DROPS Super Sale - 30 % AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni í allan júlí!
Product image DROPS Baby Merino yarn
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Blue Pebbles Cardigan

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti. Stærð: Fyrirburar til 2 ára.

DROPS Baby 43-3

#bluepebblescardigan

DROPS Design: Mynstur bm-122-by
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
(fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 ára)
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92)

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(100) 100-150-150-150 (200) g litur 37, ljós lavender

DROPS TALA NR 627: (4) 5-6-6-6 (6) st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki frá réttu):
Á UNDAN MERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR MERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: (á við um útaukningu fyrir axlarsæti frá röngu):
Á UNDAN MERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri (séð frá réttu).
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
Á EFTIR MERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri (séð frá réttu).
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir (3) 4-5-5-5 (5) næstu hnappagötum með ca (5) 5-5-5-5½ (6) cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, ermar og berustykki.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp (72) 76-80-84-88 (96) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í (2) 2-2-3-3 (3) cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (10) 14-14-18-18 (18) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = (82) 90-94-102-106 (114) lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (þær 5 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar slétt).
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 merki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu merki!
Að auki eru sett 4 ný merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert af þessum 4 merkjum eru sett á milli 2 lykkja.
Merkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og merkin verða að hafa annan lit en merki við hálsmál til að aðgreina þau.
Fyrsta merki: Byrjið mitt að framan, teljið (18) 20-21-21-22-24 lykkjur (framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju.
Annað merki: Teljið (10) 10-10-14-14 (14) lykkjur frá 1. merki (öxl), setjið 2. merki á undan næstu lykkju.
Þriðja merki: Teljið (26) 30-32-32-34 (38) lykkjur frá 2. merki (bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju.
Fjórða merki: Teljið (10) 10-10-14-14 (14) lykkjur frá 3. merki (öxl), setjið 4. merki á undan næstu lykkju.
Það eru (18) 20-21-21-22 (24) lykkjur eftir í umferð á eftir 4. merki (framstykki).
Látið þessi 4 merki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert af þessum merkjum.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar – í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Aukið út á UNDAN 1. og 3. merki og aukið út á EFTIR 2. og 4. merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 4. og 2. merki og aukið út á EFTIR 3. og 1. merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2.
Þ.e.a.s. aukið út í hverri umferð og aukið er út mismunandi frá réttu og frá röngu, svo að lykkjurnar leggist fallega.
Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls (10) 10-10-12-12 (12) sinnum = (122) 130-134-150-154 (162) lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca (3) 3-3-4-4 (4) cm frá merki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Prjónið sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. merki og aukið út á UNDAN 2. og 4. merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (í hverri umferð frá réttu) alls (10) 12-11-9-9 (10) sinnum = (162) 178-178-186-190 (202) lykkjur.
Stykkið mælist ca (9) 11-10-10-10 (10) cm frá merki við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
STÆRÐ (fyrirburar):
= (162) lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 10 cm frá merki við hálsmál. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 ÁRA):
Færið 4 merkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af þessum 4 merkjum sitji í ystu í lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Það eru 34-32-32-32 (34) lykkjur í hvorri ermi á milli lykkja með merki í.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af þessum 4 lykkjum með merki í – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
Aukið nú út lykkjur á framstykkjum, bakstykki og á báðum ermum.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (í hverri umferð frá réttu) alls 1-3-4-5 (5) sinnum = 186-202-218-230 (242) lykkjur.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 11-12-12-13 (13) cm frá merki við hálsmál. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 11-12-12-13 (14) cm frá merki við hálsmál.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR ÞANNIG:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu (26) 29-32-34-36 (38) lykkjur, setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið (42) 48-54-58-62 (66) lykkjur eins og áður, setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir síðustu (26) 29-32-34-36 (38) lykkjur.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= (102) 114-130-138-150 (158) lykkjur. Prjónið sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist (5) 8-11-12-14 (16) cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (14) 14-18-18-22 (22) lykkjur jafnt yfir (ekki aukið út yfir kanta að framan) = (116) 128-148-156-172 (180) lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram í 3 cm. Fellið aðeins laust af.
Peysan mælist ca (20) 24-28-30-33 (36) cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur frá ermi af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (38) 44-48-52-56 (58) lykkjur.
Setjið 1 merki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur sem fitjaðar upp undir ermi. Byrjið umferð við merki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á ekki við um stærð (fyrirburar).
Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls (0) 2-2-3-4 (4) sinnum á hæðina = (38) 40-44-46-48 (50) lykkjur.
Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist (4) 8-10-13-15 (18) cm frá skiptingu.
Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (2) 0-0-2-0 (2) lykkjur jafnt yfir = (36) 40-44-44-48 (48) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca (7) 11-13-16-18 (21) cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.08.2022
ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:..JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1.

