DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cotswolds Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og axlarsæti. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-12
DROPS Design: Mynstur sk-141
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-350-350-400-450 g litur 07, ljós sægrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 - 80 cm fyrir sléttprjón og gatamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og gatamynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING-1:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 192 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 38) = 5,1.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki, bakstykki og axlarsæti. Síðan er hvort axlarsætið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, áður en lykkjur af þráðum eru settar til baka á prjóninn og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir framstykki og bakstykkið (meðfram hliðum á axlarsætum).
Síðan er afgangur af berustykki prjónaður í hring, jafnframt því sem lykkjur eru auknar út á ermum og framstykki og bakstykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 102-102-114-114-122-122 lykkjur á hringprjóna 3,5 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 2½ cm.

AXLARSÆTI:
Setjið fyrstu 33-33-39-39-43-43 lykkjur á þráð, setjið næstu 18 lykkjur á stuttan hringprjón 4, setjið næstu 33-33-39-39-43-43 lykkjur á þráð, setjið síðustu 18 lykkjur á þráð.
Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 18 lykkjur í umferð, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 20 lykkjur. Kantlykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið fram og til baka yfir þessar 20 lykkjur í 8-8-10-10-11-11 cm, í síðustu umferð er felld af 1 kantlykkja í hvorri hlið = 18 lykkjur. Klippið þráðinn. Prjónið alveg eins yfir 18 lykkjur af þræði í hinni hliðinni.

BERUSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hliðum á axlarsætum á hringprjón 4:
Byrjið yst á öðru axlarsætinu, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við kantlykkju í hlið á axlarsæti, prjónið 33-33-39-39-43-43 lykkjur af þræði slétt, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við kantlykkju í hlið á axlarsæti (= 67-67-79-79-91-91 lykkjur á bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 16 lykkjur á öxl slétt, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við 1 kantlykkju í hlið á axlarsæti, prjónið 33-33-39-39-43-43 lykkjur af þræði slétt, prjónið upp 17-17-20-20-24-24 lykkjur innan við 1 kantlykkju í hlið á axlarsæti (= 67-67-79-79-91-91 lykkjur á framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 16 lykkjur á axlarsæti slétt, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju = alls 170-170-194-194-218-218 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Byrjun á umferð er í skiptingu á milli vinstri öxl og bakstykki.

Prjónið nú mynstur eins og útskýrt er að neðan og síðan er aukið út fyrir ermi þannig:

ÚTAUKNING Á ERMI:
Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

PRJÓNIÐ MYNSTUR ÞANNIG:
A.1A (= 3 lykkjur), A.1B yfir næstu 60-60-72-72-84-84 lykkjur (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.1C (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermi (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis), A.1A (= 3 lykkjur), A.1B yfir næstu 60-60-72-72-84-84 lykkjur (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.1C (= 4 lykkjur), prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermi (þ.e.a.s. á milli 3. og 4. prjónamerkis). Þær 4 lykkjur með prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni.

Aukið út á ermum í annarri hverri umferð alls 9-6-10-8-10-6 sinnum = 36-30-38-34-38-30 lykkjur á milli prjónamerkja á ermum. Stykkið mælist nú ca 6-4-7-6-7-4 cm. Þegar útaukningar á ermi hafa verið gerðar til loka, haldið áfram með mynstur og útaukninga fyrir berustykki (nú eru 206-194-234-226-258-242 lykkjur í umferð).

