Cristine skrifaði:
Ich möchte das Modell für 4jährige stricken. Beim Anbringen der Markierer stimmt die Maschenanzahl nicht. Ich habe 120 Maschen auf der Nadel, nach Anleitung sind es 22, 12, 38, 12, 22, also 106 Maschen für den Raglan. Können Sie mir bitte helfen? Danke
14.01.2025 - 10:34DROPS Design svaraði:
Liebe Cristine, in Größe 3/4 Jahre sind es nur 110 M auf der Nadel (mit schlitz am Rücken), uns so verteilt: 22 + 1 M mit Markierer + 12 M + 1 M mit Markierer + 38 + 1 M mit Markierer + 12 M + 1 M mit Markierer + 22 M = 22+1+12+1+38+1+12+1+22=110 M. Viel Spaß beim Stricken!
14.01.2025 - 12:04
Minna skrifaði:
Lasketaanko ranganlisäyksessä oleva langan nosto ja seuraavalla kieroksella langan kiertäen neulominen ns samaan kierokseen, kun ranganlisäykset tehdään joka toinen kierros. Vai ovatko erikseen esim. Langan nosto puikolle ja seuraavalla kiertäen oikein ja taas seuraavalla langan nosto. Voi kuuluuko tehdä langan nosto ensin, seuraavalla kierroksella kiertäen oikein ja kolmannella kaikki oikein ja taas sitten langan nosto.
11.01.2025 - 20:17DROPS Design svaraði:
Kerrokset lasketaan erikseen. Eli ensimmäisellä kerroksella teet langankierrot, seuraavalla kerroksella langankierrot neulotaan kiertäen. Tämän jälkeen seuraavalla kerroksella tehdään taas uudet langankierrot.
14.01.2025 - 18:51
Ingegerd Landstrom skrifaði:
Ska jag börja på en ny tråd när jag lägger upp de nya maskorna för ärmen eller ska jag fortsätta på den tråd jag lämnade när jag la up femtio maskor på en separat tråd?
15.10.2024 - 14:31DROPS Design svaraði:
Hej Ingegerd. Du tar maskorna från tråden och sätter på strumpstickor och så lägger du upp nya maskor under ärmen med ny tråd. Mvh DROPS Design
17.10.2024 - 11:19
Florence Corot skrifaði:
Bonjour , pour les augmentations du raglan il est noté de les faire tous les rangs endroits . Mais en tricotant avec une aiguille circulaire, on est toujours sur l’endroit ! Cela veut dire tous les 2 rangs , non ? Merci
02.08.2024 - 16:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Corot, effectivement, mais ce pull se tricote avec les 2 versions: avec et sans ouverture au milieu dos, sans, vous augmenterez tous les 2 tours / avec, vous augmenterez tous les 2 rangs (tous les rangs sur l'endroit). Bon tricot!
05.08.2024 - 07:17
Louiza skrifaði:
Når der står hvad den skal måle fra delingen eller mærket. Hvilken deling og mærke er der tale om? Jeg mangler konkret information om hvor mange cm arbejdet skal måle fra de 6 masker under ærmet og ned til rib kanten. Det andet er forvirrende da hverken deling eller mærke er nævnt andre steder og jeg derfor ikke aner hvor deling eller mærke er/hvor langt jeg er i arbejdet
13.07.2024 - 11:48DROPS Design svaraði:
Hei Louiza Arbejdet ska måle 10-13-14-16 (18-21) cm fra de 6 masker under ærmet og ned til rib kanten ska starte. Mvh DROPS Design
18.07.2024 - 11:17
Lux skrifaði:
Hei, jeg strikker den største størrelsen uten splitt bak. Nå har jeg strikket raglan til 256 masker, som det står i "Genser uten splitt bak" avsnittet. Når jeg fortsetter til neste avsnitt, "Genser", står det at "Når arbeidet måler 9-10-11-12 (13-14) cm fra merket..." Arbeidet mitt måler bare 10 cm fra merket. Hva gjør jeg nå?
22.01.2024 - 15:12DROPS Design svaraði:
Hei Lux, Du fortsetter å strikke, uten flere økninger til raglan, til riktig mål. God fornøyelse!
23.01.2024 - 06:50
Marion Fricke skrifaði:
Det står feil antall garnnøster 150 gr. På den største holder ikke, heller ikke 200. Raglannen skal ende rett mot armhulen. Økningen slutter et godt stykke fra armhulen. dette var ikke en god oppskrift. Nå mangler jeg garn i samme innfarging og det ser ikke pent ut med forskjellug innfarging. Kjempe kjedelig. Har bilde av armhulen med økningene.
