DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g
DROPS SS24

Fox Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk, DROPS Kid- Silk og DROPS Glitter með víðu hálsmáli og gatamynstri. Stærð S - XXXL

DROPS 150-8
DROPS Design: Mynstur nr bs-046
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
250-250-300-300 gr litur nr 8465, milligrár
Og einnig:
DROPS KID- SILK frá Garnstudio
100-100-125-125 gr litur nr 10, grár
Og einnig:
DROPS GLITTER frá Garnstudio
4 rúllur í allar stærðir litur nr 02, silfur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði á hverri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA MEÐ GATI, NR 522: 6-7-7-7 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellt er af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S/M: 12, 21, 30, 39, 48 og 56 cm
STÆRÐ L/XL: 12, 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm
STÆRÐ XXL: 12, 20, 28, 36, 44, 53 og 62 cm
STÆRÐ XXXL: 12, 20, 28, 37, 44, 55 og 66 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 167-189-211-233 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af Baby Alpaca Silk + 1 þræði af Kid-Silk + 2 þráðum af Glitter. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 l garðaprjón (= kantur að framan) A.1 yfir næstu 154-176-198-220 l (= 11 mynstureiningar á breidd), 1 l sléttprjón með rönguna fram (þ.e.a.s. með sl frá röngu), 6 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru sett 2 prjónamerki í stykkið, fyrsta eftir 41-46-51-56 l og það seinna eftir 125-142-159-176 l (bakstykki = 84-96-108-120 l). Hægra framstykki = 41-46-51-56 l, vinstra framstykki = 42-47-52-57 l (þetta er til að mynstur á berustykki gangi jafnt upp síðar). Prjónið nú sléttprjón með 6 l garðaprjón í hvorri hlið (= kantur að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPATAT í hægri kanit að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 ½-4-4½-5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 úrtökur) = 151-173-195-217 l. Þegar stykkið mælist 24-26-27-29 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3-3-2½-2 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 útaukningar) = 167-189-211-233 l. Þegar stykkið mælist 38-38-37-37 cm fellið af 14-16-18-20 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 70-80-90-100 l eftir á bakstykki og 34/35-38/39-42/43-46/47 l á framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 42-48-54-60 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði af Baby Alpaca Silk + 1 þræði af Kid-Silk + 2 þráðum af Glitter. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið A.1 yfir allar l (= 3 mynstureiningar á breidd). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf(= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Endurtakið útaukningu með 5-4-3-2 cm millibili, 6-7-8-9 sinnum til viðbótar (= alls 7-8-9-10 útaukningar) = 56-64-72-80 l.
Þegar stykkið mælist 41-38-34-31 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), prjónið A.1 yfir allar l (= 4 mynstureiningar). ATH! Byrjið fyrstu mynstureininguna af A.1 7-8-9-10 l frá prjónamerki! Í síðustu umf í A.1 eru felldar af fyrstu 14-16-18-20 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við prjónamerki)= 42-48-54-60 l eftir á prjóni (= 3 heilar mynstureiningar af A.1). Ermin mælist nú 46-44-41-39 cm.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki = 223-253-283-313 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur A.1 þar til 7 l eru eftir á prjóni, endið á 1 l sléttprjón með rönguna út og 6 kantlykkjur að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónað áfram með A.2 yfir A.1. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 103-133-163-193 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 19-45-61-87 l jafnt yfir = 84-88-102-106 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið nú upphækkun að aftan í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í miðju l (= miðja að aftan og byrjið þannig: Prjónið 7 l sl framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28 l br til baka. Haldið svona áfram – prjónið yfir 7 l fleiri í hvert skiptið sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 56-56-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf slétt fram að miðju að framan. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af með sl frá réttu. Berustykkið mælist ca 20-24-27-31 cm (fyrir miðju að framan) og öll peysan mælist ca 58-62-64-68 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.09.2013
ERMI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi)...Þegar stykkið mælist 41-38-34-31 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), prjónið A.1 yfir allar l (= 4 mynstureiningar). ATH! Byrjið fyrstu mynstureininguna af A.1 7-8-9-10 l frá prjónamerki! Í síðustu umf í A.1 eru felldar af fyrstu 14-16-18-20 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við prjónamerki)= 42-48-54-60 l eftir á prjóni...
Yfirfarið á vefsvæði: 30.09.2016
Leiðrétting í mynstri í stærð XXL, umf 34 og 48. Leiðrétting í mynstri í stærð S/M, umf 26

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, prjónið 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (72)

country flag Susanne wrote:

Hjelp, en venninne av meg skal strikke jakka for meg. Men jeg vil ikke ha den så tykk. Jeg vil heller få den strikket med et annet drops garn, som skal strikkes med pinner 3. Altså garngruppe A, 100% alpaka. Til vanlig bruker jeg str M. Kan man bare bruke en annen størrelse, elelr hvordan i all verden gjør man det? Susanne

19.11.2023 - 18:14

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Denne jakken er strikket for et tykkere garn. Design avd. har dessverre ikke mulighet til å omregne den til et garn i garngruppe A. Anbefaler deg heller til å finne et lignende mønster som allerede er skrevet til den ønsket garngruppe. Ta en titt på f.eks jakken i DROPS 191-23 (+ legg på noen cm på ermene). Evnt. om din venninne er en god strikker, kan hun kanskje selv sammenligne disse 2 oppskriftene og regne om til tynnere garn (du har da maskeantallet, diagrammene og målene i målskissen). mvh DROPS Design

20.11.2023 - 11:54

country flag Hege wrote:

Hei. Strikker modellen i xxl. Når jeg har strikket A1, skal det settes markering for forside, bakstykket og forside. Men markeringene settes etter 211 masker, og på siste runde i A1, så reduseres det masker. Da blir tellingen feil. Hvordan blir fordelingen av masker for forsidene og bakstykket da?

