Halina Kasińska skrifaði:
Moje pytanie dotyczyło: Czy jest gdzieś na stronie pokazane jak wykonać falujący brzeg. .Mam problem z poprawnym odczytaniem zapisanego wzoru.
07.02.2022 - 15:43DROPS Design svaraði:
Witaj Halino, tego typu falujący brzeg jak w tym konkretnym wzorze jeszcze nie jest nigdzie na stronie pokazany. Video może pojawić się, ale później. Na szybko nagrałam krótki filmik jak to zrobić i mogę Ci go przesłać :)
07.02.2022 - 16:28
Isabelle skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team, ich komme leider gar nicht mit der "gedrehten Anschlagkante" klar. Hierzu gibt es leider kein Video?! Ich muss die linke Masche dann rechts sticken und umgekehrt, oder? Vielen Dank für eine Antwort!
07.02.2022 - 12:26DROPS Design svaraði:
Liebe Isabelle, ein Video kommt bald - ich versuche etwas anders auszusprechen: stricken Sie 1 Masche links, 1 Masche rechts, 1 Masche links (fehlt in deutsch) dann sollen Sie die rechte Nadel rund unter die Arbeit (von vorne nach hinten, 1 Masche abheben, die Nadel rund unter die Arbeit aber dieses Mal von hinten nach vorne, die abgehobene Masche über die linke Nadel stellen und diese Masche stricken Sie jetzt rechts* - hoffentlich kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!
07.02.2022 - 15:49
Halina skrifaði:
Czy jest gdzieś na stronie pokazane jak wykonać falujący brzeg. .Mam problem z poprawnym odczytaniem zapisanego wzoru.\r\n\r\nHalina
06.02.2022 - 23:14DROPS Design svaraði:
Witaj Halino, jeszcze nie ma takiego filmu, zgłoszę taką potrzebę. W międzyczasie wyślę Ci krótki nagrany filmik, podaj tylko swój adres email. Pozdrawiamy!
07.02.2022 - 09:24
Bea skrifaði:
Denna måste med! Älskar den redan!
18.01.2022 - 22:49
Helena Mjöberg skrifaði:
Summerbreeze
15.01.2022 - 08:47
Laurie Woo skrifaði:
Soft shoulders
14.01.2022 - 18:09
Linda skrifaði:
Picking Seashells
14.01.2022 - 15:01
Kiddylove skrifaði:
Summerbreeze
13.01.2022 - 23:17
Wave Romance Cardigan#waveromancecardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og öldumynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-4 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma með því að auka út á undan/eftir A.1/A.2. Þar sem ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum, þá er mismunandi hvort aukið sé út um 8 eða 4 lykkjur í hverri útaukningsumferð. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn þegar 3 lykkjur eru eftir í umferð frá réttu. Í næstu umferð (ranga), prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist gat, prjónið síðan 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. prjónið 5. og 6. lykkju frá kanti slétt saman). Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 9-10-8½-9-8-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI MEÐ BOGALAGA UPPFITJUNARKANTI: Fitjið upp 101-101-105-109-113-117 lykkjur á hringprjóna 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir 4 umferðir í stroffi er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, setjið hægri prjón framan við stykkið og undir uppfitjunarkantinn, notið hægri prjón og lyftið ystu lykkjunni á vinstra prjóni yfir á hægri prjón, setjið síðan hægri prjóninn aftur til baka undir uppfitjunarkantinn (einungis ysta lykkjan á hægri prjóni liggur nú í kringum uppfitjunarkantinn), setjið þessa lykkju til baka yfir á vinstri prjón og prjónið lykkjuna slétt (passið uppá að lykkjan sé ekki snúin) *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Stykkið er núna með smáum bogum meðfram öllum kantinum Haldið áfram með stroff eins og áður með 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stroffið á eftir bogunum mælist ca 5 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 6-6-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 107-107-107-111-115-119 lykkjur. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1-1-1-2-3-4 lykkjur sléttprjón, A.1 (framstykki), * 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, 1 uppsláttur (ermi), A.1, prjónið 3-3-3-5-7-9 lykkjur sléttprjón, A.1 (bakstykki), * 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, 1 uppsláttur (ermi), A.1, prjónið 1-1-1-2-3-4 lykkjur sléttprjón og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (framstykki). Nú eru 131-131-131-135-139-143 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð frá röngu í sléttprjóni og mynstur eins og útskýrt er að ofan án þess að auka út á ermum, þessir 4 uppslættir sem auknir voru út frá réttu á milli A.1 á hvorri ermi, eru prjónaðir snúnir brugðið, svo ekki myndist gat. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA – lestu allan kaflann áður en þú prjónar: Prjónið nú sléttprjón og mynstur eins og útskýrt er að ofan með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 yfir 25 lykkjur í A.1. Endurtakið síðan A.2 á hæðina. JAFNFRAMT í 3. umferð í A.1 byrjar útaukning fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. LASKALÍNA: Aukið út fyrir LASKALÍNA með því að auka út um 1 lykkju á undan/eftir A.1/A.2 – sjá útskýringu að ofan. Ekki er aukið út eins á framstykki/bakstykki og ermum, aukið er út þannig: FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Aukið út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 10-15-19-22-25-30 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-4-3-3-3-1 sinnum: ERMAR: Aukið út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 21-23-25-29-30-31 sinnum. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, eru 279-299-319-351-371-391 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar: Prjónið fyrstu 48-51-54-58-62-66 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 49-53-57-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 85-91-97-105-113-121 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 49-53-57-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 48-51-54-58-62-66 lykkjur sem eftir eru eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 193-205-221-237-257-273 lykkjur. Prjónið fram og til baka eins og áður með A.2, sléttprjón og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – þær 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið, prjónast í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 25 cm frá skiptingu – stillið af að prjónaðar séu 3 eða 5 umferðir sléttprjón yfir uppslátt/úrtöku í A.2. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 18-20-22-24-26-26 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 211-225-243-261-283-299 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 49-53-57-65-67-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-59-65-73-77-79 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-4-3-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-9-12-13-13 sinnum = 43-45-47-49-51-53 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-33-31-29-28-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 3 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 39-38-36-34-33-31 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waveromancecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.