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Í næstu umferð eru auknar út 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði fyrir og eftir hverja af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-1. ATH! Til að mynstrið komi ekki til með að færast til er aukið út þannig: Aukið út um 1 lykkju í byrjun á umferð (= á eftir 4. prjónamerki), aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1., 2. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á undan 4. prjónamerki í lok umferðar.
Nú eru lykkjur auknar út á framstykki, bakstykki og á báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur á framstykki og bakstykki og í sléttprjóni á ermum.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-18-18-24-24-30 sinnum = 302-338-378-418-450-482 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 15-17-20-23-24-26 cm frá prjónamerki við hálsmál. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður þar til stykkið mælist 18-20-21-23-24-27 cm.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 91-103-115-127-139-151 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 60-66-74-82-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 91-103-115-127-139-151 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-66-74-82-86-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 192-216-240-264-288-312 lykkjur í umferð.
Prjónið A.1B yfir allar lykkjur (= 32-36-40-44-48-52 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 24-24-25-25-26-25 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 38-42-48-52-58-62 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 230-258-288-316-346-374 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið til baka 60-66-74-82-86-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 65-71-79-87-91-95 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkju undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4½-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 6-8-11-14-15-16 sinnum = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 30-29-26-25-23-21 cm frá skiptingu, nú er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 1 lykkju = 54-56-58-60-62-64 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið yfir allar lykkjur í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist alls 54-55-53-54-53-54 cm frá yst á öxl og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = útaukning á ermum
symbols = útaukning á berustykki
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Mégane Simon wrote:

Bonjour, Je ne sais pas du tout comment faire les augmentations empiècement. J'ai l'impression que dans tous les cas le schéma se décale... La maille avec le marqueur étant une maille jersey et que j'augmente une maille après le marqueur. Au tour suivant la maille marqueur sera toujours en jersey mais le jeté du diagramme sera au dessus de celle ajouter et non au dessus du jeté précèdent...

16.01.2024 - 15:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Simon, les augmentations se font avant et après les diagrammes, elles vont se tricoter en jersey jusqu'à ce que vous ayez assez de mailles pour les incorporer dans le point ajouré. Pour vous aider, vous pouvez ajouter des marqueurs entre vos diagrammes pour bien pouvoir visualiser quand vous pourrez augmenter, et tricotez les nouvelles mailles en suivant d'abord A.1C au début du point fantaisie et A.1A à la fin du point fantaisie dès que vous avez augmenté suffisamment de mailles pour 1 motif en plus de ces mailles, puis après 6 augmentations, vous avez 1 nouveau motif B de chaque côté. Bon tricot!

17.01.2024 - 08:51

country flag Veronique BIGAUD wrote:

Bonjour, je souhaite réaliser le modèle 226-12, je ne comprend pas comment faire le point qui est écrit tricoter en point fantaisie : A1 B au dessus des 60 mailles 10x14 motifs de 6 mailles. Je dois répéter la partie B 10 fois pour le premier rang cela est bon ensuite comment faire pour les rangs suivant alors que les motifs des points sont coupés ? est ce que la partie B se tricote sur tous les rangs du diagramme ? En vous remerciant pour votre aide cdt

29.03.2023 - 13:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bigaud, c'est bien ainsi que l'on doit faire: le diagramme A est pour le début du motif, on répète le B et on termine par le C. Au 3ème rang, tricotez la dernière maille de A avec les 2 premières m de B (vous avez bien 3 m dans A), puis tricotez la dernière maille de chaque B avec les 2 premières mailles du B suivant puis de C. Bon tricot!

29.03.2023 - 15:47

country flag Nelly Hougardy wrote:

Le graphique du dessin, doit on continuer par A1-B1-C1 continuellement a chaque rang? Merci , Nelly

07.01.2023 - 17:03

DROPS Design answered:

Bonjour Nelly, le point ajouré va se tricoter ainsi: A.1 sur les 3 premières mailles (début du motif), on répète ensuite les 6 mailles de la partie A.1B jusqu'à ce qu'il reste 4 mailles et on termine le point ajouré par les 4 mailles de A.1C. Bon tricot!

