Little Bee Cardigan#littebeecardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og útsaum með býflugu. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 42-4 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki (alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það eiga ekki að myndast göt. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-4 (5-5) næstu hnappagötum með ca 5-6-6½-7 (6½-7) cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 75-81-85-91 (95-99) lykkjur á hringprjóna 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkja slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 63-69-73-79 (83-87) lykkjur og aukið út 9-11-7-13 (13-17) lykkjur jafnt yfir og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 84-92-92-104 (108-116) lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð frá röngu eru sett 4 prjónamerki í stykkið og prjónað er þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 11-13-13-16 (17-19) lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, 12 lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, 22-26-26-32 (34-38) lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, 12 lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, 11-13-13-16 (17-19) lykkjur brugðið og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út þannig: Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá LASKALÍNA! Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 12-14-16-17 (18-19) sinnum = 180-204-220-240 (252-268) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-10-11-12 (13-14) cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 23-27-29-32 (34-37) lykkjur sléttprjón, setjið næstu 38-42-46-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 46-54-58-64 (68-74) lykkjur sléttprjón, setjið næstu 38-42-46-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 23-27-29-32 (34-37) lykkjur sléttprjón og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-132-140-152 (160-172) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10-13-14-16 (18-21) cm frá skiptingu, aukið út um 13-13-15-15 (17-19) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 129-145-155-167 (177-191) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff og kant að framan í garðaprjóni þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af. ERMI: Setjið 38-42-46-50 (52-54) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-52-56 (58-60) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 lykkja undir ermi. Byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-1½-2 (2-3) cm millibili alls 3-4-6-7 (7-7) sinnum = 38-40-40-42 (44-46) lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-11-12-15 (18-23) cm frá skiptingu, aukið út um 4-4-4-4 (6-6) lykkjur jafnt yfir = 42-44-44-46 (50-52) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af þegar stroffið mælist 2 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. Býfluga: Býfluga er saumuð út á hægra framstykki – sjá mynd. Býflugan er saumuð út með einföldum þræði og flatsaumi í röndum og hvoru megin við búk eru saumaðir út 2 vængir með keðjusaumi. BÝFLUGA – SVARTUR BÚKUR: Byrjið með litnum svartur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu. Saumið út ca 3 cm niður frá kanti í hálsmáli og ca 4 cm inn frá kanti að framan. Saumið út 2 þétt spor með flatsaum á ská upp til hægri (þ.e.a.s. að kanti að framan) og ca 0,5 að lengd. Hoppaðu á ská upp til vinstri ca 0,5 cm, samhliða með fyrstu 2 sporunum og saumaðu 4 þétt spor með flatsaum sem eru ca 1 cm að lengd (= miðjan á býflugu), hoppaðu 0,5 cm samhliða með miðju spori og saumaðu 2 þétt spor flatsaum sem eru ca 0,5 cm löng. BÝFLUGA – GULUR BÚKUR: Skiptið yfir í 1 þráð með litinn sinnep. Saumið nú með flatsaumi í bilið á milli miðju á býflugu og framhlið á býflugu – saumið 4 spor með flatsaum jafn löng spor og svarta sporið sem er næst. Saumið síðan flatsaum í bilið á milli miðju á býflugu og bakhluta á býflugu – saumið 4 spor með flatsaumi jafn löng og svarta sporið sem er næst. BÝFLUGA – VÆNGIR: Notið litinn natur, vængirnir samanstanda af 2 sporum keðjusaum sem báðir byrja frá sömu átt. Byrjið á að sauma út þannig: SPOR 1: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 1 – 1,5 cm á lengd frá býflugu, frá ca miðu á býflugu – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu. SPOR 2: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 0,5 - 1 cm á lengd frá býflugu, frá sama stað og út. Saumið 1 sett með vængjum hvoru megin á býflugu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littebeecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 42-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.