Schneeberge skrifaði:
Vielen Dank für die schnelle Antwort!!! Ist nur die 1.Reihe in Abschnitten A.1A, A1B und A1.C unterteilt und die anderen Reihen wiederholen sich gemäss Rapport? Ich habe es so gestrickt, die 1.Reihe habe ich in diesen Abschnitten so gestrickt. Dann die 2.Reihe alles links, die 3.Reihe gemäss Rapport (=13 Maschen) mit Umschl und zusammenstricken, die 4.Reihe wieder alle M links und bei der 5. Reihe ist die letzte M re. Dieser Rapport beginnt dann wieder mit einer rechten M. Ist das so korrekt?
26.10.2021 - 07:08DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schneeberge, die Rück-Reihen werden stets links gestrickt, da müssen Sie also auf die Unterteilung nicht achten. Bei den Hin-Reihen müssen Sie aber darauf achten, dass Sie auch weiterhin gemäß der Unterteilung A, B und C stricken, d.h. an den Vorderteilen und am Rückenteil wie in der 1. Reihe A (= 3 Maschen) und C (= 4 Maschen) jeweils 1 x am Anfang und am Ende und dazwischen B (= 6 Maschen) stets wiederholen.
26.10.2021 - 22:39
Schneeberge skrifaði:
Ich gehe davon aus, dass das Diagramm von unten nach oben gelesen wird. Die 5. Reihe von unten nach oben endet mit einer rechten Masche und der gleiche Rapport fängt wieder mit einer rechten Masche an. Dann ergibt das zwei rechte Maschen bei der Wiederholung vom Rapport? Bei mir geht diese Reihenfolge nicht auf. Oder muss ich beim Ärmel einfach mit dem Muster enden und auf der anderen Seite vom Ärmel mit dem Muster neu anfangen?
25.10.2021 - 15:16DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schneeberge, Sie stricken ja nicht durchweg den kompletten Rapport A.1 in der Breite, sondern die unterschiedlichen Abschnitte, d.h. A.1A 1x am Anfang, A.1B wird mehrfach wiederholt und A.1C wird am Ende des Musters 1x gestrickt. Die Ärmel-Maschen stricken Sie glatt rechts und beginnen dann wieder mit A.1A, d.h. das Muster wird nur an den Vorderteilen und am Rückenteil gestrickt und nicht an den Ärmeln. Gutes Gelingen!
25.10.2021 - 19:35
Corrie skrifaði:
I like the neat fit (so many look as if they are 3 sizes too big for the model), and the attractive stitch.
09.08.2021 - 10:41
Gitte Nyhus skrifaði:
Den er vidunderlig
05.08.2021 - 09:22
Mimi M Routh skrifaði:
I like the saddle shoulders and texture, also the smallness of scale. I'm voting for things I really would make. This is perfect all year in AC.
03.08.2021 - 23:00
DOYEN Marie-Line skrifaði:
Très jolis tons pour ce cardigan. j'aime beaucoup ce point fantaisie. Superbe
03.08.2021 - 22:56
Cotswolds#cotswoldscardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og axlarsæti. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-11 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroff í hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 9 cm millibili. ÚTAUKNING-1: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 209 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 42) = 4,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjóna. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki, bakstykki og axlarsæti. Síðan er hvort axlarsætið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, áður en lykkjur af þráðum eru settar til baka á prjóninn og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir framstykkin og bakstykkið (meðfram hliðum á axlarsætum). Síðan er afgangur af berustykki prjónaður fram og til baka, jafnframt því sem lykkjur eru auknar út á ermum og framstykkjum og bakstykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 119-119-131-131-139-139 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3,5 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2½ cm. AXLARSÆTI: Setjið fyrstu 25-25-28-28-30-30 lykkjur á þráð, setjið næstu 18 lykkjur á stuttan hringprjón 4, setjið næstu 33-33-39-39-43-43 lykkjur á þráð, setjið næstu 18 lykkjur á þráð, setjið síðustu 25-25-28-28-30-30 lykkjur á þráð. Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 18 lykkjur í umferð, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 20 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið fram og til baka yfir þessar 20 lykkjur í 8-8-10-10-11-11 cm, í síðustu umferð er felld af 1 kantlykkja í hvorri hlið = 18 lykkjur. Klippið þráðinn. Setjið þessar lykkjur á þráð. Prjónið alveg eins yfir 18 lykkjur af þræði í hinni hliðinni. Klippið þráðinn. BERUSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hliðum á axlarsætum, með byrjun frá réttu og mitt að framan þannig, á hringprjón 4: Prjónið fyrstu 25-25-28-28-30-30 lykkjur af þræði, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við kantlykkju í hlið á axlarsæti (= 42-42-48-48-54-54 lykkjur fyrir vinstra framstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 16 lykkjur á axlarsæti slétt, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við 1 kantlykkju í hlið á axlarsæti, prjónið 33-33-39-39-43-43 lykkjur af þræði, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við 1 kantlykkju í hlið á axlarsæti (= 67-67-79-79-91-91 lykkjur á bakstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 16 lykkjur á axlarsæti slétt, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við kantlykkju í hlið á axlarsæti og prjónið síðustu 25-25-28-28-30-30 lykkjur af þræði slétt (= 42-42-48-48-54-54 lykkjur fyrir hægra framstykki) = alls 187-187-211-211-235-235 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið til baka (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni). Setjið eitt prjónamerki innan við kantlykkjur að framan í byrjun á umferð mitt að framan – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú mynstur eins og útskýrt er að neðan og aukið er út fyrir ermi þannig: ÚTAUKNING Á ERMI: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! PRJÓNIÐ MYNSTUR ÞANNIG: 5 lykkjur garðaprjón, A.1A (= 3 lykkjur), A.1B yfir næstu 30-30-36-36-42-42 lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.1C (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermi (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis), A.1A (= 3 lykkjur), A.1B yfir næstu 60-60-72-72-84-84 lykkjur (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.1C (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermi (þ.e.a.s. á milli 3. og 4. prjónamerki), A.1A, A.1B yfir næstu 30-30-36-36-42-42 lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.1C (= 4 lykkjur) og endið með 5 lykkjur garðaprjón. Þær 4 lykkjur með prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út á ermum í annarri hverri umferð alls 9-6-10-8-10-6 sinnum = 36-30-38-34-38-30 lykkjur á milli prjónamerkja á ermum. Stykkið mælist nú ca 6-4-7-4-7-4 cm. Þegar útaukning á ermi hefur verið gerð til loka, haldið áfram með mynstur og útaukningu fyrir berustykki (nú eru 223-211-251-243-275-259 lykkjur í umferð). ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Í næstu umferð frá réttu eru auknar út 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði fyrir og eftir hverja af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú eru lykkjur auknar út á framstykki, bakstykki og á báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur á framstykki og bakstykki og í sléttprjóni á ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-18-18-24-24-30 sinnum = 319-355-395-435-467-499 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 15-17-20-23-24-26 cm frá prjónamerki við hálsmál. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður þar til stykkið mælist 18-20-21-23-24-27 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið fyrstu 54-60-66-72-78-84 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 60-66-74-82-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 91-103-115-127-139-151 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 60-66-74-82-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 54-60-66-72-78-84 lykkjur (= vinstra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 209-233-257-281-305-329 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, A.1A (= 3 lykkjur), A.1B yfir næstu 192-216-240-264-288-312 lykkjur (= 32-36-40-44-48-52 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.1C (= 4 lykkjur), 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 24-24-25-25-26-25 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 42-44-52-56-62-66 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 251-277-309-337-367-395 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið til baka 60-66-74-82-86-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 65-71-79-87-91-95 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkju undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4½-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 6-8-11-14-15-16 sinnum = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 30-29-26-25-23-21 cm frá skiptingu, nú er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1 lykkju = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið yfir allar lykkjur í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 54-55-53-54-53-54 cm frá yst á öxl og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cotswoldscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.