09.01.2023 - 09:11

country flag Carole wrote:

Bonjour, \r\nComment ne pas décaler le motif dans les augmentations empiècement, étant donné que le tour commence par une augmentation ?\r\nMerci pour votre aide :-)

19.11.2022 - 21:03

DROPS Design answered:

Bonjour Carole, tricotez les nouvelles mailles en jersey jusqu'à ce que vous en ayez augmenté suffisamment pour continuer le motif ajouré, entre temps, tricotez bien A.1A, B et C comme avant. Bon tricot!

21.11.2022 - 09:01

country flag Yvonne wrote:

Bedankt voor de toelichting! Ik heb inderdaad wat moeite om de beschrijving te volgen. Het meerderen 'iedere andere naald' ging ook al mis, omdat ik niet begreep welke 'andere' naald er bedoeld werd. Ik had daarom maar gewoon elke naald gemeerderd. Maar dat kwam dus niet goed... (Meestal staat er in Nederlandse patronen iets als 'om de naald' of 'elke 2e naald'.) Maar goed, nu gestaag op weg. Het gaat nog helemaal goedkomen met m'n trui ;)

05.11.2022 - 15:35

country flag Yvonne Hordijk wrote:

Hoi, vraagje: de zadelschouder wordt eerst gebreid, over 18 steken, die even tijdelijk 20 worden om een kantsteek te hebben en dan weer 18 worden. Vervolgens neem je voor de pas steken op langs de zadel, gebruik je de wachtende steken van het pand, neem je weer op langs de zadel, en dan is de volgende instructie: 'brei de 16 steken op de schouder recht'. Waarom 16 en niet 18? Wat gebeurt er met de overige 2 steken? Ook wegminderen? Of is dit een typefout? Alvast bedankt!

03.11.2022 - 17:05

DROPS Design answered:

Dag Yvonne,

Als het goed is heb je in de 2 buitenste steken van de zadeschouders 1 markeerdraad geplaatst, waardoor er 16 steken tussen zitten. In totaal zitten er dus nog wel 18 steken op elke zadelschouder.

05.11.2022 - 14:21

country flag Julia Kiely wrote:

It doesn’t tell me how much yarn I need in the materials section, just the type of yarn.please advise. Thank you

15.02.2022 - 08:42

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kiely, you will find under MATERIALS in the header of the pattern the total weigt of yarn required in each size, ie in S you need 250 g DROPS Sky / 50 g a ball Sky = 5 balls DROPS Sky are required in size S. Happy knitting!

15.02.2022 - 09:19

country flag Julia Kiely wrote:

How much yarn do I need to make this jumper? I can’t find it anywhere in the pattern instructions?

15.02.2022 - 07:59

DROPS Design answered:

Hi Julia, The amounts are listed under Materials at the top of the page. Depending on the size you want to work, you need 250-300-350-350-400-450 g corresponding to sizes S-M-L-XL-XXL-XXXL. Happy knitting!

15.02.2022 - 08:15

country flag Fabienne wrote:

Bonjour, je ne comprends pas pourquoi ce modèle doit être si compliqué, j'ai vraiment abandonné car je trouve que ce ne sont pas des manches marteau en circulaire du moment qu'il faut tricoter les épaules séparément. Il serait plus agréable d'avoir des explications pour faire évoluer le diagramme au fur à mesure que l'on fait les épaules marteau. Dommage je vais partir sur un autre modèle.

07.01.2022 - 21:19

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, la constuction des manches marteau peut se faire de différentes façon, effectivement elles se tricotent ici d'abord en rangs, retrouvez ici tous nos pulls avec ce type de manches, vous trouverez peut-être un autre modèle qui vous convient. Bon tricot!

10.01.2022 - 07:36

country flag Helene wrote:

Kunne godt have ønsket mig lidt flere oplysninger om udtagning på mønster siden. "Nye masker strikkes løbende med i mønsteret" har betydet at jeg nu har 24 masker for meget på for- og bagstykke. Kan ikke finde ud af hvor fejlen er opstået og overvejer at finde en anden opskrift.

23.10.2021 - 10:04