 Serena skrifaði:
 
																									Serena skrifaði:
												
Ciao! Desidererei aver chiarito un dubbio: nella spiegazione degli aumenti per i raglan si parla di 1 gettato dopo aver lavorato la maglia col marcapunti, se così fosse si farebbero 4 aumenti nel giro, non 8… O c’è un errore o capisco male io… Grazie!
31.01.2022 - 16:47DROPS Design svaraði:
Buonasera Serena, abbiamo corretto il testo: si deve aumentare sia prima che dopo la maglia con il segnapunti. Buon lavoro!
31.01.2022 - 23:30| Woof Woof Sweater#woofwoofsweater | ||||||||||
|  |  | |||||||||
| Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og útsaumsmynd með hundi. Stærð 0 – 4 ára.
							DROPS Baby 42-1 | ||||||||||
| ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki (alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það eiga ekki að myndast göt. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT (ef prjónað er op/klauf að mitt að aftan): Fellið af fyrir hnappagötum í kanti að aftan (séð frá réttu þegar prjónað er ofan frá). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½ cm. Fellið síðan af fyrir 0-0-1-1 (1-1) hnappagötum þegar stykkið mælist ca 4 cm frá fyrra hnappagati. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ef prjónað er op/klauf mitt að aftan er fyrst prjónað fram og til baka, áður en stykkið er sett saman og prjónað er í hring. Berustykkið skiptist fyrir ermar og fram og bakstykki. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. PEYSA EKKI MEÐ OPI/KLAUF MITT AÐ AFTAN: Ef þú vilt hafa op/klauf mitt að aftan lestu þá útskýringu hér að neðan. Fitjið upp 64-68-74-78 (82-88) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 8-12-6-14 (14-16) lykkjur jafnt yfir = 72-80-80-92 (96-104) lykkjur. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, þannig: Teljið 11-13-13-16 (17-19) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22-26-26-32 (34-38) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, nú eru eftir 11-13-13-16 (17-19) lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón. Í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá LASKALÍNA! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-14-16-17 (18-19) sinnum = 168-192-208-228 (240-256) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram eins og útskýrt er að neðan undir PEYSA. PEYSA MEÐ OPI/KLAUF MITT AÐ AFTAN: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan, niður að þangað til opið/klaufin hefur verið prjónuð til loka, síðan er prjónað áfram í hring. Fitjið upp 71-75-81-85 (89-95) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 6 lykkjur GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í kanti að aftan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki innan við 6 lykkjur í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 7-11-5-13 (13-15) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 78-86-86-98 (102-110) lykkjur. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, þannig: Teljið 14-16-16-19 (20-22) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22-26-26-32 (34-38) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, nú eru eftir 14-16-16-19 (20-22) lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá LASKALÍNA! Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 12-14-16-17 (18-19) sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-5-6 (6-6) cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af 6 fyrstu lykkjur, prjónið síðan eins og áður út umferðina. Prjónið nú áfram hringinn í sléttprjóni og útaukning fyrir laskalínu heldur áfram í annarri hverri umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka eru 168-192-208-228 (240-256) lykkjur í umferð. Færið umferðina til þannig að umferðin byrjar mitt að aftan. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir PEYSA. PEYSA: Þegar stykkið mælist 9-10-11-12 (13-14) cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 23-27-29-32 (34-37) lykkjur slétt, setjið næstu 38-42-46-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 46-54-58-64 (68-74) lykkjur slétt, setjið næstu 38-42-46-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 23-27-29-32 (34-37) lykkjur slétt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 104-120-128-140 (148-160) lykkjur. Haldið áfram fram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 10-13-14-16 (18-21) cm frá skiptingu, aukið út um 12-12-14-14 (16-18) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 116-132-142-154 (164-178) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur í 3 cm. Fellið aðeins laust af. ERMI: Setjið 38-42-46-50 (52-54) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-52-56 (58-60) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 lykkja undir ermi. Byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-1½-2 (2-3) cm millibili alls 3-4-6-7 (7-7) sinnum = 38-40-40-42 (44-46) lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-11-12-15 (18-23) cm frá skiptingu, aukið út um 4-4-4-4 (6-6) lykkjur jafnt yfir = 42-44-44-46 (50-52) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. ÚTSAUMSMYND MEÐ HUNDI. Mynd af hundi er saumað út á framstykki – sjá mynsturteikningu A og B. Nefið á hundinum er saumað út ca mitt á framstykki, 7 cm niður frá kanti í hálsmáli. FRÁGANGUR: Ef prjónað hefur verið op/klauf mitt að aftan eru tölur saumaðar í kant að aftan sem er án hnappagata. Leggið kantinn með tölum undir kant með hnappagötum og saumið saman neðst niðri. | ||||||||||
| Skýringar á teikningu | ||||||||||
| 
 | ||||||||||
|  | ||||||||||
|  | ||||||||||
|  | ||||||||||
| Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #woofwoofsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. | ||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 42-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.