DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Hyde Park Cardigan

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, perluprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 226-10
DROPS Design: Mynstur ks-178
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 19, dökk grænn
100-100-125-125-150-150 g litur 34, salvíugrænn

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 5-5-6-6-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með tvöföldu perluprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 14 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 7.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð) þannig. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1 (tvöfalt perluprjón á hæðina).

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (lykkja með prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir stroffi í hálsmáli.
Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 11-11-9½-10-8½-9 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁSMÁLI:
Fitjið upp 84-96-96-100-100-112 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5 með 1 þræði í hvoru lit í DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 9 cm. Síðar er kanturinn í hálsi brotinn saman tvöfaldur og við frágang þá verður kanturinn ca 4 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 10-14-14-14-14-18 lykkjur og aukið jafnframt út um 1-0-0-2-3-2 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (= 11-14-14-16-17-20 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 18-22-22-26-26-30 lykkjur og aukið jafnframt út um 5-7-7-7-9-11 lykkjur jafnt yfir (= 23-29-29-33-35-41 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 6 lykkjur og aukið út um 1 lykkju (= 7 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 10-14-14-14-14-18 lykkjur og aukið jafnframt út um 1-0-0-2-3-2 lykkjur jafnt yfir (= 11-14-14-16-17-20 lykkjur), prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 93-105-105-113-117-129 lykkjur.
Prjónið 1 umferð til baka í mynstri frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið).
Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið nú mynstur þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 11-14-14-16-17-20 lykkjur (= vinstra framstykki), A.2 yfir næstu 6 lykkjur, A.1 yfir næstu 7 lykkjur (= ermi), A.2 yfir næstu 6 lykkjur, A.1 yfir næstu 23-29-29-33-35-41 lykkjur (= bakstykki), A.2 yfir næstu 6 lykkjur, A.1 yfir næstu 7 lykkjur (= ermi), A.2 yfir næstu 6 lykkjur, A.1 yfir næstu 11-14-14-16-17-20 lykkjur (= hægra framstykki), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. Í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 18-20-23-24-25-27 sinnum = 237-265-289-305-317-345 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar útaukning á ermum hefur verið prjónuð til loka. Heldur útaukning á framstykki og bakstykki áfram 2-1-1-1-2-3 sinnum til viðbótar (= 18-20-23-24-25-27 lykkjur fleiri í hvorri hlið á ermi og 20-21-24-25-27-30 lykkjur fleiri við laskalínu á framstykki og bakstykki) = 245-269-293-309-325-357 lykkjur.
Prjónið A.1 og A.2 þar til stykkið mælist 20-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki á eftir kanti í hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 39-43-46-49-52-58 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 49-53-59-61-63-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-11-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 69-77-83-89-95-107 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 49-53-59-61-63-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-11-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 39-43-46-49-52-58 lykkjur (= framstykki).
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 165-181-193-209-221-245 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur frá A.2 og prjónið A.1 yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
Þegar stykkið mælist 24-26-26-26-26-26 cm frá skiptingu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir næstu 31-35-38-41-44-50 lykkjur og aukið jafnframt út 3-3-4-5-6-8 lykkjur jafnt yfir (= 34-38-42-46-50-58 lykkjur), prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjur og aukið jafnframt út um 3-3-3-5-5-5 lykkjur jafnt yfir (= 12-12-12-16-16-16 lykkjur), prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 63-71-77-83-89-101 lykkjur og aukið jafnframt út um 11-11-13-15-17-17 lykkjur jafnt yfir (= 74-82-90-98-106-118 lykkjur), prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjur og aukið jafnframt út um 3-3-3-5-5-5 lykkjur jafnt yfir (= 12-12-12-16-16-16 lykkjur), prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 31-35-38-41-44-50 lykkjur og aukið jafnframt út um 3-3-4-5-6-8 lykkjur jafnt yfir (= 34-38-42-46-50-58 lykkjur), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 188-204-220-244-260-288 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið stroff (1. umferð rá röngu) þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 49-53-59-61-63-67 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9-9-11-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 58-62-68-72-74-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju nýju lykkjuna sem fitjuð var upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Haldið áfram hringinn með A.1 – stillið af að mynstrið haldi áfram yfir lykkjur á ermi.
Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-4-2-2-2-2 cm millibili alls 5-6-8-9-9-10 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-37-35-34-33-30 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-8-10-8-10 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-64-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-41-39-38-37-34 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Lilian wrote:

Hallo, ich möchte für das Modell Hydepark Cardigan das Garn ‚Alpaka‘ verwenden. Geht das? Vielen Dank für die Rückmeldung!

29.09.2023 - 08:24

DROPS Design answered:

Liebe Lilian, ja gerne, dann stricken Sie mit 2 Fäden Alpaca - (2 Fäden der Garngruppe A wie Kid-Silk); benutzen Sie den Garnumrechner, um die neue Garnmenge kalkulieren zu lassen. Viel Spaß beim stricken!

