DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rocky Shores Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-29
DROPS Design: Mynstur ee-727
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
600-650-700-800-850-950 g litur 47, ljós beige

Eða notið:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
450-450-500-600-650-750 g litur 05, beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 60-60-60-80-80-80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og gatamynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 13,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 13. og 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Byrjun á umferð er í skiptingunni á milli vinstri öxl og bakstykkis. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 60-60-60-68-68-68 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Snow eða DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 8 cm. Aukið síðan út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn í lok hverrar brugðinnar einingar, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat = 75-75-75-85-85-85 lykkjur í umferð. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm, nú hafa verið prjónaðir alls 12 cm stroffprjón.
Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1-1-1-3-3-3 lykkjur jafnt yfir = 76-76-76-88-88-88 lykkjur. Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Setjið 1 prjónamerki ca mitt í umferð (= mitt að framan).
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð þannig: A.1 (= 23-23-23-29-29-29 lykkjur á bakstykki), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.2 (= 11 lykkjur á ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.1 (= 23-23-23-29-29-29 lykkjur framstykki), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.2 (= ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína). Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur í umferð, útaukning er teiknuð inn í A.1 og A.2. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað þannig:

BAKSTYKKI OG FRAMSTYKKI:
Prjónið A.3A yfir fyrstu 5-5-5-5-5-5 lykkjur, A.3B yfir næstu 24-24-24-30-30-30 lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.3C yfir síðustu 6-6-6-6-6-6 lykkjur.
ERMI:
Prjónið A.3A yfir fyrstu 5-5-5-5-5-5 lykkjur, A.3B yfir næstu 12-12-12-12-12-12 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.3C yfir síðustu 6-6-6-6-6-6 lykkjur.
Í hvert skipti sem A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri af A.3B á milli A.3A og A.3C.

Haldið áfram með A.3 þar til aukið hefur verið út alls 13-13-16-16-19-22 sinnum. Nú eru 180-180-204-216-240-264 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið án útaukningar (haldið áfram með mynstur eins og A.3B) þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki mitt að framan.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram og bakstykki og ermar og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig.
Prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið 49-49-55-61-67-73 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 41-41-47-47-53-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fijtið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 49-49-55-61-67-73 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 41-41-47-47-53-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi).
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 108-108-120-132-144-156 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 116-116-128-140-152-164 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff svona í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 41-41-47-47-53-59 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 46-46-52-52-58-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 5 lykkjum undir ermi og byrjið umferð hér. Haldið áfram með mynstur hringinn, en án útaukningar, passið uppá að mynstrið passi á hæðina yfir lykkjur á berustykki – ATH! Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5½-5½-4½-4-3-2½ cm millibili alls 6-6-7-7-8-10 sinnum = 34-34-38-38-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 37-36-36-33-32-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 6 cm að loka máli).
Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-42-39-38-37 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.11.2021
Ný mynsturteikning

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Tove Morskogen wrote:

Hei.Jeg finner ikke rettelsen til mønstret.Har prøvd å strikke,men mønstret går ikke opp.Er det mulig å få tilsendt riktig mønster? Mvh.Tove Morskogen

15.03.2024 - 11:25

DROPS Design answered:

Hej Tove, jo det er de nye diagrammer som ligger her på nettet :)

19.03.2024 - 11:01

country flag Monique wrote:

Hallo,ich soll für Grösse M A3 13 mal in der Höhe stricken bevor ich die Ärmel abteile? Das ist doch viel zu oft?

21.12.2023 - 20:16

DROPS Design answered:

Liebe Monique, in M muss man 13 Mal in der Höhe zunehmen, dh 13 Mal in jeder 2. Runde = 26 Runden mit 8 Zunahmen in jeder 2. Runde: 76 Maschen + (13 Mal 8 Zunahmen) = 180 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

22.12.2023 - 08:30

country flag Jeanine HO-YOU- FAT wrote:

Sur le modèle 195-36 Je ne comprends pas la marche à suivre au niveau des diagrammes. Pouvez vous m éclairer ?

03.12.2022 - 21:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ho-You-Fat, parlez-vous de ce châle? Peut-être que cette leçon est alors celle qu'il vous faut pour comprendre comment lire les diagrammes; n'hésitez pas à préciser votre question en la posant bien dans la rubrique de ce modèle. Bon tricot!