Mynstur

prjónstefna = prjónstefna
útaukning fyrir axlarsæti = útaukning fyrir axlarsæti
útaukning á ermum = útaukning á ermum
útaukning á berustykki = útaukning á berustykki
Diagram for DROPS Baby 43-3
Diagram for DROPS Baby 43-3

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluepebblescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Nicole skrifaði:

Bonjour AUGMENTATIONS POUR LES MANCHES: Continuer en jersey avec 5 mailles de bordure devant au point mousse de chaque côté. EN MÊME TEMPS, au rang suivant sur l'endroit, (augmenter 4 mailles pour les manches ainsi: Pourquoi au rang suivant après les augmentation des épaules je suis sur l'endroit ?? par contre j'ai 3,5cm au lieu de 4 cm est ce que je continue a augmenter de 0.5 pour avoir les 4 cm excuser moi pour les message merci de votre aide a suivre

02.07.2025 - 10:53

DROPS Design svaraði:

Bonjour Nicole, les mesures sont souvent arrondies à l'unité supérieure, continuez ainsi avec les augmentations de l'empiècement, et, quand ces augmentations sont faites, si vous n'avez pas la hauteur indiquée, tricotez - sans plus augmenter cette fois- jusqu'à la hauteur indiquée pour la taille choisie. Bon tricot!

02.07.2025 - 16:10

country flag Nicole skrifaði:

TAILLE: (préma) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mois (2 ans) Stature de l'enfant en cm: (40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92) Ps))elle est où la 4e taille 6/9 3e por Moi

23.06.2025 - 09:08

DROPS Design svaraði:

Bonjour Nicole, le 6/9 mois correspond au 68/74, 4ème taille en comptant la taille préma, 3ème taille après la parenthèse. Dans cette taille, vous allez monter 84 mailles, vous aurez 150 mailles après les augmentations des épaules, 186 après les augmentations des manches et 218 mailles après les augmentations de l'empiècement. Les nombres indiqués précédemment correspondent à la taille 1/3 mois (3ème taille en comptant la taille préma). Bon tricot!

23.06.2025 - 16:21

country flag Nicole skrifaði:

TAILLE.préma) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mois (2 ans)Stature de 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92)Bonjour La faut rectifier et préciser car avec habitude de tricoter avec vous jamais je me suis trompé les tailles sont confuses car la quatrième est est 12/18 mois donc les épaules ont combien de mailles et le devant dos ok pour la bordure 5 maille Merci de votre réponse merci de préciser

23.06.2025 - 08:37

DROPS Design svaraði:

Bonjour Nicole, la 4ème taille est la taille 6/9 mois: TAILLE: (préma) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mois (2 ans), mais dans le nombre de mailles que vous indiquez, cela correspond à la 3ème taille = 1/3 mois: 1ère taille = préma, 2ème taille: 0/1 mois, 3ème taille: 1/3 mois, 4ème taille: 6/9 mois etc... Notez également que lorsque que les explications indiquent par ex: TAILLE 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mois (2 ans):, dans cette partie, la 1ère taille est 0/1 mois, la 2ème 1/3 mois etc... car la taille préma n'est pas concernée par cette partie. Je ne suis donc pas bien sûre de la taille que vous réalisez. Merci pour votre compréhension.

23.06.2025 - 08:44

country flag Nicole skrifaði:

Je précise ma question pour le 6/9moi les épaules ont 10 mailles le devant+bordure 31 maille dans les commentaires ci dessous vous dites 32 maille pour le devant. donc si je mets mon marqueur entre 2 maille les épaules feront 8 mailles par épaule pour avoir 32 sur le devant est-ce bien celà ?? J'ai bien les 134 mailles après les épaules j'ajoute 4 x 11 milles = 178 mailles Merci de vos précisions merci de votre aide

21.06.2025 - 23:45

country flag Nicole skrifaði:

Je précise ma question pour le 6/9moi les épaules ont 10 mailles le devant+bordure 31 maille dans les commentaires ci dessous vous dites 32 maille pour le devant. donc si je mets mon marqueur entre 2 maille les épaules feront 8 mailles par épaule pour avoir 32 sur le devant est-ce bien celà ?? J'ai bien les 134 mailles après les épaules j'ajoute 4 x 11 milles = 178 mailles Merci de vos précisions merci de votre aide

21.06.2025 - 23:29

DROPS Design svaraði:

Bonjour Nicole, la taille 6/9 mois est en fait la 4ème taille, pas la 3ème, vous devez avoir 150 et non 134 mailles, dans la taille en-dessous soit 1/3 mois, vous aviez 21 mailles pour les devants et vous avez augmenté 10 fois donc vous avez bien 31 m après les augm. des épaules. Vous augmentez ensuite pour les manches 11 fois = 32 m pour les manches; et 178 m au total. Bon tricot!

