Martha skrifaði:
Veldig fin jakke. En feil i oppskriften: i "DEL TIL BOL OG ERMER SLIK:" så er det like før blitt tydeliggjort at for str 1/3mnd er 202 masker på pinnene. Når man skal dele til bol og ermer så blir tallet på masker oppgitt i oppskriften til sammen 186 (str 0/1mnd). Man må da følge str 6/9 mnd når man deler bol og ermer.
13.09.2022 - 11:59
Myriam skrifaði:
Bonjour, désolé mais j'ai encore une question . Vous précisez qu'il faut replacer les 4 marqueurs pour l'augmentation de l'emplacement. Etant donné que les marqueurs se trouvent dans les mailles et non plus sur l'aiguille , est ce que l'on doit faire suivre le marqueur à la première et dernière maille tout en respectant les augmentations ou les faire suivre en désignant les mêmes mailles d'avant l'augmentation de l'emplacement ?
09.07.2022 - 03:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Myriam, les marqueurs doivent toujours rester dans la même maille, autrement dit, faites les bien suivre au fur et à mesure, vous pourrez ainsi mieux repérer l'emplacement des augmentations (=de chaque côté de cette maille avec le marqueur). Bon tricot!
11.07.2022 - 08:52
Myriam skrifaði:
Bonjour , lors des augmentations des manches , si je comprends bien, il s'agit d'augmenter une mailles tricotée à l'envers avant ou apres les marqueurs désignés. Mais sur l'envers du travail faut il tricoter cette maille à l'endroit ou la tricoter à l'envers sur l'envers ?
08.07.2022 - 09:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Myriam, les augmentations des manches se tricotent comme celles des épaules/manches marteau, mais vous augmentez cette fois tous les 2 rangs autrement dit tous les rangs sur l'endroit, donc comme sous AUGMENTATIONS-1 et pas -2 (je passe le message, merci d'avoir relevé ceci). Bon tricot!
08.07.2022 - 10:07
Florine skrifaði:
Bonjour, je pense que la phrase "Décaler les 4 marqueurs pour que chaque marqueur soit désormais dans la première/dernière maille des devants/ du dos, autrement dit, on doit avoir 34-32-32-32 (34) les mailles pour les manches, entre chacune des mailles avec un marqueur" est de trop car les marqueurs sont déjà positionnés ainsi quand on arrive à cette partie de l'ouvrage. Non ? Merci
17.04.2022 - 23:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Florine, auparavant les marqueurs étaient placés entre deux mailles, maintenant vous devez les placer dans une maille, autrement dit, dans la dernière maille du devant gauche, dans la 1ère et dans la dernière maille du dos et dans la première maille du devant droit. Bon tricot!
19.04.2022 - 11:19
Marisa skrifaði:
Non riesco a capire le indicazioni scritte nel paragrafo AUMENTI PER LO SPRONE: "Spostare i 4 segnapunti in modo che ognuno dei 4 segnapunti sia nella maglia più esterna a ogni lato dei davanti e dietro, con 34-32-32-32(34) maglie tra le maglie con il segnapunti sulle maniche." Se potete essere più chiari, grazie
10.04.2022 - 15:24DROPS Design svaraði:
Buonasera Marisa, deve spostare i segnapunti in modo che siano nelle ultime maglie del dietro e del davanti. Buon lavoro!
11.04.2022 - 21:30
Blue Pebbles Cardigan#bluepebblescardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti. Stærð: Fyrirburar til 2 ára.
DROPS Baby 43-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki frá réttu): Á UNDAN MERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR MERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: (á við um útaukningu fyrir axlarsæti frá röngu): Á UNDAN MERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri (séð frá réttu). Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR MERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri (séð frá réttu). Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir (3) 4-5-5-5 (5) næstu hnappagötum með ca (5) 5-5-5-5½ (6) cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, ermar og berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp (72) 76-80-84-88 (96) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í (2) 2-2-3-3 (3) cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (10) 14-14-18-18 (18) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = (82) 90-94-102-106 (114) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (þær 5 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 merki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu merki! Að auki eru sett 4 ný merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert af þessum 4 merkjum eru sett á milli 2 lykkja. Merkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og merkin verða að hafa annan lit en merki við hálsmál til að aðgreina þau. Fyrsta merki: Byrjið mitt að framan, teljið (18) 20-21-21-22-24 lykkjur (framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju. Annað merki: Teljið (10) 10-10-14-14 (14) lykkjur frá 1. merki (öxl), setjið 2. merki á undan næstu lykkju. Þriðja merki: Teljið (26) 30-32-32-34 (38) lykkjur frá 2. merki (bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju. Fjórða merki: Teljið (10) 10-10-14-14 (14) lykkjur frá 3. merki (öxl), setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Það eru (18) 20-21-21-22 (24) lykkjur eftir í umferð á eftir 4. merki (framstykki). Látið þessi 4 merki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert af þessum merkjum. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar – í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Aukið út á UNDAN 1. og 3. merki og aukið út á EFTIR 2. og 4. merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 4. og 2. merki og aukið út á EFTIR 3. og 1. merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Þ.e.a.s. aukið út í hverri umferð og aukið er út mismunandi frá réttu og frá röngu, svo að lykkjurnar leggist fallega. Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls (10) 10-10-12-12 (12) sinnum = (122) 130-134-150-154 (162) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca (3) 3-3-4-4 (4) cm frá merki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. merki og aukið út á UNDAN 2. og 4. merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Aukið svona út í annarri hverri umferð (í hverri umferð frá réttu) alls (10) 12-11-9-9 (10) sinnum = (162) 178-178-186-190 (202) lykkjur. Stykkið mælist ca (9) 11-10-10-10 (10) cm frá merki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: STÆRÐ (fyrirburar): = (162) lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 10 cm frá merki við hálsmál. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 ÁRA): Færið 4 merkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af þessum 4 merkjum sitji í ystu í lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Það eru 34-32-32-32 (34) lykkjur í hvorri ermi á milli lykkja með merki í. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af þessum 4 lykkjum með merki í – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Aukið nú út lykkjur á framstykkjum, bakstykki og á báðum ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð (í hverri umferð frá réttu) alls 1-3-4-5 (5) sinnum = 186-202-218-230 (242) lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 11-12-12-13 (13) cm frá merki við hálsmál. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 11-12-12-13 (14) cm frá merki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR ÞANNIG: Prjónið eins og áður yfir fyrstu (26) 29-32-34-36 (38) lykkjur, setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið (42) 48-54-58-62 (66) lykkjur eins og áður, setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir síðustu (26) 29-32-34-36 (38) lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = (102) 114-130-138-150 (158) lykkjur. Prjónið sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist (5) 8-11-12-14 (16) cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (14) 14-18-18-22 (22) lykkjur jafnt yfir (ekki aukið út yfir kanta að framan) = (116) 128-148-156-172 (180) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca (20) 24-28-30-33 (36) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur frá ermi af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (38) 44-48-52-56 (58) lykkjur. Setjið 1 merki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar upp undir ermi. Byrjið umferð við merki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á ekki við um stærð (fyrirburar). Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls (0) 2-2-3-4 (4) sinnum á hæðina = (38) 40-44-46-48 (50) lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist (4) 8-10-13-15 (18) cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (2) 0-0-2-0 (2) lykkjur jafnt yfir = (36) 40-44-44-48 (48) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca (7) 11-13-16-18 (21) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluepebblescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.