DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Woof Woof Sweater

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og útsaumuðum hundi. Stærð 0 – 4 ára.

DROPS Baby 42-1
DROPS Design: Mynstur bm-130-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-150-150 (150-150) g litur 49, eyðimerkurrós

Fyrir útsaum höfum við notað afgang af:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
litur 04, súkkulaðibrúnn

DROPS TALA NR 521: 1-1-2-2 (2-2) stykki (ef stykkið er prjónað með opi/klauf að aftan).

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki (alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það eiga ekki að myndast göt. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT (ef prjónað er op/klauf að mitt að aftan):
Fellið af fyrir hnappagötum í kanti að aftan (séð frá réttu þegar prjónað er ofan frá).
Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½ cm. Fellið síðan af fyrir 0-0-1-1 (1-1) hnappagötum þegar stykkið mælist ca 4 cm frá fyrra hnappagati.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ef prjónað er op/klauf mitt að aftan er fyrst prjónað fram og til baka, áður en stykkið er sett saman og prjónað er í hring. Berustykkið skiptist fyrir ermar og fram og bakstykki. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

PEYSA EKKI MEÐ OPI/KLAUF MITT AÐ AFTAN:
Ef þú vilt hafa op/klauf mitt að aftan lestu þá útskýringu hér að neðan.
Fitjið upp 64-68-74-78 (82-88) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki!
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 8-12-6-14 (14-16) lykkjur jafnt yfir = 72-80-80-92 (96-104) lykkjur.

Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, þannig:
Teljið 11-13-13-16 (17-19) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22-26-26-32 (34-38) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, nú eru eftir 11-13-13-16 (17-19) lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón. Í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá LASKALÍNA! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-14-16-17 (18-19) sinnum = 168-192-208-228 (240-256) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram eins og útskýrt er að neðan undir PEYSA.

PEYSA MEÐ OPI/KLAUF MITT AÐ AFTAN:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan, niður að þangað til opið/klaufin hefur verið prjónuð til loka, síðan er prjónað áfram í hring.
Fitjið upp 71-75-81-85 (89-95) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 6 lykkjur GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í kanti að aftan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 3.
Setjið 1 prjónamerki innan við 6 lykkjur í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 7-11-5-13 (13-15) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 78-86-86-98 (102-110) lykkjur.

Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, þannig:
Teljið 14-16-16-19 (20-22) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22-26-26-32 (34-38) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, nú eru eftir 14-16-16-19 (20-22) lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón með 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá LASKALÍNA! Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 12-14-16-17 (18-19) sinnum.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-5-6 (6-6) cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Fellið af 6 fyrstu lykkjur, prjónið síðan eins og áður út umferðina.
Prjónið nú áfram hringinn í sléttprjóni og útaukning fyrir laskalínu heldur áfram í annarri hverri umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka eru 168-192-208-228 (240-256) lykkjur í umferð. Færið umferðina til þannig að umferðin byrjar mitt að aftan. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir PEYSA.

PEYSA:
Þegar stykkið mælist 9-10-11-12 (13-14) cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 23-27-29-32 (34-37) lykkjur slétt, setjið næstu 38-42-46-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 46-54-58-64 (68-74) lykkjur slétt, setjið næstu 38-42-46-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 23-27-29-32 (34-37) lykkjur slétt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 104-120-128-140 (148-160) lykkjur.
Haldið áfram fram hringinn í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 10-13-14-16 (18-21) cm frá skiptingu, aukið út um 12-12-14-14 (16-18) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 116-132-142-154 (164-178) lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur í 3 cm. Fellið aðeins laust af.

ERMI:
Setjið 38-42-46-50 (52-54) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-52-56 (58-60) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 lykkja undir ermi. Byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-1½-2 (2-3) cm millibili alls 3-4-6-7 (7-7) sinnum = 38-40-40-42 (44-46) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 8-11-12-15 (18-23) cm frá skiptingu, aukið út um 4-4-4-4 (6-6) lykkjur jafnt yfir = 42-44-44-46 (50-52) lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

ÚTSAUMAÐUR HUNDUR.
Hundur er saumaður út á framstykki – sjá mynsturteikningu A og B.
Nefið á hundinum er saumað út ca mitt á framstykki, 7 cm niður frá kanti í hálsmáli.

FRÁGANGUR:
Ef prjónað hefur verið op/klauf mitt að aftan eru tölur saumaðar í kant að aftan sem er án hnappagat.
Leggið kantinn með tölum undir kant með hnappagötum og saumið saman neðst niðri.

Mynstur

symbols = Leggsaumur mynd 1-6.
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem leggsaumurinn á að byrja.
MYND 2: Hoppaðu fram ca 1-1,5 cm, stingdu nálinni niður í stykkið og aftur upp að réttu ca 1-1,5 cm lengra fram.
MYND 3: Dragðu þráðinn í gegn. Nú hefur myndast eitt spor og eitt bil fram að næsta spori.
MYND 4: Þetta spor er fyrst saumað aftur á bak og síðan fram þannig – Hoppaðu til baka að fyrra spori og stingdu nálinni í gatið þar sem fyrra spor endaði og stingdu nálinni upp aftur að réttu ca 1-1,5 cm lengra fram.
Ef þú vilt hafa fleiri leggsaumsspor, endurtaktu þá mynd 4.
MYND 5: Þegar síðasta leggsaumssporið er saumað, hoppaðu til baka að fyrra spori og stingdu nálinni í gatið þar sem fyrra sporið endaði. Dragðu þráðinn að röngu. Klipptu þráðinn og festu.
MYND 6: Leggsaum er hægt að sauma út bæði lóðrétt, lárétt, á ská og í hring.
symbols = hundurinn er saumaður út á framstykki
symbols = 1 leggsaumur
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Woof Woof Sweater