02.10.2023 - 08:27

country flag Bente wrote:

Hvordan kan jeg fortsætte med mønster a2, efter jeg har delt til ærmer og krop. Der er jo de opslåede masker under ærmerne imellem de to halvdele? Vh Bente

24.06.2023 - 12:47

DROPS Design answered:

Hei Bente. Du fortsetter rundt med rett over rett og vrang over vrang over maskene fra A.2 og strikker A.1 over de resterende maskene på omgangen, inkludert de nye maskene som ble lagt opp i siden under ermene. mvh DROPS Design

26.06.2023 - 11:12

country flag Frenay Evelyne wrote:

Augmenter ainsi 18-20-23-24-25-27 fois au total tous les 2 rangs = 237-265-289-305-317-345 mailles. BIEN CONSERVER LA MÊME TENSION QUE POUR L'ÉCHANTILLON! Les augmentations des manches sont faites maintenant. Continuer ensuite en augmentant encore 2-1-1-1-2-3 fois sur les devants et le dos (= on augmente 18-20-23-24-25-27 mailles de chaque côté des manches et 20-21-24-25-27-30 mailles côté raglan sur les devants et le dos) = 245-269-293-309-325-357.Je ne comprends pas cette partie ci ?

06.03.2023 - 14:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Frenay, on augmente pour le raglan en 2 temps, d'abord sur les devants, le dos et les manches (= 8 m à chaque fois) tous les 2 rangs; puis on va augmenter tous les 2 rangs pour les devants et le dos seulement (4 augmentations) - cf taille pour le nombre de fois; autrement dit, lorsque la première séquence d'augmentation tous les 2 rangs est terminée pour votre taille, continuez en augmentant encore 1, 2 ou 3 fois (cf taille) pour les devants et le dos (plus pour les manches) = vous augmentez 4 mailles seulement, 1 pour chaque devant et 2 pour le dos. Bon tricot!

06.03.2023 - 15:07

country flag Béatrice LASSALLE wrote:

Bonjour, \r\nLorsque je fais les augmentations pour le raglan ts les 2 rangs, entre chaque A2, je me retrouve au fur et à mesure avec 1 maille de plus , cela fera 8 augmentations sur rang endroit. C\'est bien cela ?\r\nJe tricote ensuite ces mailles supplémentaires en A1. Donc ce sera toujours le même nombre de mailles à tricoter en A2 ? Je ne sais pas si je me suis bien fait comprendre...merci de votre réponse.

28.11.2021 - 18:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lassalle, effectivement vous augmentez bien 8 mailles à chaque fois (1 m pour chaque devant et 2 pour les manches + le dos). Ces mailles sont incorporées à A.1, les mailles de A.6 sont celles du raglan et doivent toujours être au nombre de 6. En espérant avoir bien compris votre question. Bon tricot!

29.11.2021 - 08:04

country flag LASSALLE Béatrice wrote:

Bonjour J'ai tricoté les côtes du col mais pour poursuivre, je ne comprends ce que veut dire "au-dessus". Vous parlez de jersey, on tricote donc en jersey endroit ? Merci de m'aider.

09.11.2021 - 18:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lassalle, lorsqu'il est dit par ex de tricoter "A.2 au-dessus des 6 mailles suivantes", vous tricotez simplement les 6 mailles de A.2. Effectivement, lorsque l'on indique "jersey", il s'agit de jersey endroit à tricoter à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers. Bon tricot!

10.11.2021 - 07:30

country flag Miryam Van Ommen wrote:

Kan ik een verhoging in de nek breien, en zo ja, hoe doe ik dat. Heeft U een voorbeeldbeschrijving?

07.11.2021 - 15:56

DROPS Design answered:

Dag Miryam,

Helaas heb ik niet echt een voorbeeld, maar om een verhoging te maken kun je vanaf midden achter een aantal naalden heen en weer breien, waarbij je steeds meer steken breit. Je breit bijvoorbeeld eerst 8 steken, dan brei je terug over de 8 steken via midden achter de andere kant op 8 steken, dan keer je het werk en brei je na midden achter bijvoorbeeld 16 steken, enzovoort.

11.11.2021 - 07:45

country flag Béatrice LASSALLE wrote:

Bonjour, Est-ce bien avec aiguilles n°5 au point de blé que l'on doit faire l'échantillon ? Merci de votre réponse.

27.10.2021 - 16:55

DROPS Design answered:

Bonjour Beatrice. Oui, aiguilles no 5, avec 2 fils. Ne pas oublier que la taille des aiguilles est uniquement une suggestion. Si vous avez trop de mailles pour 10 cm, essayez avec des aiguilles plus grosses. Si vous n'avez pas assez de mailles pour 10 cm, essayez avec des aiguilles plus fines. Bon tricot!

27.10.2021 - 18:17

country flag Jette Nielsen wrote:

Forrest Embrace

08.08.2021 - 09:19