Sylvia Gilbert skrifaði:
I have purchased 6 balls (I think 50g balls) of Drops Alpacca wool to knit a jumper for a 5 - 6 year old. My wool has arrived and it appears much finer ply than I thought it would be. I see the pattern above 'Hermine' which I like and would like to do this or if you have another pattern for just a plain raglan or set in sleeve jumper? Have I enough wool for either?
12.11.2021 - 01:07
Hermine#herminesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri og klukkuprjónslykkjum á berustykki. Stærð 2 til 12 ára.
DROPS Children 41-14 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 9,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 8. og 9. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-90-92-96-98-100 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 2 umferðir brugðið og aukið jafnframt út um 2-6-10-12-16-20 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 90-96-102-108-114-120 lykkjur. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið A.1 hringinn (= 30-32-34-36-38-40 mynstureiningar með 3 lykkjum). Eftir þriðju umferð í A.1 eru 120-128-136-144-152-160 lykkjur í umferð. Prjónið A.1 til loka, endurtakið síðan 2 umferðir með stjörnu í A.1 þar til stykkið mælist 6-7-7-8-8-9 cm frá prjónamerki mitt að aftan – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú A.2 hringinn (= 30-32-34-36-38-40 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 240-256-272-288-304-320 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 60-64-68-72-76-80 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 244-260-272-288-304-320 lykkjur. Prjónið nú sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 35-38-40-43-45-48 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 52-54-56-58-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-76-80-86-90-96 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 52-54-56-58-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 35-38-40-43-45-48 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-164-172-184-192-204 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 16-19-22-24-27-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman, aukið út lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-24-26-28-28-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 174-188-198-212-220-234 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 52-54-56-58-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 - prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-60-62-64-68-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-3½-4½-4½-5 cm millibili alls 5-5-5-5-6-6 sinnum á hæðina = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið áfram án úrtöku þar til ermin mælist 18-22-26-29-32-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 21-25-29-33-36-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #herminesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.