11.07.2023 - 11:50

DROPS Design answered:

Hei Hege. LItt usikker på om jeg skjønner helt hva du mener. Når jeg ser på diagram A.1 har første og siste rad det samme maskeantallet (16 masker). Når arbeidet måler 37 cm felles de midterste 18 maskene i hver side av til ermhull fra vrangen = 90 masker tilbake på bakstk og 42 og 43 masker tilbake på forstykkene. Det at forstykkene har ulikt maskeantall er fordi at mønsteret på bærestykket skal gå opp. mvh DROPS Design.

24.07.2023 - 14:32

country flag Christel Marchlewski wrote:

Hallo ich habe mehre Strickjacken gefunden, die mi sehr gut gefallen. Leider kann ich nicht stricken. Können Sie mir evtl. sagen, ob jemand diese Modelle für Sie arbeitet und/oder ob Sie mir helfen können. Strickjacken aus dem Handel sind alle nicht so mein Ding. Vielleicht gibt es ja jemand, der gegen Bezahlung eine Jäckchen für mich erstellt. Ich trage Größe 58. Danke christel Marchlewski

02.09.2022 - 11:20

DROPS Design answered:

Liebe Frau Marchlewski, wir haben nur die kostenlose Anleitungen, aber vielleicht kann Ihnen ein von unserem DROPS Händlern damit helfen. Hier finden Sie die Liste und ihren Kontaktdaten.

02.09.2022 - 13:11

country flag Alessandra wrote:

Purtroppo il problema è che le maniche non le ho fatte con i ferri circolari ma con i dritti quindi non è possibile far combaciare il disegno. Ho aggirato il problema facendo il primo schema A1 sulle maniche dopo aver unito le maglie come avviene per il corpo.

24.01.2022 - 09:40

DROPS Design answered:

Buonasera Alessandra, anche lavorando in piano, avrebbe dovuto ritrovarsi con il numero di maglie. Buon lavoro!

24.01.2022 - 22:38

country flag Alessandra wrote:

Mi sono bloccata con lo sprone perché pur avendo il numero di maglie indicate per il corpo e le maniche quando unisco il tutto per le 223 maglie totali, lavorando il primo davanti e la manica non combacia il disegno A1 come scritto ma le maglie della manica fanno saltare lo schema

23.01.2022 - 16:23

DROPS Design answered:

Buonasera Alessandra, ha intrecciato correttamente le maglie in precedenza? Ha 3 ripetizioni del diagramma sulle maniche? Cosa non le torna? Buon lavoro!

23.01.2022 - 19:55

country flag Alessandra wrote:

Sto realizzando la taglia S ma non capisco nella spiegazione dello sprone come realizzare lo scollo, ossia quello spiegato dopo lo schema A.2.

15.01.2022 - 15:01

DROPS Design answered:

Buonasera Alessandra, in quel punto si lavora l'alzata sul dietro, a ferri accorciati, cioè lavorando solo su una parte delle maglie sul ferro e non su tutte le maglie. Buon lavoro!

15.01.2022 - 22:40

country flag Irene Follin wrote:

Fortsättning på min fråga jag ställt. Kom just på hur fel jag tänkt, alltså, det är jag och inte mönstret som har fel! Irene Follin

03.10.2020 - 10:41

DROPS Design answered:

Hei Irene. Så flott at du fant ut selv hva som var problemet. . mvh DROPS design

05.10.2020 - 12:56

country flag Irene Follin wrote:

Hej! Jag har precis börjat sticka 150-8. Jag har stickat 1 varv mönster A1 och får allt att stämma med framkantsmaskor och 11 rapporter men får bara 82 maskor på bakstycket inte 84 som mönstret anger. Är det jag eller mönstret som har fel? Hälsningar Irene Follin

02.10.2020 - 19:59

DROPS Design answered:

Hei Irene. Så flott at du fant ut selv hva som var problemet. Håper du da fikk strikket i helgen. mvh DROPS design

05.10.2020 - 11:35

country flag Karin wrote:

Hej. Jag undrar om ni menar att man skall börja med A1 innan märktråden, eller 8maskor efter märktråden. Är denna mening jag undrar över: "OBS! Börja första rapporten av A.1 7-8-9-10 m från märktråden! På sista v i A.1 maskas de första 14-16-18-20 m mitt under ärmen av (dvs maska av 7-8-9-10 m på varje sida av markören)". Jag började A1 8m efter märktråden men när man läser sedan verkar det ju som att början av A1 ligger just innan märktråden.

13.03.2020 - 19:40

DROPS Design answered:

Hej Karin, Ja du börjar innan märktråden, så du sedan kan maska av på varje sida av markören. Lycka till :)

18.03.2020 - 15:44

country flag Jaana Uusisalo wrote:

Tein jakun, ohje oli kaunis, kiitos siitä! Ohjeessa on kuitenkin virhe verrattuna valokuviin. Mallilla on jakussaan selkeästi pääntiellä 2o2n resori -reunus. Ohjeessa on kummallinen sileän neuleen osuus (niskakorotus) mikä näyttää pitsineulekaarrokkeen päällä vähintäänkin hassulta, ja työ päätetään kahteen kerrokseen ainaoikeaa. Puseron ohjeessa sama sileä pätkä, joka myös mallilla valokuvassa näyttäisi olevan. Tämä kuitenkin päätetään 4 krs ainaoikeaa.

04.12.2019 - 12:35