Abelia skrifaði:
Bonjour, je tricote la taille L du modèle 226-30 (veste Rocky shores)et je pense qu’il y a une erreur dans le diagramme A3. En effet il manque un jeté au début de l’avant-dernier rang. Sans ce jeté on obtient 34 m au lieu des 35 m que l’on doit retrouver au dernier rang. Le diagramme A3 des tailles S-M-L est le seul qui ne comporte pas de jeté à ce niveau là du point ajouré. S’il s’agit bien d’un oubli, merci de me le confirmer.
08.04.2022 - 14:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Abélia, et merci pour votre retour, il semble bien que ce soit un oubli, nos stylistes corrigeront cela prochainement; merci pour votre retour. Bon tricot!
08.04.2022 - 17:21
Berthelot Joelle skrifaði:
Je réalise le modèle en wish taille M, comme je suis petite j'ai raccourci de 5cm la hauteur de la veste et commandé10 pelotes soit 500g . Malgré cela il me manque une pelote pour pouvoir faire des manches longues. Le modèle est trés joli dommage!
01.04.2022 - 19:20
Avril skrifaði:
Hello, I am knitting the xxl size. Do I need to make a yarn over as the first stitch as it suggests in the diagram / pattern? Thanks Avril
27.02.2022 - 22:04DROPS Design svaraði:
Dear Avril, you have to work all stitches as shown in the diagram, ie including all yarn overs: start row 3 in A.1/size XL: with YO, K2 tog, YO, K1 etc.. happy knitting!
28.02.2022 - 10:38
Ann-Mona Kulsø Larsen skrifaði:
Hej I følge opskriften startes bærestykket på retsiden med strikkediagram A1 som venstre forstykke og sluttes med A4 som højre forstykke. Men det betyder at jeg får det skrå udtagningsstykke ind mod forstykkernes 5 kantmasker, samt tre masker i raglanlinjen. Jeg strikker diagrammet fra højre mod venstre. Kan det være rigtigt? Bør det ikke være A4 der skal startes med for at give venstre forstykke, og A1 som højre forstykke? Tak for hjælpen.
13.02.2022 - 17:34DROPS Design svaraði:
Hej Ann-Mona, jeg tror du har ret. Vi har sendt spørgsmålet videre til design, så hold øje med en rettelse. Tak for info :)
15.02.2022 - 14:39
Julie Swain skrifaði:
What size is medium? for this sweater, like a 12-14 misses? I want to make this sweater for my daughter not sure if I should go large or medium.
05.02.2022 - 17:23DROPS Design svaraði:
Dear Julie, you can check the schematic below the pattern, where you will find the measurements of the sweater in cm, for the different sizes. This way, you can choose the best size for your daughter. Happy knitting!
05.02.2022 - 18:26
Flavia skrifaði:
After you work A1 and A4 one time in height (making the proper increases = 189 stitches), how do you continue the pattern without further increses? For the life of me, I can't seem to get the pattern without increasing the stitches.
04.01.2022 - 22:48DROPS Design svaraði:
Dear Flavia, repeat the pattern as before, and just work the new stitches that cannot be worked into the pattern in stokcing stitch. Happy knitting!
19.01.2022 - 10:42
Lise Havmand skrifaði:
I cannot get the diagram started corretly. Help!, 🥰
08.12.2021 - 12:54DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Havmand, could this lesson help you? It explains how to work diagram - from WS read diagrams from the left towards the right - see here here. Happy knitting!
