Judith Drouen skrifaði:
Ik moet meerderen in de boord bij de hals. Maar hoe ga ik dan verder met het patroon 1 rechts, 1 links?
13.06.2025 - 20:30
Halina Lösch skrifaði:
Vielen lieben Dank für ihre Nachricht. LG Halina
28.04.2025 - 13:38
Halina Lösch skrifaði:
Hallo Ich habe die Maschenprobe mit 8 er Nadeln gestrickt und das hat genau gepasst. Das Bündchen soll in 6 gestrickt werden. Muss ich dann mehr Maschen aufnehmen oder soll ich gleich mit 8 anfangen? LG Halina
27.04.2025 - 21:27DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Lösch, sollte Ihre Maschenprobe mit der 8er Nadel stimmen, dann stricken Sie genauso wie bei der Anleitung, dh das Bündchen mit der 6er Nadel stricken dann wird es mit der 8er Nadel weitergestrickt (und bei der 1. Reihe regelmäßig verteilt abgenommen). Viel Spaß beim Stricken!
28.04.2025 - 08:45
Vasilijevic Florie skrifaði:
Bonjour, Pour la poche du devant gauche, il faut commencer les augmentations tout de suite, pour avoir la poche en bonne symétrie par rapport au devant droit 😉☺️
11.04.2025 - 09:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vasilijevic, les poches sont ici symétriques: vous augmentez les 22/24 mailles après la 1ère maille sur l'endroit pour le devant droit = il reste 4 à 14 mailles sur le côté; et pour le devant gauche, vous tricotez les 4à 14 m sur l'endroit et vous augmentez dans les dernières 22/24 m avant la m lisière; autrement dit, on augmente les mailles de la poche côté ouverture du devant, en fin de rang sur l'endroit, juste avant la maille lisière pour le devant gauche et en début de rang sur l'endroit, juste après la maille lisière pour le devant droit. Bon tricot!
11.04.2025 - 09:30
Karine Schaerer skrifaði:
Bonjour, je voudrais essayer ce modèle, Hush of Night, mais avec DROPS Fiesta print 27, carnaval d’hiver, ou DROPS Daisy, car DROPS Wish est épuisé. Est-ce possible? Et si possible, combien de pelotes pour la taille L, s’il vous plaît? Merci beaucoup. Bien à vous, Karine Schaerer
21.02.2025 - 20:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Schaerer, retrouvez ici, grâce au convertisseur les alternatives possibles et les quantités correspondantes. Vous pouvez également utiliser d'autres alternatives type groupe de fils C+A+B (Daisy est du groupe B) , ex ici ou bien 3 fils du groupe B, ex ici. Retrouvez ici comment calculer la nouvelle quantité. Bon tricot!
24.02.2025 - 07:58
Liudmyla skrifaði:
Merci, c'est un modèle très réussi, j'en ai déjà tricoté une et maintenant je tricote une deuxième veste.
22.01.2025 - 14:11
Richtje Wijnen skrifaði:
Voor wat betreft de meerderingen langs de bies/hals, je moet meerderen door een omslag te maken, en dan staat er brei deze steken zoals hiervoor? Is dat dan twee averecht, en één steek recht? Of 1 recht, 1 averecht? Dat zijn dus aanzienlijk veel meerderingen ook, klopt dat?
12.01.2025 - 10:10DROPS Design svaraði:
Dag Richtje,
De eerste 77-79-81-85-89-91 steken brei je zonder te meerderen, dan brei je over de middelste steken van de bies waarbij je meerdert en over de laatste 77-79-81-85-89-91 meerder je ook niet. Op de volgende naald brei je de omslagen gedraaid averecht, waardoor je op de naald daarna over een gedeelte van de bies steeds 2 averechte steken tussen de rechte steken hebt.
13.01.2025 - 21:06
Carole Bazzanella skrifaði:
Bonsoir, si je prends le fil DROPS AIR, je dois utiliser deux fils à la fois ? je fais donc tout le tricot avec toujours deux fils ? cela me semble compliqué .merci de me confirmer
02.01.2025 - 00:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bazzanella, vous devez faire tout le tricot avec deux fils ensemble. Bon tricot!
02.01.2025 - 08:16
Sabine skrifaði:
Hallo, wenn ich bei der Blende im Rippenmuster zunehmen soll, stimmt doch das Rippenmuster nicht mehr. Wo ist mein Denkfehler? Vielen Dank
31.12.2024 - 08:48DROPS Design svaraði:
Liebe Sabine, die neuen Maschen stricken Sie links bei den Hinreihen / rechts bei den Rückreihen, so haben Sie dann Bündchen 1 re, 2 links wo Sie zugenommen haben, und 1 re, 1 links wie zuvor davor/danach. Viel Spaß beim Stricken!
