DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Silver Skyline

Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða DROPS Andes. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-34
DROPS Design: Mynstur wi-003
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
500-550-600-650-750-800 g litur 03, ljós grár

Eða notið:
DROPS ANDES frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
800-900-1000-1100-1200-1300 g litur 9020, ljós grár

DROPS TALA, Marble NR 630: 6-6-7-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3 í stærð L, XL, XXL og XXXL). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 66 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 5,3.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir í umferð: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á eftir stroffi í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-10-9-9-9½-9½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 80-85-90-90-95-100 (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 6 með DROPS Wish DROPS Andes. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu = 66-70-74-74-78-82 lykkjur.
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 16 cm. Síðar er kanturinn í hálsmáli brotinn niður tvöfaldur og við frágang þá mælist hann ca 8 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 11-12-13-18-24-25 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 77-82-87-92-102-107 lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir eins og áður).
Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki er aukið út þannig:

FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur sléttprjón, A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 13-14-15-16-18-19 mynstureiningar með 5 lykkjum), 2 lykkjur sléttprjón, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 103-110-117-124-138-145 lykkjur í umferð.
Haldið áfram í sléttprjóni og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 9-10-10-11-12-13 cm frá prjónamerki.

ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 3-3-4-4-5-3 lykkjur sléttprjón, A.2 þar til 6-7-7-8-9-6 lykkjur eru eftir (= 15-16-17-18-20-22 mynstureiningar með 6 lykkjum), 2-3-3-4-5-2 lykkjur sléttprjón, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 133-142-151-160-178-189 lykkjur í umferð.
Haldið áfram í sléttprjóni og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 14-16-17-19-20-22 cm frá prjónamerki.
Prjónið nú áfram í mismunandi stærðum þannig:

STÆRÐ S og M:
Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 3-4 lykkjur sléttprjón, A.2 þar til 6-8 lykkjur eru eftir (= 20-21 mynstureiningar með 6-6 lykkjum á breidd), 2-4 lykkjur sléttprjón, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka eru 173-184 lykkjur í umferð.

STÆRÐ L, XL,XXL og XXXL:
Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2-3-5-3 lykkjur sléttprjón, A.3 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, þar til 5-6-9-6 lykkjur eru eftir (= 20-21-20-22 mynstureiningar með 7-7-8-8 lykkjum á breidd), 1-2-5-2 lykkjur sléttprjón, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 191-202-218-233 lykkjur í umferð.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið áfram í sléttprjóni og 4 kantlykkjum að framan í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 28-29-31-32-36-39 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 35-37-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 47-52-53-58-66-71 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 35-37-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 28-29-31-32-36-39 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 111-122-131-138-157-169 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd - nú eru eftir ca 4 cm að loka máli.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 23-24-27-28-32-33 lykkjur jafnt yfir = 134-146-158-166-190-202 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka svona í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 35-37-38-40-40-42 lykkjur frá þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 4-6-8-8-10-10 nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 39-43-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur.
Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6-5-3½-3-3-2 cm millibili alls 6-7-8-9-9-10 sinnum = 27-29-30-30-32-32 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-35-34-32-30-28 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd – nú eru ca 8 cm að loka máli.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 5-7-6-10-8-8 lykkjur jafnt yfir = 32-36-36-40-40-40 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 45-43-42-40-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori.
Saumið tölur í hægri vinstri að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Catherine wrote:

SVP, Pourquoi il y a une tel différence de besoin en laine entre la Drop Snow et la Drop Andes; soit 166% de plus alors que le nombre de mailles et de rangs est le même pour les deux échantillons et qu'il n'y a qu'une différence de 5 mètres de moins pour 50 mètres pour la Drop Andes ?

22.11.2023 - 06:37

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, Andes se présente sous la forme de pelotes de 100 g / 90 m et Wish sous forme de 50 g / 70 m; autrement dit pour 500 g Wish, on a 700 m, et pour 700 m Andes, il faut 7,77 pelotes Andes, soit 800 g. Bon tricot!

22.11.2023 - 09:12

country flag Dominique wrote:

Habe die Jacke in XXXL mit Andes gestrickt. 1300 g sehr großzügig bemessen. Obwohl ich die Ärmel 4 cm länger und das Rumpfteil ca. 10 cm länger gestrickt habe, habe ich nur ca. 1150 g verbraucht. (Dabei hatte ich extra mehr bestellt, weil ich sie länger haben wollte.)

07.02.2023 - 20:52

country flag Vasiliki Orphanou wrote:

Dear all, is it possible to use PUNA for the pattern 228-34 which is knitted with WISH??? If yes, how much yarn will be required??? Many thanks for the beautiful models and patterns!!!

08.07.2022 - 15:40

DROPS Design answered:

Dear Vasiliki Orphanou! Please lookyarn alternative lesson here. Try knitting a swatch with 2 yarns of Puna and see if you get similar knitting tension. Happy knitting!

08.07.2022 - 21:27

country flag Els Voets wrote:

Is een mooi patroon en verstaanbare uitleg

27.04.2022 - 08:44

country flag Laila Björkstam wrote:

Silver Skyline-koftan. Förstår inte följande direktiv: "När resåren mäter 4 cm, minskas det 1 maska i varje avigt parti = 66-70-74-74-78-82 maskor." Vad menas med varje avigt parti? I resårstickningen för halsen räknar jag till 23 ggr aviga maskor. Förstår inte hur jag ska minska 16 m, och varför jag efter att halsen är färdigstickad ska öka endast 13 m? Jag stickar således L d.v.s. 90 m till att börja med som sedan ska minskas till 74. Och slutligen ökas med endast 13 m.

22.11.2021 - 09:31

DROPS Design answered:

Hej Laila. Du har ska ha 16 partier med aviga maskor om du stickar storlek L. 90m - (4 m x 2) framkantsmaskor - 2 rm = 80m som ska stickas resår. 80m/5m= 16 partier. Du ökar och minskar på detta sätt för att resåren ska blir fin/passa när den sedan viks. Mvh DROPS Design

22.11.2021 - 09:50

country flag Catalina wrote:

Hola. Podría utilizar drops snow para este modelo? Gracias.

29.09.2021 - 12:27

DROPS Design answered:

Hola Catalina, si claro. Buen trabajo!

29.09.2021 - 14:29

country flag Gabi wrote:

Danke für die zauberhaften neuen Modelle. Viele Grüße

06.08.2021 - 19:38

country flag Gabi wrote:

Danke für die zauberhaften neuen Modelle. Viele Grüße

06.08.2021 - 19:37

country flag Vera Moore wrote:

Beautiful

05.08.2021 - 05:16

country flag Leora Noam wrote:

I would call this cardigan " imbrase" as it seems just as cozy as a hug.

03.08.2021 - 14:48