08.12.2021 - 13:50
Marie Garpefjäll skrifaði:
Country flag Marie Garpefjäll 06.11.2021 - 00:04: Till Drops: A3 rad 9, fel i fönstret, saknas ett omslag i början. Det måste vara: ett omslag, två tillsammans, ett omslag. Mvh Marie
06.11.2021 - 20:25DROPS Design svaraði:
Hej Marie. Vi ska se över detta så fort som möjligt, tack för info! Mvh DROPS Design
09.11.2021 - 09:12
Marie Garpefjäll skrifaði:
A3 rad 9, fel i fönstret, saknas ett omslag i början. Det måste vara: ett omslag, två tillsammans, ett omslag. Mvh Marie
06.11.2021 - 00:04
AnnaL skrifaði:
Je suis en train de tricoter ce joli modèle, et j'ai découvert quelques erreurs sur les explications que je signale pour éviter à d'autres quelques mésaventures ! Tout d'abord, les grilles A1 et A4 sont inversées. Sur le diagramme A1 et A4, la taille XL doit commencer à 14 mailles et terminer 6 rangs plus haut qu'indiqué. Sur les deux grilles A3 il manque des jetés entre deux mailles. En espérant avoir été utile !
31.10.2021 - 15:34
Rocky Shores#rockyshoresjacket |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-30 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í mynsturteikningu A.1 og A.4 og veldu rétta stærð í A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT (ofan frá og niður): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): 1 hnappagat = Prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist 4 cm. Fellið síðan af fyrir de 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 9 cm millibili. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 117 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d.10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 13,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 13. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-68-68-76-76-76 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 7 með DROPS Snow eða DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona. Þegar stykkið mælist 4 cm, byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stroffið mælist 8 cm. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í lok hverrar brugðinnar einingar, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat = 82-82-82-92-92-92 lykkjur í umferð. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm, nú hafa verið prjónaðar alls 12 cm í stroffprjóni, endið umferð eftir umferð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið 1 umferð brugðið þar sem aukið er út um 3-3-3-5-5-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 85-85-85-97-97-97 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 11-11-11-14-14-14 lykkjur) (= 16-16-16-19-19-19 lykkjur á framstykki), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.2 (= 11 lykkjur á ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.3 (= 23-23-23-29-29-29 lykkjur á bakstykki), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.2 (= ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), A.4 (= 11-11-11-14-14-14 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= 16-16-16-19-19-19 lykkjur á framstykki). Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur í umferð, útaukningar eru teiknaðar inn í A.1 til A.4. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað þannig: (A.1 og A.4 heldur áfram á framstykki eins og áður). BAKSTYKKI: Prjónið A.5A yfir fyrstu 5-5-5-5-5-5 lykkjur, A.5B yfir næstu 24-24-24-30-30-30 lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.5C yfir síðustu 6-6-6-6-6-6 lykkjurnar. ERMI: Prjónið A.5A yfir fyrstu 5-5-5-5-5-5 lykkjur, A.5B yfir næstu 12-12-12-12-12-12 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.5C yfir síðustu 6-6-6-6-6-6 lykkjur. Í hvert skipti sem A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri af A.5B á milli A.5A og A.5C. Þegar A.1 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 189-189-213-225-249-273 lykkjur í umferð og það hefur verið aukið 13-13-16-16-19-22 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið án útaukningar (haldið áfram með mynstur eins og áður) þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram og bakstykki og ermar og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. Prjónið næstu umferð þannig frá réttu: Prjónið 29-29-32-35-38-41 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 41-41-47-47-53-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fijtið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 49-49-55-61-67-73 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 41-41-47-47-53-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 29-29-32-35-38-41 lykkjur sem eftir eru í mynstri eins og áður (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 117-117-129-141-153-165 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 125-125-137-149-161-173 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 6 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 41-41-47-47-53-59 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 46-46-52-52-58-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 5 lykkjum undir ermi og byrjið umferð hér. Haldið áfram með mynstur hringinn, en án útaukningar, passið uppá að mynstrið passi á hæðina yfir lykkjur á berustykki – ATH! Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5½-5½-4½-4-3-2½ cm millibili alls 6-6-7-7-8-10 sinnum = 34-34-38-38-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 37-36-36-33-32-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 6 cm að loka máli). Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-42-39-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rockyshoresjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.