DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Provence Dream

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, perluprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-15
DROPS Design: Mynstur ai-380
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-500 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón við hvert prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju fram hjá fyrsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki. Útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar slétt í næstu umferð. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður, síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-100-110-120-120-130 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air.
Prjónið stroff hringinn (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð stroff og fækkið lykkjum þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 80-80-88-96-96-104 lykkjur.
Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 16 cm frá uppfitjunarkanti, síðar á að brjóta stroffið saman tvöfalt þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið eitt prjónamerki í stykkið í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið JAFNFRAMT er prjónað þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið 12 lykkjur í mynstri A.1 (ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 lykkja, prjónið 24-24-28-32-32-36 lykkjur í mynstri A.1 (framstykki), prjónið 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 lykkja, prjónið 12 lykkjur í mynstri A.1 (ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 lykkja og prjónið 24-24-28-32-32-36 lykkjur í mynstri A.1 (bakstykki), prjónið 1 lykkju sléttprjón.

LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan og haldið er áfram með mynstur A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 21-24-26-28-31-33 sinnum = 248-272-296-320-344-368 lykkjur.
Prjónið mynstur eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki frá byrjun á umferð (á milli bakstykkis og ermi) þannig: Prjónið 4-3-2-2-4-4 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 48-56-62-66-68-72 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn í hlið undir ermi, prjónið 76-80-86-94-104-112 lykkjur (framstykki), setjið næstu 48-56-62-66-68-72 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn í hlið undir ermi og prjónið síðustu 72-77-84-92-100-108 lykkjur (það eru alls 76-80-86-94-104-112 lykkjur á bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 164-172-188-204-224-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Haldið áfram hringinn með mynstri A.1. Mynstrið kemur ekki til með ganga jafnt upp alla leiðina hringinn, 2 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni og þær lykkjur sem eru eftir stillast af miðað við mynstur á framstykki og bakstykki.
Þegar stykkið mælist ca 4 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA.
Endurtakið úrtöku með ca 6-7-6-6-7-5 cm millibili alls 4-3-4-4-3-4 sinnum = 148-160-172-188-212-224 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 25-25-26-26-25-25 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með 2 umferðir sléttprjón (eða prjónið að óskaðri lengd, þar til ca 5 cm eru eftir að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist
ca 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 48-56-62-66-68-72 lykkjur af öðrum þræðinum á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5, prjónið að auki upp 6-6-8-8-8-8 lykkjur í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki = 54-62-70-74-76-80 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í miðju af 6-6-8-8-8-8 nýjum lykkjum sem prjónaðar voru upp undir ermi = byrjun á umferð. Haldið áfram hringinn með mynstri A.1, mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn, 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður.
Þegar stykkið mælist ca 3 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með ca 4-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 7-11-15-15-16-18 sinnum = 40-40-40-44-44-44 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 35-34-33-31-30-28 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með 2 umferðir sléttprjón (eða prjónið að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 5 cm að loka máli). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5.
Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur í næstu umferð.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Mallorca wrote:

Las fotos, las tallas de S a XXXL y el patrón del dibujo corresponden a un modelo, pero las indicaciones del tejido corresponden a otro modelo con talla XS a XL. No me he vuelto loca de milago. Es un patrón imposible.

01.03.2024 - 01:46

country flag Lily wrote:

Hello. I started knitting it and I have a question. Does "knit 12 stitches in pattern A1" mean stitches or pattern repeats? Do I have to knit 1

12.01.2024 - 09:59

DROPS Design answered:

Dear Lily, this means you will have to repat the 4 sts in diagram A.1 a total of 3 times (read diagram from the bottom corner on the right side upwards on every round). Happy knitting!

12.01.2024 - 13:42

country flag Iselin wrote:

Når den sier at jeg skal strikke 12 ganger i mønster, skal jeg da starte med rettstrikkingen fra bunnen slik den viser i A.1? Føler ikke jeg får med mye møster da i 12 masker😅 mhv en nybegynner

29.12.2023 - 23:01

DROPS Design answered:

Hei Iselin. Første gang du skal strikke A.1, starter du på 1. rad. Strikk 12 masker av A.1 (A.1 strikkes da 3 ganger), strikk 2 masker glattstrikk, strikk 24-24-28-32-32 eller 36 masker i mønster A.1 (forstykket). Du starter på 1. rad og 1. maske du ser i diagrammet. I str. S og M strikkes da A.1 6 ganger, mens i str. L 7 ganger, XL og XXL 8 ganger og i str. XXL 9 ganger. Følg oppskriften og start alltid med 1. maske på 1. rad, strikk omgangen ut. Og når du starter på 2. omgang strikker du 2. pinne i diagrammet osv. mvh DROPS Design

08.01.2024 - 13:50

country flag Birgit Eklund Pedersen wrote:

Hej, mangler der ikke noget tekst i afsnittet om udtagning til raglan? \r\nSkal jeg slå om henholdsvis før de 2 retmasker og efter de 2 retmasker, altså inden sidste maske før mærket og efter første maske efter mærket?\r\nVenlig hilsen birgit