31.10.2023 - 13:53DROPS Design svaraði:
Hej Marion, Strikker du i DROPS Baby Merino? Har du 24 masker på 10 cm i bredden? Har du 32 pinde på 10 cm i højden? Hvis ja, så skriv gerne hvilken størrelse du strikker, så skal vi naturligvis se på den igen :)
31.10.2023 - 14:38
Petra skrifaði:
Ich habe den Maschenanschlag von 78 für eine 1 jährige Mit nadel Nr. 3 genommen und möchte ohne Schlitz stricken. Kann es sein, dass die Angabe nicht stimmt? Ich habe einen gedehnten Umfang von 31cm. Da passt ein Kopf niemals durch. Kopfumfang 49. Mfg
25.10.2023 - 19:50DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollte den Hals über den Kopf passen, beachten Sie nur, daß Ihr Anschlag nicht zu eng wird. Viel Spaß beim stricken!
26.10.2023 - 06:46
Petra skrifaði:
Dobrý den, dotaz beru zpět, uź jsem na to přišla, špatně jsem dávala značky. Hezký den Petra
08.10.2023 - 15:15
Petra skrifaði:
Opravují, chybí mi 2 oka, děkuji
07.10.2023 - 20:01
Woof Woof Sweater#woofwoofsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og útsaumsmynd með hundi. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 42-1 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki (alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það eiga ekki að myndast göt. Útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT (ef prjónað er op/klauf að mitt að aftan): Fellið af fyrir hnappagötum í kanti að aftan (séð frá réttu þegar prjónað er ofan frá). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½ cm. Fellið síðan af fyrir 0-0-1-1 (1-1) hnappagötum þegar stykkið mælist ca 4 cm frá fyrra hnappagati. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ef prjónað er op/klauf mitt að aftan er fyrst prjónað fram og til baka, áður en stykkið er sett saman og prjónað er í hring. Berustykkið skiptist fyrir ermar og fram og bakstykki. Fram- og bakstykki heldur áfram í hring. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. PEYSA EKKI MEÐ OPI/KLAUF MITT AÐ AFTAN: Ef þú vilt hafa op/klauf mitt að aftan lestu þá útskýringu hér að neðan. Fitjið upp 64-68-74-78 (82-88) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 8-12-6-14 (14-16) lykkjur jafnt yfir = 72-80-80-92 (96-104) lykkjur. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, þannig: Teljið 11-13-13-16 (17-19) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22-26-26-32 (34-38) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, nú eru eftir 11-13-13-16 (17-19) lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón. Í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá LASKALÍNA! Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-14-16-17 (18-19) sinnum = 168-192-208-228 (240-256) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram eins og útskýrt er að neðan undir PEYSA. PEYSA MEÐ OPI/KLAUF MITT AÐ AFTAN: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan, niður að þangað til opið/klaufin hefur verið prjónuð til loka, síðan er prjónað áfram í hring. Fitjið upp 71-75-81-85 (89-95) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 6 lykkjur GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í kanti að aftan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki innan við 6 lykkjur í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 7-11-5-13 (13-15) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 78-86-86-98 (102-110) lykkjur. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, þannig: Teljið 14-16-16-19 (20-22) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22-26-26-32 (34-38) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, nú eru eftir 14-16-16-19 (20-22) lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 6 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá LASKALÍNA! Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 12-14-16-17 (18-19) sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-5-6 (6-6) cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af 6 fyrstu lykkjur, prjónið síðan eins og áður út umferðina. Prjónið nú áfram hringinn í sléttprjóni og útaukning fyrir laskalínu heldur áfram í annarri hverri umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka eru 168-192-208-228 (240-256) lykkjur í umferð. Færið umferðina til þannig að umferðin byrjar mitt að aftan. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir PEYSA. PEYSA: Þegar stykkið mælist 9-10-11-12 (13-14) cm frá prjónamerki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 23-27-29-32 (34-37) lykkjur slétt, setjið næstu 38-42-46-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 46-54-58-64 (68-74) lykkjur slétt, setjið næstu 38-42-46-50 (52-54) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 lykkjur undir ermi, 23-27-29-32 (34-37) lykkjur slétt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 104-120-128-140 (148-160) lykkjur. Haldið áfram fram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 10-13-14-16 (18-21) cm frá skiptingu, aukið út um 12-12-14-14 (16-18) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 116-132-142-154 (164-178) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur í 3 cm. Fellið aðeins laust af. ERMI: Setjið 38-42-46-50 (52-54) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-52-56 (58-60) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 lykkja undir ermi. Byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-1½-2 (2-3) cm millibili alls 3-4-6-7 (7-7) sinnum = 38-40-40-42 (44-46) lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-11-12-15 (18-23) cm frá skiptingu, aukið út um 4-4-4-4 (6-6) lykkjur jafnt yfir = 42-44-44-46 (50-52) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. ÚTSAUMSMYND MEÐ HUNDI. Mynd af hundi er saumað út á framstykki – sjá mynsturteikningu A og B. Nefið á hundinum er saumað út ca mitt á framstykki, 7 cm niður frá kanti í hálsmáli. FRÁGANGUR: Ef prjónað hefur verið op/klauf mitt að aftan eru tölur saumaðar í kant að aftan sem er án hnappagata. Leggið kantinn með tölum undir kant með hnappagötum og saumið saman neðst niðri. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #woofwoofsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 42-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.