Eline, Norway

Woof Woof Sweater

Alexandra Pettersson, Åland Islands

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 42-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Lux wrote:

Hei, jeg strikker den største størrelsen uten splitt bak. Nå har jeg strikket raglan til 256 masker, som det står i "Genser uten splitt bak" avsnittet. Når jeg fortsetter til neste avsnitt, "Genser", står det at "Når arbeidet måler 9-10-11-12 (13-14) cm fra merket..." Arbeidet mitt måler bare 10 cm fra merket. Hva gjør jeg nå?

22.01.2024 - 15:12

DROPS Design answered:

Hei Lux, Du fortsetter å strikke, uten flere økninger til raglan, til riktig mål. God fornøyelse!

23.01.2024 - 06:50

country flag Marion Fricke wrote:

Det står feil antall garnnøster 150 gr. På den største holder ikke, heller ikke 200. Raglannen skal ende rett mot armhulen. Økningen slutter et godt stykke fra armhulen. dette var ikke en god oppskrift. Nå mangler jeg garn i samme innfarging og det ser ikke pent ut med forskjellug innfarging. Kjempe kjedelig. Har bilde av armhulen med økningene.

31.10.2023 - 13:53

DROPS Design answered:

Hej Marion, Strikker du i DROPS Baby Merino? Har du 24 masker på 10 cm i bredden? Har du 32 pinde på 10 cm i højden? Hvis ja, så skriv gerne hvilken størrelse du strikker, så skal vi naturligvis se på den igen :)

31.10.2023 - 14:38

country flag Petra wrote:

Ich habe den Maschenanschlag von 78 für eine 1 jährige Mit nadel Nr. 3 genommen und möchte ohne Schlitz stricken. Kann es sein, dass die Angabe nicht stimmt? Ich habe einen gedehnten Umfang von 31cm. Da passt ein Kopf niemals durch. Kopfumfang 49. Mfg

25.10.2023 - 19:50

DROPS Design answered:

Liebe Petra, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollte den Hals über den Kopf passen, beachten Sie nur, daß Ihr Anschlag nicht zu eng wird. Viel Spaß beim stricken!

26.10.2023 - 06:46

country flag Petra wrote:

Dobrý den, dotaz beru zpět, uź jsem na to přišla, špatně jsem dávala značky. Hezký den Petra

08.10.2023 - 15:15

country flag Petra wrote:

Opravují, chybí mi 2 oka, děkuji

07.10.2023 - 20:01

country flag Petra wrote:

Dobrý večer, pletu velikost 12/18 měs. se zapínáním za krkem. Mám na jehlicích po přidání 98 ok, pro raglánové zkosení si označím prvních 6 ok légy, pak rozložím značky 19_12_32_12 _19 ale do těch posledních 19 ok mi 4 chybí. Co mám udělat správně? Děkuji za odpověď. Petra

07.10.2023 - 19:57

country flag Marianne wrote:

Før man starter på vrangborden på BOL, så skal man ØKE x antall masker? Ikke felle?

26.04.2023 - 08:00

DROPS Design answered:

Hej Marianne, ja det gør du så vrangborden ikke skal trække arbejdet sammen :)

26.04.2023 - 14:48

country flag Francine wrote:

Bonjour,pour la taille 1/3,après les côtes au début ,j’augmente pour avoir 86 mailles. Ensuite je place 4 marqueurs à 16-12-26-12-16 mailles.Ça fait un total de 82 ? Est-ce que c’est une erreur ou je ne comprends pas. Merci

11.04.2023 - 19:17

DROPS Design answered:

Bonjour Francine, notez bien que les marqueurs doivent chacun être placés dans une maille (et pas entre les mailles), vous avez ainsi: 16+1+12+1+26+1+12+1+16=86 mailles. Bon tricot!

12.04.2023 - 08:19

country flag Berbett wrote:

Bonjour, Je tricote en taille 0-1. Ne manque t'il pas quelques cm en jersey au niveau des manches ? Après avoir diminué 3X , puis augmenté de 4 m à intervalles réguliers (en tout 8cm depuis la séparation) faut-il de suite tricoté les 2 cm de 1m env 1 m endroit ? la manche me semble trop courte. Merci.

23.02.2023 - 23:21

DROPS Design answered:

Bonjour Berbett, la manche mesure effectivement 10 cm dans cette taille, mais pensez que l'empiècement apporte de la longueur à la manche également. Bon tricot!

24.02.2023 - 10:06

country flag Tatjana wrote:

Hello, can you pls clarify instructions for split back ..... Insert 1 marker inside the 6 stitches at the beginning of the row; the yoke is measured from this marker!.... Does this mean to place marker after first 3 stitches ? Thanks in advance

20.08.2022 - 11:38

DROPS Design answered:

Dear Tatjana, we place the marker after the 6 stitches, between the edge (these 6 stitches) and the back. Happy knitting!

21.08.2022 - 21:01