Nicole skrifaði:
J’ai acheté cette laine ( drops alpaca et kid silk) pour faire ce modèle mais je n’arrive pas aux mesures de votre échantillon. J’ai augmenté avec aiguilles #6mm et encore trop de mailles et je n’aime pas le rendu qui est trop ajouré. Est-ce qu’il y a une façon de faire pour adapter ce patron et la quantité de laine pour mon échantillon de 22 m x 28 rangs= 10 cm avec aiguilles #5mm ? Je ne comprend pas car l’échantillon du modele ne reflète pas la réalité…merci
21.06.2022 - 03:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole, la tension proposée ici correspond à ce mélange Alpaga + Kid-Silk très souvent proposé dans notre gamme, mais naturellement, la taille des aiguilles est propre à chacune et à sa façon de tricoter. Si vous préférez une tension plus serrée, il vous faudra entièrement recalculer les explications sur la base de votre propre tension; vous pouvez également consulter les modèles correspondant à votre tension, par exemple découvrez ici les modèles avec 22-20 mailles pour 10 cm. Bon tricot!
21.06.2022 - 09:39
Eevi skrifaði:
Kehaosa kudumisel :Samal ajal KAHANDA ,kuid silmuste arv suureneb?????
18.04.2022 - 16:45DROPS Design svaraði:
Tere Eevi! Viga parandatud, ikka kasvatada tuleb. Tänan!
04.05.2022 - 16:46
Gabriella skrifaði:
C’è una tabella con le taglie? La taglia L a quanti cm di giro seno corrisponde? È la taglia XL? Grazie
05.03.2022 - 08:47DROPS Design svaraði:
Buonasera Gabriella, in fondo ad ogni modello può trovare lo schema con le misure per le diverse taglie. Buon lavoro!
05.03.2022 - 21:15
Brassard skrifaði:
Aiguilles #5, est-ce des aiguilles 5 mm?
24.02.2022 - 23:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Brassard, tout à fait, en cas de doute, retrouvez toutes nos aiguilles ici - pensez juste à bien tricoter votre échantillon au préalable et à ajuster la taille des aiguilles si besoin. Bon tricot!
25.02.2022 - 09:14
Isabelle skrifaði:
Bonjour, quand sera t-il disponible svp ? merci
04.02.2022 - 08:24
Sofie Deylgat skrifaði:
Lila spring
01.02.2022 - 11:49
Springtime skrifaði:
Ziet er comfortabel uit.
15.01.2022 - 10:54
Tora skrifaði:
Blooming Dahlia
15.01.2022 - 04:18
Wishing Well Cardigan#wishingwellcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-10 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist 3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 8½-9-9-8-8-9 cm millibili. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 95-95-101-101-107-107 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Kid-Silk og 1 þræði DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í lok hverrar brugðinnar einingar, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt = 137-137-146-146-155-155 lykkjur. Haldið svona áfram – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti, endið með 1 umferð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 14-14-33-33-52-52 lykkjur jafnt yfir = 151-151-179-179-207-207 lykkjur (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Skiptið yfir á hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 140-140-168-168-196-196 lykkjur, endið með fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins við miðju að framan) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið og aukið út eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 263-263-291-291-319-319 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 26-26-29-29-33-33 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 41-41-45-45-49-49 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 54-54-60-60-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-72-80-80-88-88 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 54-54-60-60-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 42-42-46-46-50-50 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 167-171-187-191-207-215 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 0-2-0-8-10-24 lykkjur jafnt yfir = 167-173-187-199-217-239 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni þar til stykkið mælist 16-18-17-19-17-19 cm frá skiptingu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 54-54-60-60-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 6-8-8-10-10-14 lykkjum undir ermi = 60-62-68-70-76-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-8-10-10-14 nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið 3-4-4-5-5-7 lykkjur sléttprjón A.2 yfir næstu 54-54-60-66-66 lykkjur, endið með 3-4-4-5-5-7 lykkjur sléttprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3½-2½-2½-1½-1½ cm millibili alls 8-8-10-10-12-13 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 30-31-28-29-25-26 cm frá skiptingu. Prjónið næstu umferð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 36-37-34-35-31-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wishingwellcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.