07.11.2023 - 18:42

DROPS Design answered:

Hei Birgit. I forklaringen står det at du skal strikke 1 maske forbi 1. merke, gjør et kast, strikk til det gjenstår 1 maske før det neste merke, gjør et kast = 1 kast etter en maske med merke og 1 kast før en maske med merke. Og slik økes det ved hvert merke. = 8 kast på 1 omgang. Hadde starten på omgangen vært midt bak så kunne man ha skrevet slik du skriver, men i denne oppskriften er omgangens start ved overgangen mellom 1/2 bakstykket og et erme. mvh DROPS Design

13.11.2023 - 10:16

country flag Hanh Nguyen wrote:

I didn’t understand instruction in yoke measure: each sleeve: 14sts; front piece & back piece : 26 sts eacch; total 80sts at begin. After 21 times of increase for raglan, 8sts increased for each row, mean 2 sts increased inside each sleeve how finally we got 48 sts for each sleeve on devision? Can anybody help me ? TIA.

25.08.2023 - 13:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Nguyen, the first 3 sts + the last 3 sts on each sleeve will belong to back/front piece - you started with 12 sts for each sleeve, then increased 21 times = 54 sts - 6 sts (3 on each side for front/back piece) = 48 sts. Happy knitting!

28.08.2023 - 12:53

country flag Emmy wrote:

I am having trouble understanding the raglan increases. Should I increase on both sides of the marker, a total of 8 times per row?

31.07.2023 - 10:38

DROPS Design answered:

Dear Emmy, increase on each side of the 2 raglan stitches worked in stocking stitch (with the markers in the middle), so at the beg of the round, K1 and increase for raglan, then work until 1 st remain before next marker, make 1 YO, K2 (marker is between these 2 sts), make 1 YO, repeat these at the next markers until 1 stitch remain before the end of the round, make 1 YO and knit the last stitch. You have increased 2 sts on each piece, ie a total of 8 sts. Repeat these increases on every other round. Happy knitting!

31.07.2023 - 11:51

country flag Cécile wrote:

Bonjour, C'est la première fois que je tricote un pull de Drops. L'échantillon doit-il être fait dans le point du tricot. e modèle que je veux tricoter se fait dans un point fantaisie. Merci pour votre réponse

20.04.2023 - 15:02

DROPS Design answered:

Bonjour Cécile, ceci peut varier en fonction du modèle, mais ici, on le tricote en jersey, je cite: 17 mailles en largeur et 22 rangs en hauteur, en jersey = 10 x 10 cm. - Utilisez les aiguilles 5 (ou ajustez la taille des aiguilles si besoin). Bon tricot!

20.04.2023 - 16:26

country flag Anne wrote:

Målene på denne genseren må være helt feil,både lengden fra ermene og ned og på ermene. Ermene er dessuten veldig smale. Modellen må ha på seg en genser som egentlig er flere størrelser større enn det en skulle tro hun ville bruke. Synes dere bør sjekke denne oppskriften så ikke flere strever med det samme som meg og må rekke opp.😖

28.03.2023 - 17:44

DROPS Design answered:

Hej Anne, strikker du i DROPS Air og følger du strikkefastheden som står i opskriften, da vil du få målene som står i måleskitsen i den størrelse du har valgt. Hvis du mener det er fejl, så behøver vi mere information, hvilken størrelse du strikker, hvor mange masker du har på 10 cm og hvor du er i selve opskriften, hvilke mål du skulle have og hvilke du har....

12.04.2023 - 15:25

country flag Emilie wrote:

Hei. Strikker genseren i . Når jeg kommer til at man skal strikke videre uten raglanøkninger, får jeg ikke mønsteret til å gå opp? Endte opp å gjøre som beskrivelsen under bol «to masker i rettstrikk på hver side av hvert merke», men får da på det meste 8 i rettstrikk. Synes det ser feil ut, men får ikke mønsteret til å gå opp ellers da det bare er seks masker imellom etter siste raglanøkning. Hvordan strikker dere mønsteret etter raglanøkningene er ferdig?

02.11.2022 - 21:50

DROPS Design answered:

Hej Emilie, de masker som ikke går op kan du strikke i glatstrik (hvis du hellere vil have mønsteret til at gå op, kan du jo tage 2 masker ud i siden for at få det til at gå op) :)

04.11.2022 - 09:38

country flag Sophia Johansson wrote:

Hej, är vid raglan. Ska mönstret stickas på varje varv, dvs. Även det varvet där det ökas till raglan? Ska man då ändå sticka en rät, 1 omslag, markering, 1 rät, 1 omslag och sen nästa maska enligt mönstret? Eller ska man sticka enligt mönstret på ett varv,sedan nästa varv ökning men bara räta maskor? Dvs, vartannat mönster vartannat ökning.

02.11.2022 - 18:19

DROPS Design answered:

Hej Sophia, du strikker mønsteret på hver omgang og tager ud til raglan samtidigt :)

16.11.2022 - 13:40