23.06.2025 - 07:13

country flag Nicole skrifaði:

Bonjour gilet 6/9 mois .j'ai bien les 134 mailles . 6 bordure,26 devant ,10 épaule,52 dos,10 épaule,26 devant, 5 devant. je ne comprend pas ou je dois augmenter manche pouvez vous m'écrire précisément la formule je vous remercie pour votre aide et votre temp Nicole

20.06.2025 - 17:52

DROPS Design svaraði:

Bonjour Nicole, vous augmentez maintenant pour la manche gauche après le 1er marqueur et avant le 2ème marqueur et pour la manche droite après le 3ème marqueur et avant le 4ème marqueur, le nombre de mailles des manches va augmenter de 2 mailles à chaque rang sur l'endroit, mais le nombre de mailles des devants et du dos va rester le même. Vous augmentez ainsi 11 x tous les 2 rangs = vous aurez 32 m pour chaque manche. Bon tricot!

23.06.2025 - 06:51

country flag Nicole skrifaði:

Bonjour j'ai bien compris les augmentations pour l'empiècement du gilet avant le marqueur et après le marquer pour les epaule juste une petite question est ce que les augmentations se font toute sur le rang endroit où 1 et 3 sur le rang endroit et 2 et 4 sûr le rang envers merci pour votre aide et merci

17.06.2025 - 20:12

DROPS Design svaraði:

Bonjour Nicole, vous augmentez sur l'endroit avant le marqueur -1 (devant gauche), après le marqueur -2 (début du dos) et avant le marqueur -3 (fin du dos) et après le marqueur -4 (devant droit), et sur l'envers, vous augmentez avant le marqueur -4 (devant droit), après le marqueur -3 (début du dos) et avant le marqueur -2 (fin du dos) et après le marqueur -1 (devant gauche). Bon tricot!

18.06.2025 - 07:31

country flag Nadyne skrifaði:

Bonjour A l arrivée pour l augmentation de l empiècement en 6/9 mois j ai 186 m , ça c est ok. Vs dites d augmenter 8 mailles x 5 fois à chaque marqueur . Je devrais avoir à la fin 186+40 =226 Vs annoncez 230 mailles , D ou viennent vos 4 mailles qui manquent ? Merci beaucoup

13.04.2025 - 15:55

DROPS Design svaraði:

Bonjour Nadyne, notez que dans ce paragraphe, la taille 6/9 mois est la 3ème taille, vous allez donc augmenter 4 fois seulement, soit 186 + (4x8 mailles) = 218 m - vous tricotez jusqu'à 12 cm. Au paragraphe suivant (division), la taille 6/9 mois est de nouveau la 4ème taille (la 3ème après la parenthèse). Bon tricot!

22.04.2025 - 08:36

country flag Perdoux skrifaði:

Bonjour, Je suis arrivée à la fin des augmentations des manches avec 186 m pour le 6/9 mois . Mais , je n ai pas 10 cm à partir du marqueur J ai 8,5 cm . Dois je continuer pour avoir 10 cm ? Merci beaucoup

13.04.2025 - 15:13

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Perdoux, vous pouvez effectivement continuer à tricoter mais n'augmentez plus, sinon l'ouvrage serait trop grand. Bon tricot!

22.04.2025 - 08:32

country flag Birgit Riedel skrifaði:

Hallo, ich habe diesen Satz bestimmt 20mal gelesen, verstehe ihn aber nicht. Würden sie mir das bitte erklären? "GRÖSSE 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 MONATE (2 JAHRE): Die 4 Markierer der Ärmelzunahmen so versetzen, dass jeder dieser Markierer in der äußersten Masche an beiden Seiten von Vorderteil und Rückenteil sitzt. Es sind 34-32-32-32 (34) Maschen pro Ärmel zwischen den markierten Maschen vorhanden." LG Birgit

05.03.2025 - 09:18

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Riedel, am Anfang sind die Markierer zwischen Maschen eingesetzt, wenn die Zunahmen für die Ärmel fertig sind, wird man die Markierung jeweils in einer Masche (und nicht mehr zwischen Maschen) einsetzen, dh die 1. Markierung in die letzte Masche vom linken Vorderteil, die 2. Markierung in die 1. Masche vom Rückenteil, die 3. Markierung in die letzte Masche vom Rückenteil und die 4. Markierung in die erste Masche vom rechten Vorderteil. Zwischen 1.-2 und zwischen 3.-4. Markierugen sind es jetzt 32 /34 Maschen (Siehe Größe). Viel Spaß beim Stricken!

05.03.2025 - 13:42