02.01.2025 - 15:19
Dumont Jocelyne skrifaði:
Merci beaucoup pour votre réponse Cordialement
17.11.2024 - 07:27
Hush of Night#hushofnightjacket |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð síð peysa úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með vösum og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-12 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 81 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 23) = 3,4. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál á framstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig (á við um vinstra framstykki): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig (á við um hægra framstykki): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykkin eru prjónuð fram og til baka. Á framstykkjum eru prjónaðir vasar. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Að lokum er prjónaður upp kantur að framan/kantur í hálsmáli í kringum opið á allri peysunni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 81-87-95-101-107-115 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna 6 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff fram og til baka frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 23-23-25-27-29-31 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 58-64-70-74-78-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, fellið lykkjur af fyrir handvegi þannig: Fellið af fyrstu 3-5-7-7-7-9 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 3-5-7-7-7-9 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 52-54-56-60-64-66 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 21-22-23-24-26-27 lykkjur eftir á hvorri öxl). Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 20-21-22-23-25-26 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 36-42-46-48-50-54 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna 6 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff fram og til baka frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 9-12-13-14-14-15 lykkjur jafnt yfir = 27-30-33-34-36-39 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur auknar út fyrir vasa þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið síðan 2 lykkjur í hverja lykkju með því að prjóna 1 lykkju í fremri lykkjubogann og 1 lykkju í aftari lykkjubogann í hverja lykkju þar til eftir eru 4-7-10-9-11-14 lykkjur í umferð, prjónið 3-6-9-8-10-13 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 49-52-55-58-60-63 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3-6-9-8-10-13 lykkjur brugðið, prjónið brugðnar lykkjur yfir allar lykkjur sem prjónaðar voru í aftari lykkjubogana frá fyrri umferð, á meðan alla lykkjur sem prjónaðar voru í fremri lykkjubogana frá fyrri umferð eru settar á þráð (þ.e.a.s. setjið aðra hverja lykkju á þráð og prjónið aðra hverja lykkju). Þráðurinn með lykkjum á að liggja frá réttu á stykki, það á að nota þráðinn síðar til að prjóna vasa. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð, eru 22-22-22-24-24-24 lykkjur á þræði og 27-30-33-34-36-39 lykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-48 cm, fækkið um 1 lykkju við miðju framan í hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona með 5-5-6-6-6½-6½ cm millibili alls 4 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, fellið af fyrstu 3-5-7-7-7-9 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá röngu. Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar fyrir handveg og hálsmáli til loka, eru 20-21-22-23-25-26 lykkjur á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 36-42-46-48-50-54 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna 6 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff fram og til baka frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 9-12-13-14-14-15 lykkjur jafnt yfir = 27-30-33-34-36-39 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur auknar út fyrir vasa þannig: Prjónið 4-7-10-9-11-14 lykkjur slétt, prjónið síðan 2 lykkjur í hverja lykkju með því að prjóna 1 lykkju í fremri lykkjubogann og 1 lykkju í aftari lykkjubogann í hverja og eina af næstu 22-22-22-24-24-24 lykkjum og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 49-52-55-58-60-63 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig: Prjónið brugðnar lykkjur yfir allar lykkjur sem voru prjónaðar í aftari lykkjubogana frá fyrri umferð, á meðan allar lykkjur sem voru prjónaðar í fremri lykkjubogana frá fyrri umferð eru settar á þráð (þ.e.a.s. setjið aðra hverja lykkju á þráð og prjónið aðra hverja lykkju), prjónið 3-6-9-8-10-13 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þráðurinn með lykkjum á að liggja að réttu á stykki, það á að nota þráðinn síðar til að prjóna vasa. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð, eru 22-22-22-24-24-24 lykkjur á þræði og 27-30-33-34-36-39 lykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-48 cm, fækkið um 1 lykkju við miðju framan í hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona með 5-5-6-6-6½-6½ cm millibili alls 4 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, fellið af fyrstu 3-5-7-7-7-9 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá réttu. Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar fyrir handveg og hálsmáli til loka, eru 20-21-22-23-25-26 lykkjur á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af. VASI: Setjið til baka 22-22-22-24-24-24 lykkjur af þræði frá öðru framstykkinu á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til vasinn mælist 14-14-14-15-15-15 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir = 31-31-31-33-33-33 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff fram og til baka með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til vasinn mælist 18-18-18-19-19-19 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið annan vasa á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-42-42-44-44-46 lykkjur á sokkaprjóna 6 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12 lykkjur jafnt yfir = 28-30-30-32-32-34 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5-4½-4-3½-3-3 cm millibili alls 7-7-8-8-9-9 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-44-43-42-42-40 cm, skiptist stykkið við prjónamerki og stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna 8 í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 49-49-49-48-48-48 cm, fellið af – sjá AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ytri sauminn á vasanum fallega við framstykkin (þ.e.a.s. þá hlið á vasa sem snýr að hliðarsaumum). Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og saumið botninn á handveg – sjá teikningu. KANTUR AÐ FRAMAN / KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 215-221-227-235-241-247 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 6 – byrjið neðst á hægra framstykki, prjónið upp lykkjur upp að hálsmáli, aftan í kanti í hálsi og niður meðfram vinstra framstykki. Þegar lykkjur eru prjónaðar upp meðfram vösum, prjónið upp lykkjur í gegnum vasann og framstykki (þ.e.a.s. í gegnum 2 lög). Stillið af að lykkjufjöldinn dragi ekki kantinn á peysunni saman, prjónið e.t.v. fleiri lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1). Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 4 cm, aukið út þannig: Prjónið yfir fyrstu 77-79-81-85-89-91 lykkjur eins og áður, aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri brugðinni lykkju þar til eftir eru 77-79-81-85-89-91 lykkjur og prjónið síðustu lykkjur eins og áður. Þetta er gert til að kanturinn í hálsmáli sitjið betur aftan í hnakka. Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kanturinn mælist 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hushofnightjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.