Baukje Knoet skrifaði:
Ik zou hem een trui willen breien van beneden naar boven kan dat?
12.02.2025 - 17:01DROPS Design svaraði:
Dag Baukje,
Helaas is dit patroon alleen van boven naar beneden beschikbaar. In deze link vind je wat informatie over van boven naar beneden breien, misschien dat je hier wat aan hebt, zodat je eventueel toch dit patroon kunt gebruiken.
15.02.2025 - 10:56
Alice skrifaði:
On the diagram do I start at the top or the bottom???
05.11.2024 - 00:28DROPS Design svaraði:
Hi Alice, you should start the diagram from the bottom and work from right to left side. Happy knitting!
05.11.2024 - 08:41
Anne skrifaði:
På 15:e raden i diagrammet A1, i storlek L-XL ska man enligt diagrammet sticka 10 maskor, sedan en ökning, och därefter 1 maska. Om man gör så går inte diagrammet ut, dvs, den sista ökningen blir i nästa varv. I diagrammet ser det ut som att det finns 11 maskor per rapport, men i verkligheten är det bara 10. Hur gör man för att få till ökningen på 20 maskor inom rapporten?
03.04.2024 - 10:20DROPS Design svaraði:
Hei Anne. Ser ut som om den siste ruten i rad 15 ikke skulle ha vært der. Oppskriften er oversendt til design avd. slik at de kan ta en dobbeltsjekk/evnt komme med en rettelse. mvh DROPS Design
08.04.2024 - 12:54
Sophie skrifaði:
Pour la taille m au niveau du diagramme a la 12 ème ligne on fait 10 M 1 jeté et 1M. Mais a la fin cela ne tombe pas juste. Y aurait il une erreur?
30.10.2023 - 16:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Sophie, au 12ème rang de A.1, taille M, vous avez 10 mailles dans chaque A.1 (les 6 mailles du départ + les 4 augmentations précédentes) et vous tricotez (9 mailles endroit, 1 jeté, 1 m endroit) et vous répétez de (à) tout le tour, vous avez désormais 11 mailles dans chaque A.1. Bon tricot!
30.10.2023 - 18:17
Barbara skrifaði:
Jak dodać oczka w żakardzie na okrągło, żeby nie było widoczne zwiększenie?
30.08.2023 - 10:10DROPS Design svaraði:
Witaj Basiu, w tym wzorze dodawanie oczek jest wykonywane w rzędach kolorem malinowym. Dodawanie oczek w schemacie żakardowym jest także wykonywane kolorem malinowym - aby dodać oczko należy wykonać 1 narzut między 2 oczkami, a w następnym okrążeniu przerobić oczko przekręcone w miejscu narzutu na prawo, aby uniknąć dziur. Pozdrawiam!
30.08.2023 - 15:04
Barbara skrifaði:
Jak obliczyć oczka w wykończeniu dekoltu? Musi być przejście z 88 oczek na 114 (rozm. L). Co ile zrobić zwiększenie?
06.03.2023 - 10:25DROPS Design svaraði:
Witaj Basiu, 88:26 = 3,3, tzn. będziesz dodawać 1 oczko na przemian co 3 i 4 oczka (mniej więcej oczywiście). Zawsze patrz w opisie DODAWANIE OCZEK (w regularnych odstępach/równomiernie) - trzeba to tylko zawsze zastosować do swojego rozmiaru. Pozdrawiamy!
06.03.2023 - 12:55
Chacha skrifaði:
Bonjour, il y a une erreur sur le diagramme A1 taille L.XL.XXL au rang 15 vous indiquez qu’il faut tricoter à l’endroit 10mailles, faire une augmentation, tricoter 1maille de plus à l’endroit. Puis répéter ce motif 19 fois. Ceci n’est pas possible pour retrouver le nombre de maille indiqué. Il ne faut pas tricoter 1maille après l’augmentation. Comme pour les autres augmentations du model, l’augmentation se fait en fin de motif. (10M tricotés, 1M augmenté X19).
25.09.2022 - 12:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Chacha, au 15ème rang augmentez ainsi: (tricotez 10 mailles endroit, 1 jeté, 1 maille endroit) répétez de (à) tout le tour; vous augmentez 1 maille par motif comme avant, m ais effectivement, pas à la fin du motif, vous aurez ainsi 11 mailles entre chaque augmentation. Bon tricot!
26.09.2022 - 11:53
De Man skrifaði:
Moet je de mouwen minderen of niet
21.12.2021 - 21:34DROPS Design svaraði:
Dag De Man,
Je mindert inderdaad midden onder de mouw vanaf 3 cm waar het werk gescheiden is. Bij de paragraaf MOUW staat aangegeven hoeveel je moet minderen in iedere maat.
23.12.2021 - 15:08
Monica Gustavsson skrifaði:
Hej. Frågan är inte specifik för det här mönstret - hoppas det går bra ändå. Ser i mönstret att det finns en notering om att en uppdatering är gjord. Jag saknar/kan inte hitta den lista ni hade på er förra hemsida där alla uppdateringar kunde ses under en flik och inte endast vid varje mönster. Om den inte finns (och jag bara inte kan hitta den) önskar jag att den tas tillbaka. Adventshälsningar Monica
07.12.2021 - 02:44DROPS Design svaraði:
Hej Monica, tak for dit synspunkt, vi tager det med os i kommende opdateringer! God Jul :)
09.12.2021 - 09:16
De Man skrifaði:
Volgens mij zit een fout in het patroon als je harten gebreid is heb je 336 steken dat klopt toch niet lees het patroon eens goed door
25.11.2021 - 10:04
Merry Hearts#merryheartssweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa / jólapeysa úr DROPS Air. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með hringlaga berustykki og hjartamynstri. Stærð XS - XXL. Þema: Jól.
DROPS 228-50 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 95-100-105-110-115-120 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með litnum hindber í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fækkið nú um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist alls 12 cm. Skiptið yfir í stuttan hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-16-18-26-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 84-96-102-114-120-126 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.1 (= 14-16-17-19-20-21 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og lestu LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 224-256-272-304-320-336 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með litnum hindber, þar sem aukið er út um 8-0-0-0-4-8 lykkjur jafnt yfir = 232-256-272-304-324-344 lykkjur. Haldið áfram með litnum hindber og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 34-38-40-44-49-53 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-76-80-88-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-38-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 148-164-176-192-216-236 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum hindber. Prjónið þar til stykkið mælist 27-27-27-27-27-27 cm frá skiptingu (eða óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum hindber. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-6-4-3-2½-2½ cm millibili alls 5-6-8-11-11-12 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 38-36-36-35-34-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 4-2-4-2-4-2 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Hægt er að brjóta uppá kantinn í hálsmáli þannig að hann verði tvöfaldur, eða það er líka hægt að nota hann sem háan kraga. Ef stykkið á að vera með tvöföldum kanti í hálsmáli þá er það gert þannig: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #merryheartssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-50
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.