Maria Luz skrifaði:
Tienen algún vídeo donde se pueda ver la técnica de tejer el bies del hombro, gracias espero su ayuda, no me quedan claras las explicaciones que pone el patrón.
07.03.2022 - 16:49DROPS Design svaraði:
Hola Maria Luz, no hay un vídeo sobre como trabajar este bies. Se trabaja de forma similar a las filas acortadas, trabajando una parte de la fila mientras el resto queda en espera.
08.03.2022 - 21:54
Nathalie skrifaði:
Love this day
04.02.2022 - 14:50
Nathalie skrifaði:
Lovely spring
04.02.2022 - 14:49
Nathalie skrifaði:
Sweet morning
04.02.2022 - 14:49
Isolde skrifaði:
Naturelove
18.01.2022 - 09:51
Conni skrifaði:
Morning dew
14.01.2022 - 16:46
Camomile#camomilesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Puna. Stykkið er neðan frá og upp í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um hálsmál þegar fækkað er um 1 og 1 lykkju): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 LYKKJUR Í SLÉTTPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 LYKKJUM Í SLÉTTPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir við miðju að framan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 síðustu lykkjurnar í sléttprjóni (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING-1 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur í hvorri hlið, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um neðst á ermi): Byrjið við 1. prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 2. prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (2. prjónamerki situr mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið þar til 2 lykkjur er eftir að 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur slétt = 4 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-3 (á við um undir ermi): Byrjið umferð við 1. prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna neðan frá og upp (skipti e.t.v. yfir í stuttan hringprjón þegar nægilega margar lykkjur hafa verið auknar út). Þegar stykkið hefur verið saumað saman er prjónaður kantur í kringum hálsmál í hring á stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 124-136-146-160-176-194 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Puna. Prjónið fram og til baka í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í hvorri hlið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 10 cm og næsta umferð er frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 36-40-42-46-50-58 lykkjur jafnt yfir = 88-96-104-114-126-136 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu í öðrum hverjum cm þar til aukið hefur verið út alls 6 sinnum í hvorri hlið = 100-108-116-126-138-148 lykkjur. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm. Í næstu 2 umferðum er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok hverrar umferðar sem notaðar eru til að sauma ermar í = 102-110-118-128-140-150 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 30-32-32-34-34-36 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 5 sinnum – sjá ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT eru ystu lykkjur við handveg settar á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 6-7-8-9-10-11 lykkjur á þráðinn 4 sinnum, síðan eru síðustu 7-6-6-6-8-8 lykkjurnar settar á þráðinn. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráð. Setjið til baka 31-34-38-42-48-52 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en til að koma í veg fyrir að það myndist gat þegar snúið er við mitt í stykki, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið brugðið saman með fyrstu lykkju á vinstra prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm. Í næstu umferð eru miðju 18-18-18-20-20-20 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fellið af fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, síðan er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli 4-5-5-5-5-6 sinnum – sjá ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 6-7-8-9-10-11 lykkjur á þráðinn 4 sinnum, síðan eru síðustu 7-6-6-6-8-8 lykkjur settar á þráðinn. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráð. Setjið til baka 31-34-38-42-48-52 lykkjur af þræði á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en til að koma í veg fyrir að það myndist gat þegar snúið er við mitt í stykki, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið brugðið saman með fyrstu lykkju á vinstra prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Puna. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 21-22-23-24-25-26 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuð þegar auka á út. Prjónið sléttprjón og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2, aukið svona út í 4. hverri umferð alls 7 sinnum = 70-72-74-76-78-80 lykkjur. Nú er hægt að taka frá 2. prjónamerki (ofan á ermi), á meðan 1. prjónamerkið verður eftir í stykkinu (undir ermi). Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 28-26-25-24-24-23 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-3 aukið svona út með 7-5-4-3-2½-2 cm millibili alls 3-4-5-6-7-8 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 47-46-45-44-42-40 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma, byrjið þar sem fitjuð var upp ein ný lykkja í hvorri hlið og saumið innan við hálfa lykkju niður þar sem stroffið byrjar. Stroffið er saumað saman í ystu lykkjubogana í garðaprjóni. Saumið ermar í innan við nýju lykkjuna sem fitjuð var upp í hvorri hlið á framstykki / bakstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 120-124-128-132-136-140 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 11 cm. Sjá AFFELLING og fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #camomilesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.