42-46-48 (50) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi (á ekki við um stærð fyrirburar og 0/1 mánaða) – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls (0) 0-1-1-1 (2) sinnum á hæðina = (34) 38-40-44-46 (46) lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist (5) 8-10-13-15 (19) cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca (2) 2-2-3-3 (3) cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (0) 0-0-4-4 (2) lykkjur jafnt yfir = (34) 38-40-40-42 (44) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í (2) 2-2-3-3 (3) cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca (7) 10-12-16-18 (22) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Ef peysan er prjónuð með opi/klauf mitt að aftan, saumið tölur í kant fyrir tölur sem er án hnappagata. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetgleamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.