Ingrid skrifaði:
Autumn adventure
17.08.2021 - 10:05
Tanja Balling Sørensen skrifaði:
Winter holiday
14.08.2021 - 15:47
Larysa Lipinska skrifaði:
Autumn chocolate
06.08.2021 - 21:27
Else Karin Jegteberg skrifaði:
Shooting Autumn
04.08.2021 - 22:16
Lynn skrifaði:
Love it's a bit fitted and the length!
03.08.2021 - 20:00
Shannon Oxley skrifaði:
Adventure Miles
03.08.2021 - 18:45
Gorgeous! skrifaði:
This should be called Winter Romance
03.08.2021 - 17:11
Chocolate Ridge#chocolateridgesweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, klukkuprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-5 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 70 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn , svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 4. og 5. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR (á við um lykkjufjölda): Þegar lykkjur eru taldar er uppslátturinn ekki talinn sem lykkja. ÚRTAKA (á við um ermar, einungis stærð L, XL, XXL og XXXL): Fækkið lykkjum til skiptis á undan og á eftir prjónamerki í umferð. Fækkið um 2 lykkjur í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið fyrstu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + lykkja og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið um 2 lykkjur í byrjun á umferð þannig: Lyftið fyrstu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, steypið lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem var sett til baka á vinstri prjón, lyftið að lokum yfir lykkjuna sem eftir er á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður – byrjun á umferð = mitt að framan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Hægt er að nota peysuna frá báðum hliðum og í báðar áttir, festu því þræðina fallega. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 70-70-80-80-80-90 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 (fitjað er uppá með grófari prjónum til að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 13 cm. Síðar á að brjóta uppá kant í hálsi saman tvöfalt og við frágang þá verður hann ca 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-14-16-16-16-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 56-56-64-64-64-72 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að framan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Sjá LEIÐBEININGAR! Prjónið nú klukkuprjón þannig: Prjónið A.1 hringinn (= 7-7-8-8-8-9 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 140-140-160-192-192-216 lykkjur í umferð. Berustykkið mælist ca 12-12-12-16-16-16 cm, mælt frá prjónamerki á eftir kanti í hálsmáli. Prjónið síðan A.2 umferðina hringinn. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar berustykkið mælist 24-26-27-29-31-33 cm, mælt frá prjónamerki á eftir kanti í hálsmáli, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 20-20-22-28-28-32 lykkjur eins og áður (= hálft framstykki), setjið næstu 30-30-36-40-40-44 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-8-8-4-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 40-40-44-56-56-64 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 30-30-36-40-40-44 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-8-8-4-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 20-20-22-28-28-32 lykkjur sem eftir eru (= hálft framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 88-96-104-120-128-144 lykkjur. Haldið áfram með mynsturteikningu A.2 - þær 4-8-8-4-8-8 lykkjur mitt undir ermi eru prjónaðar inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar slétt/brugðið án uppsláttar. Þegar stykkið mælist 29-29-30-30-30-30 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 6 cm að loka máli), skiptið yfir á hringprjón 4,5 og aukið út þannig: Uppslátturinn í klukkuprjónsmynstri er prjónaður saman með lykkjum sem þeir tilheyra. Prjónið * 1 lykkju slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina = 176-192-208-240-256-288 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 30-30-36-40-40-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-8-8-4-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-38-44-44-48-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 4-8-8-4-8-8 lykkja undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að merkja byrjun á umferð og er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum. Haldið áfram með A.2 – þær 4-8-8-4-8-8 lykkjur mitt undir ermi eru prjónaðar inn í mynstur, þ.e.a.s. í fyrstu umferð eru lykkjur prjónaðar slétt/brugðið án uppsláttar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi (á einungis við um stærð L, XL, XXL og XXXL) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í öðrum hverjum cm alls 0-0-2-1-2-2 sinnum = 34-38-40-42-44-48 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 42-41-39-38-37-35 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 6 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðu vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð slétt jafnframt því sem aukið er út um 6-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir (uppslátturinn í klukkuprjónsmynstri er prjónaður saman með lykkjum sem þeir tilheyra) = 40-46-48-50-52-58 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chocolateridgesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.