06.12.2022 - 09:04

country flag Heiða wrote:

Hæ hæ ég er alls ekki að skilja hvað eg á að gera þegar ég er búin með útaukningu og kominn með 180 lykkjur og er í munstri 3a sem sagt hvaða línur af munstrinu á eg að nota fyrir restina af peysunni þannig að ég auki ekki endalaust út kv Heiða

28.11.2022 - 01:44

DROPS Design answered:

Blessuð Heiða. Þú prjónar án útaukningar (heldur áfram með með mynstur eins og A.3B). Gangi þér vel.

06.01.2023 - 10:25

country flag Ann wrote:

Hej. Med hänvisning till denna del i beskrivningen (ÄRM): "Sticka utan ökningar (fortsätt med mönster som förut) till arbetet mäter 18-20-21-23-25-27 cm från markören mitt fram. " Jag är nybörjare inom stickning och förstår inte riktigt hur jag ska sticka mönstret utan ökningar då ökningar är intecknade i mönstret. Tacksam för hjälp.

13.07.2022 - 10:06

DROPS Design answered:

Hej Ann. Du fortsätter då mönstret som du stickat tidigare, men utan ökningar, dvs utan de yttersta delarna av diagrammet. Se bara till att mönstret passar ihop med det du stickat innan. Mvh DROPS Design

13.07.2022 - 13:37

country flag Simone wrote:

Hi there, Thank you so much for providing all those beautiful patterns. If the pattern says: 11 stitches in width and 15 rows in height with stocking stitch and lace pattern = 10 x 10 cm. How do I know how many rows of stocking Stich I need and how many of the lace pattern? Thank you for your help, Simone

01.02.2022 - 09:39

DROPS Design answered:

Dear Simone, if your swatch is correct in stocking stitch, then it should be correct also in the lace pattern - just make sure to keep same tension. Happy knitting!

01.02.2022 - 11:43

country flag Nono wrote:

Bonjour, Merci de votre réponse rapide qui m'a permis de retomber correctement sur les diagrammes précédents. Néanmoins j'ai dû défaire mon ouvrage car je me trouvais avec beaucoup plus de 108 mailles une fois arrivée au dos/devant. certainement parce que j'ai continué avec des augmentations une fois les 13 augmentations faites. Alors qu'entendez-vous par "continuer sans augmenter" ?merci beaucoup.

14.01.2022 - 16:11

DROPS Design answered:

Bonjour Nono, lorsque les augmentations du raglan sont terminées, vous tricotez simplement le point fantaisie sans augmenter, autrement dit, à partir de la dernière augmentation faite, tricotez le point ajouré en hauteur comme avant (si besoin, tricotez en jersey les mailles qui ne peuvent pas se tricoter dans le point fantaisie). Bon tricot!

14.01.2022 - 16:51

country flag Liisa wrote:

Hei! Monellako silmukalla työ kannattaa aloittaa, jos jättää korkean kauluksen tekemättä ja aloittaa suoraan pääntiestä?

11.01.2022 - 23:19

DROPS Design answered:

Hei, aloittaisin luomalla 76-76-76-88-88-88 silmukkaa (katso oman koosi luku). Neulo ainakin muutama kerros esim. ainaoikeaa ennen kuin aloitat mallineuleen.

20.01.2022 - 17:35

country flag Nono wrote:

Bonjour, Une fois mes 180 mailles je peine à retomber sur les diagrammes précédents. La faute aux 5 mailles montées sous les bras qui décalent tout? Vous dites de tricoter en jersey les mailles qui ne peuvent s'inclure dans les diagrammes mais cela veut dire qu'il y aura tout une bande de jersey sur les cotés du pull?Dans l'attente de votre réponse pour continuer mon ouvrage.merci

11.01.2022 - 19:42

DROPS Design answered:

Bonjour Nono, vous devez tomber juste, les augmentations sont calculées de telle sorte que le motif tombera juste sous les manches: les 2 dernières mailles du dos/devant se tricotent avec la 1ère des 5 mailles, puis 1 jeté,1 m end, 1 m env, 1 m end, 1 jeté, et la dernière de ces 5 mailles se tricote avec les 2 premières mailles du devant/dos, ainsi, le motif continue sans s'arrêter. Bon tricot!

12.01.2022 - 07:15

country flag Marie wrote:

Je fais la taille M, quand j'ai mes 180 mailles sur l'aiguille et que je veux continuer sans augmenter, je prends quel diagramme?

11.12.2021 - 22:19

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, vous continuez votre point fantaisie comme avant, en alternant les double-diminutions + les 2 jetés et la maille envers, exactement comme vous avez fait auparavant. Tricotez en jersey si besoin les mailles que vous ne pouvez pas tricoter dans le point fantaisie. Bon tricot!

13.12.2021 - 09:23